Ísafjarðarbær
Umhverfis- og framkvæmdanefnd 121. fundur
= Umhverfis- og framkvæmdanefnd =
Dagskrá
=== 1.Erindisbréf umhverfis- og framkvæmdanefndar - 2022060101 ===
Erindisbréf umhverfis- og framkvæmdanefndar lagt fram til kynningar ásamt siðareglum kjörinn fulltrúa í Ísafjarðarbæ.
Lagt fram til kynningar.
=== 2.Athugasemdir um lausagöngu búfjár - 2022060009 ===
Lagðar fram athugasemdir íbúa í Holtahverfi á Ísafirði vegna lausagöngu búfjár, sem hafa borist Ísafjarðarbæ í júní 2022.
Óskað er eftir viðbrögðum nefndarinnar.
Óskað er eftir viðbrögðum nefndarinnar.
Umhverfis- og framkvæmdanefnd tekur undir áhyggjur íbúa á stöðu mála. Nefndin óskar eftir úttekt frá áhaldahúsi og verktaka á stöðu girðinga í nágrenni Holtahverfis.
=== 3.Innleiðing á nýju regluverki í sorpmálum - 2022060100 ===
Lagt fram minnisblað Smára Karlssonar, verkefnastjóra á umhverfis- og eignasviði, dags. 16. júní 2022 þar sem farið er yfir stöðu sorpmála í sveitarfélaginu og þær breytingar sem eru í farvatninu.
Lagt fram til kynningar.
Fundi slitið - kl. 10:00.
Er hægt að bæta efnið á síðunni?