Fjarðabyggð
Félagsmálanefnd - 170
**1. 2306007 - Forvarnir og fræðsla 2023**
|Félagsmálanefnd samþykkir fyrir sitt leiti að forvarnarteymi Fjarðabyggðar vinni að endurnýjun forvarnaráætlunar.|
Vísað til deildarstjóra tómstunda- og forvarnarmála til úrvinnslu.
**2. 2309017 - Beiðni um framlag til starfsemi Stígamóta**
|Félagsmálanefnd vísar erindinu til sviðsstjóra fjölskyldusviðs til áframhaldandi vinnu í starfs- og fjárhagsáætlun.|
**3. 2308173 - Erindi Jaspis ágúst 2023**
|Félagsmálanefnd þakkar fyrir erindið. Nefndin styrkir starf félaga eldri borgara með reglubundnum framlögum en að svo stöddu getur nefndin ekki styrkt starfið frekar þar sem fjárheimild er ekki til staðar.|
**4. 2309168 - Gjaldskrá stuðningsþjónustu 2024**
|Félagsmálanefnd samþykkir fyrir sitt leiti að hækka gjaldskrá stuðningsþjónustu 2024 um 12,5% og vísar málinu áfram til bæjarráðs. |
**5. 2309170 - Gjaldskrá þjónustuíbúða í Breiðablik**
|Félagsmálanefnd samþykkir að hækka gjaldskrá þjónustuíbúða í Breiðablik 2024 um 7,7% og vísar málinu áfram til bæjarráðs. |
**6. 2309182 - Styrkumsókn - breyting á ferðaþjónustubíl**
|Félagsmálanefnd þakkar fyrir erindið. Félagsmálanefnd getur ekki séð sér fært um að veita umbeðinn styrk.|
**7. 2310040 - Ráðstefna um fíknistefnu**
|Boð á ráðstefna um fíknistefnu kynnt. |
**8. 2305070 - Starfs- og fjárhagsáætlun félagsmálanefndar 2024**
|Sviðsstjóri kynnti starfs- og fjárhagsáætlun fyrir árið 2024. Félagsmálanefnd felur sviðsstjóra fjölskyldusviðs að vinna áfram að starfs- og fjárhagsáætlun.|