Vesturbyggð
Bæjarstjórn - 387
= Bæjarstjórn #387 =
Fundur haldinn í Brellum, fundarsal í ráðhúsi Vesturbyggðar, 18. október 2023 og hófst hann kl. 17:00
====== Nefndarmenn ======
- Anna Vilborg Rúnarsdóttir (AVR) aðalmaður
- Ásgeir Sveinsson (ÁS) aðalmaður
- Friðbjörn Steinar Ottósson (FSO) aðalmaður
- Guðrún Eggertsdóttir (GE) aðalmaður
- Jón Árnason (JÁ) aðalmaður
- Svanhvít Sjöfn Skjaldardóttir (SSS) aðalmaður
- Einar Helgason (EH) varamaður
====== Starfsmenn ======
- Gerður Björk Sveinsdóttir (GBS) sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Þórdís Sif Sigurðardóttir (ÞSS) bæjarstjóri
====== Fundargerð ritaði ======
- Jón Árnason forseti bæjarstjórnar
== Almenn erindi ==
=== 1. Skýrsla bæjarstjóra ===
Bæjarstjóri Vesturbyggðar fór yfir helstu verkefni síðustu vikna.
Til máls tóku: Forseti og bæjarstjóri.
=== 2. Fjárhagsáætlun 2023 - viðaukar ===
Lagður fyrir til afgreiðslu, viðauki 4 við fjárhagsáætlun 2023. Viðaukinn var tekinn fyrir 970 fundir bæjarráðs þar sem honum var vísað áfram til afgreiðslu í bæjarstjórn. Viðaukinn er lagður fyrir vegna breytinga á fjárfestingum ársins 2023, bæði þar sem vantar auknar heimildir og eins vegna verkefna sem áætlað var að fara í á árinu en mun ekki nást og verður að mestu gert ráð fyrir þeim í fjárhagsáætlun 2024. Fjárfestingar í eignasjóði eru hækkaðar um 39,2 m.kr., fjárfestingar í vatnsveitu eru lækkaðar um 18 m.kr., fjárfestingar í fráveitu eru lækkaðar um 6,5 m.kr. og fjárfestingar í Fasteignum Vesturbyggðar eru lækkaðar um 1,4 milljónir króna. Handbært fé er lækkað um 13,3 m.kr. Viðauki 4 hefur ekki áhrif á rekstrarniðurstöðu í A, né A og B hluta en handbært fé í A hluta lækkar um 39,2 m.kr og verður 9,8 m.kr. Handbært fé í A og B hluta lækkar um 13,9 m.kr. og verður 54 m.kr.
Til máls tók: Forseti.
Bæjarstjórn samþykkir viðaukann samhljóða.
=== 3. Velferðaþjónusta á Vestfjörðum ===
Lagður fram til annarar umræðu viðauki við samning um velferðaþjónsutu á Vestfjörðum vegna aðildar Strandabyggðar að samningnum.
Til máls tóku: Forseti og bæjarstjóri.
Bæjarstjórn samþykkir viðaukann við velferðaþjónstu á Vestfjörðum.
=== 4. Viðauki við samþykkt um stjórn Vesturbyggðar ===
Lagður fyrir í annarri umræðu viðauki við samþykkt um stjórn Vesturbyggðar vegna fullnaðarafgreiðsluheimildar starfsfólks Ísafjarðabæjar í tengslum við samstarf um velferðaþjónustu á Vestfjörðum.
Til máls tók: Forseti.
Bæjarstjórn samþykkir viðauka við samþykkt um stjórn Vesturbyggðar og felur bæjarstjóra að senda í B-deild stjórnartíðinda.
=== 5. Járnhóll 8. Umsókn um lóð. ===
Tekin fyrir umsókn Landsnets, dags. 21.03.2023 um byggingarlóðina að Járnhól 8 þar sem félagið áformar að byggja nýtt tengivirki í tengslum við tvöföldun vesturlínu. Erindið var tekið fyrir og frestað á 382. fundi bæjarstjórnar þann 26.04.2023, á þeim fundi var bæjarstjóra falið að setja sig í samband við umsækjanda vegna veglagningar að lóðinni sem ekki er gert ráð fyrir í fjárhagsáætlun.
Nú er umsóknin lögð fyrir að nýju ásamt ósk Landsnets um bráðabirgðatengingu við Bíldudalsveg nr.62. Erindinu fylgir samþykki Vegagerðarinnar dags. 15.05.2023 ásamt afstöðumynd unna af Eflu, dags. 09.10.2023.
Til máls tók: Forseti.
Bæjarstjórn samþykkir úthlutun Járnhóls 8 til Landsnets hf.
=== 6. Þúfneyri. Umsókn um lóð undir spennistöð. ===
Erindi frá Orkubúi Vestfjarða ohf, dags. 22. september 2023. Í erindinu er óskað eftir lóð undir spennistöð við Þúfneyri í Patreksfirði. Spennistöðin er ætluð til landtengingar fóðurpramma fyrir laxeldi.
Erindinu fylgir mæliblað frá Orkubúi Vestfjarða ohf. er sýnir ósk um staðsetningu.
Skipulags- og umhverfisráð bókað eftirfarandi á 110. fundi sínum þann 11. október 2023:
Skipulags- og umhverfisráð fagnar áformum um landtengingu fóðurpramma í Patreksfirði. Í ljósi þess að Þúfneyri er skilgreind sem útivistarsvæði í aðalskipulagi Vesturbyggðar leggur ráðið til að Orkubúi Vestfjarða ohf. verði úthlutuð lóð á hentugri stað utantil á eyrinni m.t.t. nýtingar á svæðinu. Sjá tillögu ráðsins í fylgiskjölum.
Endanleg staðsetning og lagnaleið skal ákveðin í samráði við sveitarfélagið og þá skal halda raski í lágmarki og vanda frágang eins og kostur er.
Til máls tók: Forseti.
Bæjarstjórn samþykkir að úthluta lóð til Orkubús Vestfjarða ohf. í samræmi við tillögu skipulags- og umhverfisráðs.
=== 7. Deiliskipulagsbreyting - deiliskipulag hafnar- og þjónustusvæðis á Patreksfirði ===
Tekin fyrir tillaga að breytingu á deiliskipulagi hafnar- og þjónustusvæðis á Patreksfirði. Tillagan felur í sér skilgreiningu á fjórum íbúðarlóðum við Þórsgötu neðan við Mýrar á svæði sem skilgreint er sem ÍB1 í gildandi Aðalskipulagi Vesturbyggðar 2018-2035.
Skipulags- og umhverfisráð lagði til að í skilmálum verði texta breytt á þá leið að einnig verði heimilt að byggja einbýlishús á lóðunum.
Skipulags- og umhverfisráð og hafna- og atvinnumálaráð lagði til við bæjarstjórn að tillagan fái málsmeðferð skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Til máls tóku: Forseti og bæjarstjóri.
Bæjarstjórn samþykkir að tillagan fái málsmeðferð skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
=== 8. Vesturbotn - deiliskipulag ===
Tekið fyrir eftir auglýsingu deiliskipulag fyrir Vesturbotn. Tillagan var auglýst með athugasemdafresti til 21. september 2023. Engar athugasemdir bárust frá íbúum á auglýsingatíma en umsagnir bárust frá Heilbrigðiseftirliti Vestfjarða, Náttúrufræðistofnun Íslands, Umhverfisstofnun, Vegagerðinni, Minjastofnun Íslands og Skógræktinni. Fyrir liggja leiðrétt skipulagsgögn m.t.t. umsagna ásamt samantekt umsagna og viðbragða við þeim.
Skipulags- og umhverfisráð tók málið fyrir á 110. fundi sínum þar sem það lagði til við bæjarstjórn að tillagan fái málsmeðferð skv. 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Til máls tók: Forseti.
Bæjarstjórn samþykkir að tillagan fái málsmeðferð í samræmi við 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
== Fundargerðir til kynningar ==
=== 9. Bæjarráð - 968 ===
Lögð fram til kynningar fundargerð 968. fundar bæjarráðs, fundurinn var haldinn 12. september 2023. Fundargerð er í 19 liðum.
Til máls tók: Forseti.
[9.1. #2306039 – Umsóknir Vesturbyggðar í Framkvæmdasjóð ferðamannastaða 2023](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2306039/) [9.2. #2309002 – Til samráðs - Áform um lagasetningu - Breyting á búvörulögum nr. 99-1993 Framleiðendafélög](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2309002/) [9.3. #2309003 – Til samráðs - Áform um breytingu á ýmsum lögum á sviði málefna barna (reglugerðarheimildir)](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2309003/) [9.4. #2309004 – Til samráðs - Áform um breytingu á 15.gr. barnaverndarlaga nr. 80-2002](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2309004/) [9.5. #2309005 – Til samráðs - Áform um breytingu á lögum um framhaldsskóla (vinnustaðanám, innritun o.fl.)](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2309005/) [9.6. #2309006 – Til samráðs - Mál nr. 159-2023 - Auðlindin okkar - sjálfbær sjávarútvegur.](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2309006/) [9.7. #2309008 – Til samráðs - Áform um lagasetningu - Frumvarp til laga um nýtingu og stjórnun nytjastofna sjávar](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2309008/) [9.8. #2309009 – Til samráðs - Mál nr. 161-2023 - Breyting á lögræðislögum](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2309009/) [9.9. #2309011 – Til samráðs - Mál nr. 162-2023 - Fjárfestingarkostir viðbótarlífeyrissparnaðar](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2309011/) [9.10. #2302031 – Fundargerðir Heilbrigðisnefndar Vestfjarðasvæðis 2023](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2302031/) [9.11. #2302074 – Fundargerðir Breiðafjarðarnefndar 2023](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2302074/) [9.12. #2305038 – Sviðsstjóri fjölskyldusviðs](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2305038/) [9.13. #2309015 – Málstefna sveitarfélaga](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2309015/) [9.14. #2302088 – Rekstur og fjárhagsstaða 2023](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2302088/) [9.15. #2302087 – Framkvæmdaáætlun ársins 2023](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2302087/) [9.16. #2209057 – Bíldudalsskóli - húsnæði](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2209057/) [9.17. #2309016 – Umsagnarbeiðni - Breyting á rekstrarleyfi - Hótel Flókalundur](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2309016/) [9.18. #2309032 – Strok úr sjókvíaeldi Arctic Fish í Patreksfirði](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2309032/) [9.19. #2309018 – Aðalskoðun leiksvæða 2023](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2309018/)
=== 10. Bæjarráð - 969 ===
Lögð fram til kynningar fundargerð 969. fundar bæjarráðs, fundurinn var haldinn 26. september 2023. Fundargerð er í 8 liðum.
Til máls tók: Forseti.
[10.1. #2306041 – Araklettur viðbygging](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2306041/) [10.2. #2309029 – Leikskólamál á Barðaströnd, fyrirspurn um opnun deildar](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2309029/) [10.3. #2307002 – Stefnumótun lagareldis](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2307002/) [10.4. #2309059 – Til samráðs - drög að hvítbók um skipulagsmál og umhverfismatsskýrsla](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2309059/) [10.5. #2301036 – Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga 2023](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2301036/) [10.6. #2309061 – Til samráðs - Frumvarp til laga um Loftslagsstofnun og Náttúruverndar- og minjastofnun](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2309061/) [10.7. #2309062 – Til samráðs -Breytingar á lögum um svæðisbundra flutningsjöfnun](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2309062/) [10.8. #2309067 – Mál nr. 3 um tillögu til þingályktunar um réttlát græn umskipti. Ósk um umsögn](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2309067/)
=== 11. Bæjarráð - 970 ===
Lögð fram til kynningar fundargerð 970. fundar bæjarráðs, fundurinn var haldinn 10. október 2023. Fundargerð er í 17 liðum.
Til máls tók: Forseti.
[11.1. #2310014 – Framkvæmdastjóri Vestfjarðastofu](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2310014/) [11.2. #2310011 – Til samráðs - Drög að reglum um ráðgefandi nefndir er meta hæfi umsækjenda um störf forstöðumanna](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2310011/) [11.3. #2302039 – Formlegar sameiningarviðræður milli Tálknafjarðarhrepps og Vesturbyggðar](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2302039/) [11.4. #2302074 – Fundargerðir Breiðafjarðarnefndar 2023](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2302074/) [11.5. #2302077 – Fundargerðir stjórnar Vestfjarðastofu 2023](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2302077/) [11.6. #2301036 – Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga 2023](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2301036/) [11.7. #2310004 – Auglýst eftir umsóknum um styrki úr Aski](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2310004/) [11.8. #2310008 – Mál nr. 182 um tillögu til þingsályktunar um stefnumótandi áætlun í málefnum sveitarfélaga fyrir árið 2024-2038 og aðgerðaráætlun fyrir árin 2024-2028](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2310008/) [11.9. #2310009 – Mál nr. 171 um frumvarp til laga um breytingu á lögum um fasteignalán til neytenda nr 118-2016 ( lántökuskilyrði vegna íbúðafjárfestinga).](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2310009/) [11.10. #2306021 – Fjárhagsáætlun 2024 - 2027](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2306021/) [11.11. #2302026 – Fjárhagsáætlun 2023 - viðaukar](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2302026/) [11.12. #2310010 – Þjónustustefna í byggðum og byggðalögun sveitarfélaga](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2310010/) [11.13. #2310006 – Til samráðs - Uppbygging og umgjörð lagareldis -Stefna til ársins 2040](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2310006/) [11.14. #2309072 – Bréf til sveitarfélaga um innviði fyrir orkuskipti](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2309072/) [11.15. #2309068 – Til samráðs - Áform um frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum um skatta og gjöld](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2309068/) [11.16. #2310005 – Til samráðs - Breytingar á lögum um skipulag haf- og strandsvæða nr. 88-2018](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2310005/) [11.17. #2310012 – Til samráðs - Frumvarp til laga um breytingu á barnaverndarlögum nr. 80-2002 og lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40-1991 (reglugerðarheimildir).](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2310012/)
=== 12. Skipulags og umhverfisráð - 110 ===
Lögð fram til kynningar fundargerð 110. fundar skipulags- og umhverfisráðs, fundurinn var haldinn 11. október 2023. Fundargerð er í 5 liðum.
Til máls tók: Forseti.
[12.1. #2309046 – Erindi frá Páli Haukssyni varðandi umferðamerkiningar og bílastæði við Mýrar.](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2309046/) [12.2. #2309048 – Þúfneyri. Umsókn um lóð undir spennistöð.](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2309048/) [12.3. #2304027 – Deiliskipulagsbreyting - deiliskipulag hafnar- og þjónustusvæðis á Patreksfirði](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2304027/) [12.4. #2306067 – Vesturbotn - deiliskipulag](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2306067/) [12.5. #2309059 – Til samráðs - drög að hvítbók um skipulagsmál og umhverfismatsskýrsla](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2309059/)
=== 13. Velferðarráð - 48 ===
Lögð fram til kynningar fundargerð 48. fundar velferðaráðs, fundurinn var haldinn 14. september 2023. Fundargerð er í 4 liðum.
Til máls tóku: Forseti og bæjarstjóri.
[13.1. #2309023 – Velferðarráð, áherslur í fjárhagsáætlun 2024](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2309023/) [13.2. #2308036 – Tilraunaverkefni með HVest, Ísafjarðarbæ og Bolungarvík](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2308036/) [13.3. #2307035 – Nr. 143-2023 - Áform um lagasetningu, frumvarp til breytingar á lyfjalögum - ósk um umsögn](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2307035/) [13.4. #2309039 – Beiðni um framlag til starfssemi Stígamóta árið 2024](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2309039/)
=== 14. Fræðslu- og æskulýðsráð - 88 ===
Lögð fram til kynningar fundargerð 88. fundar fræðslu- og æskulýðsráðs, fundurinn var haldinn 11. september 2023. Fundargerð er í 6 liðum.
Til máls tók: Forseti.
[14.1. #2304019 – Bréf frá Samtökunum 22- hagsmunasamtökum samkynhneigðra, með ósk um að að sýna varkárni í fræðslu til barna](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2304019/) [14.2. #2306010 – Tónlistaskóli, skóladagatal 2023-2024](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2306010/) [14.3. #2309020 – Patreksskóli mat á starfsáætlunm 2022 - 2023](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2309020/) [14.4. #2309021 – Araklettur, mat á starfsáætlun 2022 - 2023](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2309021/) [14.5. #2309028 – Tónlistarskóli - mat á starfsáætlun 2022-2023](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2309028/) [14.6. #2309022 – Áherslur fræðslu- og æskulýðsráðs í fjárhagsáætlun 2024](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2309022/)
=== 15. Hafna- og atvinnumálaráð - 53 ===
Lögð fram til kynningar fundargerð 53. fundar hafna- og atvinnumálaráðs, fundurinn var haldinn 16. október 2023. Fundargerð er í 6 liðum.
Til máls tók: Forseti.
[15.1. #2001008 – Verbúðin - útleiga.](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2001008/) [15.2. #2304027 – Deiliskipulagsbreyting - deiliskipulag hafnar- og þjónustusvæðis á Patreksfirði](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2304027/) [15.3. #2310005 – Til samráðs - Breytingar á lögum um skipulag haf- pg strandsvæða nr. 88-2018](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2310005/) [15.4. #2306021 – Fjárhagsáætlun 2024 - 2027](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2306021/) [15.5. #2310015 – Fundargerð samstarfsfundur Hafnasambands Íslands og Fiskistofu](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2310015/) [15.6. #2309074 – Fundargerð 456. fundar stjórnar Hafnassambands Íslands](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2309074/) **Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:29**
Bæjarstjórn Vesturbyggðar kom saman til 387. fundar miðvikudaginn 18. október 2023 kl. 17:00 í Ráðhúsi Vesturbyggðar, Aðalstræti 75, Patreksfirði.
Jón Árnason forseti setti fundinn og kannaði hvort athugasemdir væru við fundarboðun. Svo var ekki.