Fjarðabyggð
Mannvirkja- og veitunefnd - 21
**1. 2305071 - Starfs- og fjárhagsáætlun mannvirkja- og veitunefndar 2024**
|Sviðsstjóri kynnti tillögur að starfs- og fjárhagsáætlun á sviði nefndrinnar fyrir árið 2024 ásamt fjárfestingaráætlun fyrir árið. Mannvirkja- og veitunefnd felur sviðsstjóra að útfæra fjárhagsáætlun nefndarinnar í samræmi við umræður á fundinum og vísað til endanlegrar ákvörðunar bæjarráðs.|
**2. 2203163 - Römpum upp Ísland**
|Mannvirkja- og veitunefnd tekur vel í erindið og felur aðgengisfulltrúa sveitafélagsins að vinna málið áfram og leggja fyrir að nýju. |
**3. 2203199 - Tjaldsvæði 2022**
|Lagt fram til samþykktar afmörkun landssvæði fyrir tjaldsvæði til söluferlis í Fjarðabyggð. mannvirkja- og veitunefnd samþykkir staðsetningu á framlögðu minnisblaði og vísar málinu til umfjöllunar bæjarráðs.|
**4. 2309152 - Gjaldskrá fráveitu 2024**
|Gjaldskrá fráveitu 2024 lögð fram til umfjöllunar.|
Gjaldskrá fráveitu Fjarðabyggðar 2024 lögð fram til umfjöllunar. Mannvirkja- og veitunefnd samþykkir fyrir sitt leyti gjaldskrá fráveitu sem taki gildi 1.1.2024 og vísar gjaldskránni til afgreiðslu bæjarráðs.
**5. 2309167 - Gjaldskrá vatnsveitu 2024**
|Gjaldskrá vatnsveitu fyrir árið 2024 lögð fram til umræðu ásamt minnisblaði sviðsstjóra. Mannvirkja- og veitunefnd samþykkir fyrir sitt leyti gjaldskrá vatnsveitu sem taki gildi 1.1.2024 og vísar gjaldskránni til afgreiðslu bæjarráðs.|
**6. 2309155 - Gjaldskrá hitaveitu 2024**
|Gjaldskrá hitaveitu 2024 lögð fram til umfjöllunar. Mannvirkja- og veitunefnd samþykkir fyrir sitt leyti gjaldskrá hitaveitu sem taki gildi 1.1.2024 og vísar gjaldskránni til afgreiðslu bæjarráðs.|
**7. 2309099 - Gjaldskrá fjarvarmaveita 2024**
|Gjaldskrá fjarvarmaveitu 2024 lögð fram til umfjöllunar. Mannvirkja- og veitunefnd samþykkir fyrir sitt leyti gjaldskrá fjarvarmaveitu sem taki gildi 1.1.2024 og vísar gjaldskránni til afgreiðslu bæjarráðs|