Fjarðabyggð
Fræðslunefnd - 132
**1. 2305048 - Starfs- og fjárhagsáætlun í fræðslumálum 2024**
|Starfs- og fjárhagsáætlun 2024 var kynnt fyrir fræðslunefnd. |
**2. 2309160 - Gjaldskrá leikskóla 2024**
|Fyrir liggur tillaga að gjaldskrá leikskóla fyrir árið 2024.Í tillögunni er gert ráð fyrir 7,7% hækkun á dvalargjöldum og 4,9% hækkun á fæðisgjaldi frá árinu 2023. Fræðslunefnd samþykkir fyrirliggjandi gjaldskrá og vísar til bæjarráðs.|
**3. 2309181 - Starfshópur fræðslumála 2023**
|Stjórnandi fræðslumála og skólaþjónustu kynnti erindisbréf um skipan starfshóps fræðslumála sem hefur það verkefni að móta stefnu og aðgerðaráætlun um breytingu á núverandi rekstrar- og stjórnunarfyrirkomulagi leik-, grunn- og tónlistarskóla Fjarðabyggðar, með það fyrir augum að bæta faglegt starf og auka rekstrarlega samlegð. |
Fræðslunefnd samþykkir fyrirliggjandi erindisbréf og vísar til bæjarráðs.
**4. 2310143 - Íslenska æskulýðsrannsóknin 2023**
|Stjórnandi fræðslumála og skólaþjónustu lagði fram til kynningar niðurstöður Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar.|
**5. 2210143 - Samskiptastefna 2022-2026**
|Drög að samskipta- og vefstefnu Fjarðabyggðar ásamt stefnu um innri samskipti voru tekin fyrir á fundi fræðslunefndar eftir að óskað var eftir umsögn frá leik-, grunn- og tónlistarskólum.|
Stjórnanda fræðslumála og skólaþjónustu var falið að koma athugasemdum á framfæri.
Fræðslunefnd samþykkir stefnuna að öðru leiti.
**6. 2310057 - Frumvarp til laga um Miðstöð menntunar og skólaþjónustu, 238. mál.**
|Frumvarp til laga um Miðstöð menntunar og skólaþjónustu nr. 238 var kynnt. Fræðslunefnd fagnar frumvarpinu og ítrekar mikilvægi þess að stofnunin þjóni öllu landinu.|