Grindavíkurbær

Bæjarráð - Fundur 1658

07.11.2023 - Slóð - Skjáskot

    **1658. fundur bæjarráðs Grindavíkur haldinn í bæjarstjórnarsal, þriðjudaginn 7. nóvember 2023 og hófst hann kl. 15:30.**

Fundinn sátu: Hjálmar Hallgrímsson, formaður, Helga Dís Jakobsdóttir, varaformaður, Hallfríður G Hólmgrímsdóttir, aðalmaður og Ásrún Helga Kristinsdóttir, áheyrnarfulltrúi. Einnig sátu fundinn: Jón Þórisson, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs og Fannar Jónasson, bæjarstjóri. Fundargerð ritaði: Jón Þórisson, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs. Dagskrá: 1. Rafrænar undirritanir - Fundargerðir - 2301121 Lagðar eru fram tillögur að breytingum á samþykkt Grindavíkurbæjar þannig að mögulegt sé að undirrita fundargerðir rafrænt. Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja breytingarnar. 2. Aflið, samtök fyrir þolendur ofbeldis - Styrkumsókn - 2310109 Lögð fram beiðni um styrk frá Aflinu, samtökum fyrir þolendur ofbeldis, að fjárhæð 150.000 kr. Bæjarráð getur ekki orðið við erindinu. 3. Endurnýjun á samstarfssamningi við Samtökin ´78 - 2309094 Málinu er frestað til næsta fundar. 4. Styrktarsamningur við Björgunarsveitina Þorbjörn - 2308226 Lögð fram drög að samningi við Björgunarsveitina Þorbjörn. Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja samninginn. 5. 100 ára afmæli Kvenfélags Grindavíkur - 2310100 Málinu er frestað til næsta fundar. 6. Samningar vegna snjómokstur 2023-2025 - 2311009 Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið. Samningar vegna snjómokstur í Grindavík til 1. maí 2025 lagðir fram til samþykktar ásamt yfirlitsmyndum yfir hverfaskiptingu og forgangsröðun. Bæjarráð samþykkir samningana. 7. Beiðni um viðauka - snjómokstur - 2311010 Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið. Lögð fram beiðni um viðauka vegna snjómoksturs á árinu 2023 að fjárhæð 14.750.000 kr. Lagt er til að viðaukinn verði fjármagnaður með lækkun á handbæru fé að fjárhæð 10.250.000 kr. og með hækkun tekna þjónustumiðstöðvar að fjárhæð 4.500.000 kr. Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðaukann. 8. Jarðskjálftar og landris í Grindavík 2023 - 2310132 Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:25. Bæjarráð / 7. nóvember 2023 Fundur 1658 Bæjarstjórn / 31. október 2023 Fundur 544 Skipulagsnefnd / 16. október 2023 Fundur 127 Fræðslunefnd / 12. október 2023 Fundur 136 Fræðslunefnd / 21. september 2023 Fundur 135 Fræðslunefnd / 7. september 2023 Fundur 134 Fræðslunefnd / 29. júní 2023 Fundur 133 Fræðslunefnd / 7. júní 2023 Fundur 132 Bæjarráð / 17. október 2023 Fundur 1656 Bæjarráð / 24. október 2023 Fundur 1657 Skipulagsnefnd / 2. október 2023 Fundur 126 Bæjarráð / 10. október 2023 Fundur 1655 Bæjarráð / 3. október 2023 Fundur 1654 Bæjarstjórn / 26. september 2023 Fundur 543 Frístunda- og menningarnefnd / 20. september 2023 Fundur 128 Frístunda- og menningarnefnd / 6. september 2023 Fundur 127 Skipulagsnefnd / 18. september 2023 Fundur 125 Bæjarráð / 12. september 2023 Fundur 1653 Skipulagsnefnd / 4. september 2023 Fundur 124 Bæjarráð / 5. september 2023 Fundur 1652 Bæjarstjórn / 29. ágúst 2023 Fundur 542 Skipulagsnefnd / 21. ágúst 2023 Fundur 123 Bæjarráð / 22. ágúst 2023 Fundur 1651 Bæjarráð / 11. júlí 2023 Fundur 1649 Bæjarráð / 27. júní 2023 Fundur 1648

Framleitt af pallih fyrir gogn.in