Hörgársveit
Félagsmála- og jafnréttisnefnd fundur nr. 22
= Félagsmála- og jafnréttisnefnd fundur nr. 22 =
Mánudaginn 11. september 2023 kl. 17:30 kom félagsmála- og jafnréttisnefnd Hörgársveitar saman til fundar á skrifstofu sveitarfélagsins í Þelamerkurskóla.
Fundarmenn: Sunna María Jónsdóttir formaður, Jóhanna María Oddsdóttir og Erla Björk Helgadóttir í félagsmála- og jafnréttisnefnd og Snorri Finnlaugsson sveitarstjóri sem ritaði fundargerð.
****
Þetta gerðist:
**1. Drög að samningi um málefni fatlaðs fólks og samningar um barnavernd**Lögð fram drög að samningi um málefni fatlaðs fólks en hann var til fyrri umræðu á síðasta sveitarstjórnarfundi. Jafnframt lagðir fram samningar um barnavernd. Þá var lögð fram samantekt um samningana frá KPMG sem er ráðgjafi sveitarfélagsins varðandi fyrirkomulag stoðþjónustu í félagsmálum. *Félagsmála- og jafnréttisnefnd áréttar mikilvægi þess að haft verði samráð við samstarfssveitarfélögin og að tekið verði tillit til þeirra athugasemda sem að KPMG hefur við samningsdrögin um málefni fatlaðs fólks.* *Þegar kemur að endurskoðun samninga um barnavernd verði tekið tillit til þeirra athugasemda KPMG sem gerðar voru við samningana.* **2. Reglur og gjaldskrá vegna akstursþjónstu**Lögð fram drög að reglum og gjaldskrá vegna akstursþjónstu, en sveitarstjórn samþykkti á síðasta fundi sínum að vísa tillögunum til félagsmála- og jafnréttisnefndar til umfjöllunar. *Félagsmála- og jafnréttisnefnd samþykkti að mæla með því við sveitarstjórn að reglurnar verði teknar upp frá 1. janúar 2024. Tillaga að gjaldskrá verði í samræmi við það sem rætt var á fundinum.* **3. Aðgengi fatlaðra**Rætt var um mikilvægi þess að aðgengi fatlaðra við íþróttamiðstöð og sundlaug verði bætt og úrbætur gerðar nú þegar. ****
Fleira gerðist ekki – fundi slitið kl. 18:25