Hörgársveit
Skipulags- og umhverfisnefnd fundur nr. 94
= Skipulags- og umhverfisnefnd fundur nr. 94 =
Þriðjudaginn 22. ágúst 2023 kl. 08:45 kom skipulags- og umhverfisnefnd Hörgársveitar saman til fundar á skrifstofu sveitarfélagsins.
Fundarmenn: Jón Þór Benediktsson formaður, Jóhanna María Oddsdóttir (vm), Ásrún Árnadóttir, Sunna María Jónasdóttir og Bjarki Brynjólfsson í skipulags- og umhverfisnefnd, Sigríður Kristjánsdóttir skipulagsfulltrúi, Vigfús Björnsson byggingarfulltrúi og Snorri Finnlaugsson sveitarstjóri.
Fundargerð ritaði Snorri Finnlaugsson, sveitarstjóri.
Þetta gerðist:
**1. Eyrarvík land V – beiðni um breytt staðfang (2305007)**
Lögð fram umsókn um nafnabreytingu á eigninni Eyrarvík V.
*Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti að leggja til við sveitarstjórn að samþykkt verði nafnabreyting á landnúmeri L-187948 úr Eyrarvík V í Sólvík.* **2. Hagaskógur 12 – beiðni um breytingu á deiliskipulagsskilmálum lóðar (2306002) **Erindi sem lagt var fram á síðast fundi lagt fram að nýju. Erindið var sent í grenndar-kynningu en engar athugasemdir bárust á grenndarkynningartímabili. *Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti að leggja til við sveitarstjórn að erindið verði samþykkt.* **3. Blómsturvellir – umsókn um framkvæmdaleyfi til efnislosunar (2306007)**
Lagt fram erindi frá Akeyrarbæ þar sem óskað eftir framkvæmdaleyfi efnislosunar í landi Blómsturvalla. Erindinu fylgja uppdrættir.
*Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti að leggja til við sveitarstjórn að heimilt verði að gefa út framkvæmdaleyfi fyrir efnislosun á 10.000 m3 að undangenginni grenndarkynningu * *samkvæmt 43. og 44. gr. skipulagslaga. Heimilt er að stytta grenndarkynningartímabil ef skriflegt samþykki berst frá öllum hagsmunaaðilum. Erindið telst samþykkt ef ekki berast andmæli.* * Jafnframt verði fundað með Akureyrarbæ um möguleika á efnislosun á öðrum svæðum.* **4. Syðri-Brennihóll – umsókn um stofnun íbúðarhúsalóðar (2306008)**
Lagt fram erindi þar sem óskað er eftir stofnun lóðar. Erindinu fylgir hnitsettur uppdráttur.
*Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti að leggja til við sveitarstjórn að stofnun lóðar að Syðri-Brennihóli L-152528, verði samþykkt í samræmi við meðfylgjandi uppdrátt og fái nafnið Hall.* **5. Endurheimt votlendis á Norðurlandi eystra - umsagnarbeiðni (2306009)**
Lagt fram yfirlit frá SSNE yfir upplýsingar um hvaða möguleikar eru til endurheimtar votlendis í landi sveitarfélaganna á Norðurlandi eystra.
*Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti að leggja til við sveitarstjórn að skipulagsfulltrúa verði falið að senda inn umsögn.* **6. Dalvíkurlína 2 – breyting á Aðalskipulagi Akureyrar 2018-2030 – umsagnarbeiðni (2307001)**
Lagt fram erindi frá Akureyrarbæ þar sem óskað er umsagnar í breytingu á aðalskipulagi Akureyrar 2018-2030 vegna Dalvíkurlínu 2.
*Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti að leggja til við sveitarstjórn að skipulagsfulltrúa verði falið að senda inn umsögn. Gætt verði að tengingu á sveitarfélagamörkum.* **7. Dalvíkurlína 2 – breytt lega um Moldhaugaháls (2307002)**
Lagt fram erindi frá Landsneti þar sem óskað er eftir að breyta legu strengs og stígs um Moldhaugaháls.
*Afgreiðslu frestað.* **8. Skriðuland 2 – beiðni um breytt staðfang (2308002)**
Lögð fram umsókn um nafnabreytingu á eigninni Skriðuland 2 (lóð) F 235-6187 og L 223427 að breyta nafninu á landinu í Litlaland.
*Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti að leggja til við sveitarstjórn að samþykkt verði nafnabreyting á landnúmeri L-223427 úr Skriðuland 2 (lóð) í Litlaland.* **9. Þríhyrningur ll – umsókn um stofnun lóðar (2308004)**
Lagt fram erindi þar sem óskað er eftir stofnun lóðar. Erindinu fylgir hnitsettur uppdráttur.
*Afgreiðslu frestað og skipulagsfulltrúa falið að ræða við umsækjanda.* **10. Minnisvarði á Öxnadalsheiði (230311)**
Lögð að nýju fram umsókn um að fá að staðsetja minnisvarða á Öxnadalsheiði. Jafnframt er lögð fram umsögn frá Vegagerðinni þar sem fram kemur að Vegagerðin gerir ekki athugasemdir við uppsetningu minnisvarðans.
*Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti að leggja til við sveitarstjórn að samþykkt verði að * *Hörgársveit geri ekki athugasemd við að settur verði upp minnisvarði á Öxnadalsheiði þar sem Sesseljubúð stóð áður ( hnit N65°28’5” W18°41’53”), enda liggur fyrir umsögn Vegagerðarinnar þar sem ekki er gerð athugasemd við uppsetningu minnisvarðans.* **11. Landsnet – erindi v. Blöndulína 3 (2308005)**
Lagt fram erindi frá Landsneti þar sem óskað er eftir breytingu á aðalskipulagi Hörgársveitar 2012-2024 þannig að lega Blöndulínu 3 verði tekin til umfjöllunar, mörkuð um hana stefna í greinargerð skipulagsins í samræmi við aðalvalkost Landsnets og færð inn á skipulagsuppdrátt og einnig þær námur sem stefnt er að því að vinna efni úr. Erindinu fylgja upplýsingar um stöðu á viðræðum og samningum við þá landeigendur í Hörgársveit sem land eiga á línuleiðinni.
*Afgreiðslu frestað.*
Fleira gerðist ekki, fundi slitið kl. 10:20