Hörgársveit
Fjallskilanefnd fundur nr. 35
= Fjallskilanefnd fundur nr. 35 =
Þriðjudaginn 1. ágúst 2023 kl. 20:00 kom fjallskilanefnd Hörgársveitar saman til fundar á skrifstofu sveitarfélagsins í Þelamerkurskóla.
Fundarmenn: Arnar Ingi Tryggvason formaður, Jónas Þór Jónasson varaformaður, Agnar Þór Magnússon, Davíð Jónsson og Egill Már Þórsson nefndarmenn og Snorri Finnlaugsson, sveitarstjóri sem ritaði fundargerð.
Þetta gerðist:
**1. Álagning gangnadagsverka**
Lögð fram drög að álagningu fjallskila haustið 2023. Nefndin fór yfir drögin og gerði á þeim breytingar. Heildarfjöldi gangnadagsverka er 382. Samkvæmt síðustu forðagæsluskýrslu er alls um að ræða 6.655 kindur, sem er fækkun um 247 frá fyrra ári. Meðaltalsfjöldi kinda í dagsverki er því 17,4.
*Fjallskilanefnd samþykkti framlögð drög að álagningu fjallskila haustið 2023, með þeim breytingum sem gerðar voru á þeim á fundinum.* **2. Tímasetning gangna og rétta haustið 2023, frávik**
Rætt um tímasetningu gangna. Tímasetning gangna var samþykkt á fundi nefndarinnar þann 21. mars 2023. Frávik frá þeim dagsetningum koma fram á gangnaseðlum.
**3. Fundur með Skagfirðingum**
Fulltrúar Hörgársveitar og Skagafjarðar hittust á fundi í Þelamerkurskóla þann 24. júlí 2023 til að fara yfir sameiginleg mál varðandi fjallskil og gangnamál og fleira. Ákveðið var á þeim fundi hvernig staðið yrði að sameiginlegri smölun haustið 2023.
**4. Viðhald fjárrétta**
Rætt um stöðu mála varðandi ásigkomulag og viðhald fjárrétta.
**5. Ágangur búfjár**
Umræður um ágang búfjár, lausagöngu ofl.
Fleira gerðist ekki – fundi slitið kl. 22:30