Hörgársveit
Félagsmála- og jafnréttisnefnd fundur nr. 21
= Félagsmála- og jafnréttisnefnd fundur nr. 21 =
18.04.2023 16:00
Þriðjudaginn 18. apríl 2023 kl. 16:30 kom félagsmála- og jafnréttisnefnd Hörgársveitar saman til fundar á skrifstofu sveitarfélagsins í Þelamerkurskóla.
Fundarmenn: Sunna María Jónsdóttir formaður, Jóhanna María Oddsdóttir og Erla Björk Helgadóttir í félagsmála- og jafnréttisnefnd og Snorri Finnlaugsson sveitarstjóri sem ritaði fundargerð.
****
Þetta gerðist:
Jafnréttisáætlun Hörgársveitar 2022-2026
Lögð fram drög að áætlun og breytingum á eldri áætlun.
*Félagsmála- og jafnréttisnefnd samþykkir að leggja til við sveitarstjórn að jafnréttisáætlun Hörgársveitar 2022-2026 verði samþykkt eins og hún liggur fyrir.*
Stoðþjónusta í velferðarmálum
Umræður um fyrirkomulag stoðþjónustu sveitafélagsins í velferðarmálum.
*Sveitarstjóri kynnti umræður sem fram hafa farið á milli Akureyrarbæjar og nágrannasveitarfélaganna um endurnýjun á samningi um ráðgjafaþjónustu í velferðarmálum. Samningsdrög verða lögð fyrir nefndina þegar þau liggja fyrir.*
Fleira gerðist ekki – fundi slitið kl. 17:10