Hörgársveit
Skipulags- og umhverfisnefnd, fundur nr. 91
= Skipulags- og umhverfisnefnd, fundur nr. 91 =
Þriðjudaginn 21. mars 2023 kl. 08:45 kom skipulags- og umhverfisnefnd Hörgársveitar saman til fundar á skrifstofu sveitarfélagsins.
Fundarmenn: Jón Þór Benediktsson formaður, Agnar Þór Magnússon, Ásrún Árnadóttir, Bjarki Brynjólfsson og Ásgeir Már Andrésson (vm) í skipulags- og umhverfisnefnd, Sigríður Kristjánsdóttir skipulagsfulltrúi, Vigfús Björnsson byggingarfulltrúi og Snorri Finnlaugsson sveitarstjóri.
Fundargerð ritaði Snorri Finnlaugsson, sveitarstjóri.
**1. Moldhaugar/Skútar, deiliskipulag**
Nefndin hélt áfram umfjöllun um athugasemdir sem bárust vegna auglýsingar aðal- og deiliskipulagstillögu fyrir Moldhaugnaháls. Á fundi nefndarinnar þann 21. febrúar 2023 voru allar innkomnar athugasemdir afgreiddar að frátöldum einum lið í erindi frá Heilbrigðiseftirliti Norðurlands eystra. Fulltrúar sveitarfélagsins hafa nú fundað með HNE vegna athugasemdar sem snýr að skilmálum um umgengni á geymslusvæðið á deiliskipulaginu og fyrir liggur tillaga að úrbótum varðandi umgengnisreglur sem fram koma í kafla 3.11 í greinargerð auglýstrar skipulagstillögu.
*Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti að leggja til við sveitarstjórn að skilmálum verði bætt við umgengnisreglur í kafla 3.11 í greinargerð deiliskipulags í samræmi við sjónarmið sem fram komu í athugasemd HNE, sjá athugasemd 2b í 1. lið fundargerðar skipulags- og umhverfisnefndar frá 21. febrúar 2023. Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti að leggja til við sveitarstjórn að deiliskipulagstillaga sem breytt hefur verið á ofangreindan hátt, og samkvæmt afgreiðslu nefndarinnar á fyrrnefndum fundi á öðrum athugasemdum sem bárust vegna auglýsingar deiliskipulagstillögu, verði samþykkt skv. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og að skipulagsfulltrúa verði falið að fullnusta gildistöku skipulagsins.* **2. Glæsibær áfangi 3, skipulagslýsing**
Kynningartímabili skipulagslýsingar fyrir Glæsibær áfangi 3 í landi Glæsibæjar, sem að skilgreint er sem landbúnaðarsvæði lauk 3. mars sl. og bárust 21 erindi vegna málsins. Skipulags- og umhverfisnefnd fjallaði um innkomin erindi.
*Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti að leggja til við sveitarstjórn að skipulagshönnuði verði falið að hafa hliðsjón af innkomnum erindum við gerð skipulagstillögunnar.* *Jafnframt verði skipulagsfulltrúa falið að óska eftir sérfræðiúttekt á landbúnaðarlandi, skógrækt og áhrif aukinnar umferðar sem haft verði til hliðsjónar við vinnslu skipulagstillögunnar.* **3. Lækjarvellir land 2, breyting á deiliskipulagi**
Kynning á fyrirhuguðum breytingum á deiliskipulagi stendur yfir.
*Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við sveitarstjórn að deiliskipulagstillagan verði auglýst skv. * *1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, að lokinni kynningu.* **4. Akureyrarbær, svæði fyrir litabolta í landi Blómsturvalla**
Framhald umræðu frá síðasta fundi. Lagðar fram upplýsingar sem óskað var eftir.
Tillaga að bókun:
*Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti að leggja við sveitarstjórn að vísa erindinu í grenndarkynningu samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Heimilt verði að stytta grenndarkynningartímabil ef allir hagsmunaaðilar lýsa því yfir skriflega að ekki sé gerð athugasemd við áformin. Ef ekki berast andmæli á grenndarkynningartímabili verði ekki gerð athugasemd við að litboltasvæðið verði sett upp í samræmi við ábendingar frá Vinnueftirlitinu og Heilbrigðiseftiliti Norðurlands eystra. Jafnframt þarf viðkomandi að sækja um starfsleyfi hjá Heilbrigðiseftirliti Norðurlands eystra.* **5. Jötunheimar, afmörkun byggingarreits**
Lagt fram erindi þar sem óskað er eftir afmörkun byggingarreits fyrir gripahús.
Erindinu fylgir uppdráttur.
*Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti að leggja til við sveitarstjórn að afmörkun byggingarreits verði samþykkt í samræmi við framlagðan uppdrátt.* **6. Brekkuhús 7 og 8 Hjalteyri ósk um breytingu á deiliskipulagi**
Tillaga að breytingu lögð fram. Um er að ræða óverulega breytingu á deiliskipulagi.
*Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti að leggja til við sveitarstjórn að vísa erindinu í grenndarkynningu samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Heimilt verði að stytta grenndarkynningartímabil ef allir hagsmunaaðilar lýsa því yfir skriflega að ekki sé gerð athugasemd við áformin. Ef ekki berast andmæli á grenndarkynningartímabili telst erindið samþykkt.* **7. Þjóðvegur 1, Þelamörk – Akureyri, erindi frá Vegagerðinni**
Lögð fram og kynnt frumdrög frá Vegagerðinni að veglínu.
*Skipulags- og umhverfisnefnd tekur jákvætt í erindið og felur skipulagsfulltrúa að ræða við Vegagerðina um útfærslu.* **8. Erindi frá foreldrafélagi Þelamerkurskóla v. umferðarhraða**
Erindið lagt fram þar sem foreldrafélag Þelamerkurskóla lýsir yfir áhyggjum af miklum umferðarhraða í nágrenni skólans.
*Skipulags- og umhverfisnefnd tekur undir áhyggjur foreldrafélagsins og leggur til við sveitarstjórn að fulltrúar sveitarfélagsins ræði erindið við Vegagerðina og farið verði fram á úrbætur.* **9. Dagverðartunga/Tungusel, afmörkun lóðar**
Umsóknin lögð fram þar sem sótt er um afmörkun lóðar fyrir íbúðarhús. Umsókninni fylgir uppdráttur.
*Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti að leggja til við sveitarstjórn að afmörkun lóðarinnar í samræmi við uppdrátt, verði samþykkt enda verði þinglýst kvöð á umlykjandi land um vegtengingu og lagnir að lóðinni. Lóðin fái heitið Tungusel. Jafnframt verði samþykkt að heiti landnúmersins L-224562 verði breytt úr Tunguseli í Dagverðartunga 3* **10. Hjalteyri, umferðarhraði**
Rætt um framkvæmd aðgerða til að draga úr umferðarhraða bæði í íbúagötum og á vegi niður á eyri, með merkingum og hindrunum.
Fleira gerðist ekki, fundi slitið kl. 11:10