Reykjavíkurborg
Endurskoðunarnefnd - Fundur nr. 288
**Endurskoðunarnefnd**
Ár 2023, föstudaginn 17. nóvember var haldinn 288. fundur endurskoðunarnefndar Reykjavíkurborgar. Fundurinn var fjarfundur og hófst kl. 10:00. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum með rafrænum hætti með vísan til heimildar í 2. málsl. 4. mgr. 44. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar sbr. 3. mgr. 17. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011: Sigrún Guðmundsdóttir og Sunna Jóhannsdóttir. Einar S Hálfdánarson, Lárus Finnbogason boðuðu forföll.
Fundarritari var Hallur Símonarson
**Þetta gerðist:**
Fram fer kynning á árshlutareikningi Orkuveitu Reykjavíkur fyrir tímabilið 1. jan. 2023 – 30. sept. 2023. IER23050024
Arna Vigdís Jónsdóttir, Benedikt K Magnússon, Bryndís María Leifsdóttir, Gylfi Magnússon og Hrafnhildur Fanngeirsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti.
Lögð fram drög að ráðningarbréfi ytri endurskoðenda 2023 - 2027 dags. nóvember 2023.
Samþykkt að vísa ráðningarbréfinu til afgreiðslu borgarstjóra
**Fundi slitið kl. 10:53**
Sunna Jóhannsdóttir Sigrún Guðmundsdóttir
**PDF útgáfa fundargerðar Fundargerð endurskoðunarnefndar 17. nóvember 2023**