Vopnafjarðarhreppur
Sveitarstjórn - 20
== Fundur nr. 20 ==
Kjörtímabilið 2022—2026
Kjörtímabilið 2022—2026
Félagsheimilinu Miklagarði kl. 13:00
Íris Edda Jónsdóttir ritaði fundargerð
AÓS
Aðalbjörg Ósk SigmundsdóttirNefndarmaður
BA
Bjartur AðalbjörnssonNefndarmaður
BM
Bobana MicanovicNefndarmaður
SGS
Sigurður Grétar SigurðssonNefndarmaður
KÓP
Kristrún Ósk PálsdóttirNefndarmaður
BHS
Björn Heiðar SigurbjörnssonNefndarmaður
AÖS
Axel Örn SveinbjörnssonNefndarmaður
SES
Sara Elísabet SvansdóttirSveitarstjóri
ÍEJ
Íris Edda JónsdóttirRitari
BK
Baldur KjartanssonFjármálastjóri
Fundur haldinn í sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps 16. nóvember 2023 í félagsheimilinu Miklagarði kl 13:00. Til máls tóku: Bjartur Aðalbjörnsson og Axel Örn Sveinbjörnsson.
Sveitarstjóri mælti fyrir fjárhagsáætlun.
Lögð fram til fyrri umræðu tillaga að fjárhagsáætlun Vopnafjarðarhrepps fyrir árið 2024 ásamt
þriggja ára fjárhagsáætlun fyrir árin 2025 til 2027.
Til máls tóku: Sara Elísabet Svansdóttir og Baldur Kjartansson.
Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum:
**Sveitarstjórn vísar fjárhagsáætlun Vopnafjarðarhrepps fyrir árið 2024 og 3ja ára áætlun fyrir árin 2025 til 2027 til síðari umræðu í sveitarstjórn.**
Til máls tóku: Bjartur Aðalbjörnsson, Sara Elísabet Svansdóttir , Baldur Kjartansson og Axel Örn Sveinbjörnsson.
Samþykkt samhljóða.
Fram lagður viðauki 2 við fjárhagsáætlun 2023.
Ekki er um að ræða breytingu á afkomu A eða AB hluta né sjóðstreymiáhrif þar sem áhrif viðaukans er innan aðalsjóðs.
Viðauki 2 er til kostnaðarauka menningarmála um 1Mkr en á móti er kostnaðarlækkun í umhverfismálum um sömu upphæð, en viðaukinn er vegna gjafar Vopnafjarðarhrepps til Vopnafjarðarkirkju.
Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum:
** Sveitarstjórn samþykkir fyrirliggjandi viðauka við fjárhagsáætlun Vopnafjarðarhrepps 2023.**
Samþykkt samhljóða.
Lagt fram tilboð í snjómokstur í Vopnafjarðarhreppi frá Lækjarmótum, kt. 460319-1960 Eitt tilboð barst í snjómoksturinn.
Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum:
**Sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps samþykkir að samið verði við Lækjarmót ehf, kt. 460319-1960 um snjómokstur í Vopnafjarðarhreppi í samræmi við ** **tilboðið og felur sveitarstjóra að afgreiða erindið.**
Til máls tóku: Bjartur Aðalbjörnsson, Sara Elísabet Svansdóttir, Björn Heiðar Sigurbjörnsson og Axel Örn Sveinbjörnsson.
Axel Örn Sveinbjörnsson óskar eftir fundarhlé kl. 14:01. Samþykkt samhljóða. Fundur settur á ný 14:09.
Samþykkt samhljóða.
Lagt fram minnisblað frá forstöðumanni áhaldahúss varðandi tækjakaup í áhaldahúsi.
Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum: Sveitarstjórn samþykkir kaup á tækjabúnaði í áhaldahúsi og felur sveitarstjóra að stilla upp viðauka.
Til máls tóku: Björn Heiðar Sigurbjörnsson, Axel Örn Sveinbjörnsson og Bjartur Aðalbjörnsson.
Samþykkt samhljóða.
Framlagt til kynningar bréf frá Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga.
Framlagt samkomulag um skipan svæðisskipulagsnefndar Austurlands sem byggir á því að fulltrúar í stjórn Sambands sveitarfélaga á Austurlandi skipa svæðisskipulagsnefnd.
Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum:
** Sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps samþykkir tillögu að skipan svæðisskipulagsnefndar Austurlands.**
Samþykkt samhljóða.
Lagt fram bréf frá Þórdísi Þórarinsdóttur varðandi stöðu landbúnaðar í Vopnafjarðarhreppi.
Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum:
**Sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps lýsir yfir þungum áhyggjum af þeirri stöðu sem upp er komin í landbúnaði. Lækkun á afurðaverði, kostnaðarhækkanir, hækkun vaxta á liðnum árum, erfiðar aðstæður til nýliðunar, takmarkað aðgengi að lánsfé á hagstæðum vöxtum ti l fjárfestinga og fjöldi annarra samverkandi þátta hefur sett framtíð atvinnugreinarinnar í algert uppnám. Forsendur til rekstrar eru því brostnar, nauðsynleg nýliðun viðvarandi vandamál og tækifæri til fjárfesti nga lítil sem engin sem hamlar um leið allri nýsköpun í greininni. **
Til máls tók Axel Örn Sveinbjörnsson.
Samþykkt samhljóða.
Í október síðastliðnum kom upp tilfelli á Vopnafirði þar sem ekki var hægt að flytja sjúkling frá Vopnafirði með sjúkraflugi vegna þyngdartakmarkanna. Búnaður til sjúkraflutninga er gefin upp fyrir að hámarki 135 kg Mikilvægt er að endurskoða þessar kröfur hjá ráðuneytinu til þess að allir hafi jafnan kost á sjúkraflugi þegar þörf er á.
Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum:
**Sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps harmar að búnaður notaður til sjúkraflutninga með flugi henti ekki öllum sem gætu þurft að nota hann . Mikilvægt ** **er að kröfur heilbrigðisráðuneytisins til verktaka í sjúkraflugi verði endurskoðaðar og felur sveitarstjóra að senda bréf til heilbrigðisráðuneytisins þar sem krafist er þess að búnaðurinn verði uppfærður.**
Samþykkt samhljóða.
Lagt fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
Til máls tóku: Bjartur Aðalbjörnsson og Íris Edda Jónsdóttir
Lagt fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar.
Fleira ekki tekið fyrir og fundi slitið kl. 14:26