Fjarðabyggð
Bæjarráð - 823
**1. 2311106 - Veikindalaun 2023**
|Framlögð greinargerð ásamt tillögu um fjármögnun veikindalauna á fyrstu 10 mánuðum ársins 2023.|
Bæjarráð vísar tillögu um ráðstöfun á fjármagni til veikindalaun til gerðar viðauka.
**2. 2311104 - Fjárhagsáætlun 2023 - viðauki 4**
|Framlögð tillaga að viðauka nr. 4 við fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar á árinu 2023.|
Bæjarráð samþykkir viðauka fyrir sitt leyti og vísar honum til staðfestingar bæjarstjórnar.
**3. 2305047 - Starfs- og fjárhagsáætlun íþrótta- og tómstunda 2024**
|Vísað frá íþrótta- og tómstundanefnd til afgreiðslu bæjarráðs tillögu að starfs- og fjárhagsáætlun fyrir árið 2024.|
Vísað til fjárhagsáætlunargerðar.
**4. 2309168 - Gjaldskrá stuðningsþjónustu 2024**
|Vísað frá félagsmálanefnd til afgreiðslu bæjarráðs tillögu um breytingu á gjaldskrá stuðningsþjónustu með þeim breytingum sem samþykktar voru í starfs- og fjárhagsáætlun fyrir árið 2024.|
Bæjarráð samþykkir gjaldskrána og tekur hún gildi frá 1. janúar 2024.
[Garðsláttur 2024.pdf](
displaydocument.aspx?
itemid=hPDikY3B0ESokRt3ANbXfA&meetingid=8gxrwOEAPU6ia5zkppAK5Q1
&filename=Garðsláttur 2024.pdf)
**5. 2305070 - Starfs- og fjárhagsáætlun félagsmálanefndar 2024**
|Vísað frá félagsmálanefnd til afgreiðslu bæjarráðs starfs- og fjárhagsáætlun nefndarinnar með tillögu að breytingum á tekjuhlið barnaverndarþjónustu.|
Vísað til fjárhagsáætlunargerðar 2024.
**6. 2305061 - Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2024**
|Farið yfir breytingar á fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar árin 2024-2027 fyrir síðari umræðu í bæjarstjórn 30.11.2023. |
Fram lagt og kynnt.
[Þjóðhagsspá í Nóvember 2023.pdf](
displaydocument.aspx?
itemid=YlwQtzZBC0eimzNroCaAGg1&meetingid=8gxrwOEAPU6ia5zkppAK5Q1
&filename=Þjóðhagsspá í Nóvember 2023.pdf)
**7. 2302095 - Umsókn um stofnframlög á árinu 2023**
|Lagðar fram til afgreiðslu tvær umsóknir um stofnframlög til tveggja íbúðaverkefna á Reyðarfirði og Neskaupstað í samstarfi við Húsnæðis- og mannvirkjastofnun sbr. samþykkt bæjarráðs frá 9. október 2023. Stofnunin óskar eftir staðfestingu Fjarðabyggðar um úthlutun á stofnframlagi til verkefnanna.|
Bæjarráð staðfestir framlög Fjarðabyggðar til verkefna og felur bæjarstjóra undirritun staðfestinga.
**8. 2309191 - Vinnustaðagreining 2023**
|Framlagðar til kynningar niðurstöður vinnustaðagreiningar fyrir stofnanir Fjarðabyggðar ásamt minnisblaði.|
**9. 2311127 - Efling dreifbýlis**
|Framlögð til kynningar samantekt frá íbúafundi Austurbrúar vegna verkefnsins Vatnaskil sem er verkefni um nýsköpun og fjölbreyttara atvinnulíf í dreifbýli á Austurlandi með sérstaka áherslu á ungt fólk. Að baki verkefninu standa Samband sveitarfélaga á Austurlandi, Búnaðarsamband Austurlands og Félag ungra bænda á Austurlandi. |
[vatnaskil_samantekt.pdf](
displaydocument.aspx?
itemid=Hs5HaEWCUk6rf_vGgciq4Q&meetingid=8gxrwOEAPU6ia5zkppAK5Q1
&filename=vatnaskil_samantekt.pdf)
**10. 2305168 - Til umsagnar 497. frumvarp til laga um breytingu á kosningalögummál (kosningaaldur)**
|Vísað frá ungmennaráði til kynningar í bæjarráði niðurstöðu þess um breytingu á kosningalögum. Ungmennaráð telur að ef það eigi að lækka kosningaaldurinn sé mikilvægt að kynna fyrir öllum 16-18 ára hvað felst í því að kjósa og hvað þarf að hafa í huga. Þó velta þau fyrir sér hvort fólk á þessum aldri séu komin með þroska til að taka þátt í kosningum.|
**11. 2311138 - Til umsagnar 468. mál frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis**
|Framlagt til kynningar Þingskjal 509, 468. mál. stjórnarfrumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum um skatta og gjöld o.fl. (gistináttaskattur, áfengisgjald o.fl.). |
[0509.pdf](
displaydocument.aspx?
itemid=0zwr2JaT3kG5RKRfOAbJbw&meetingid=8gxrwOEAPU6ia5zkppAK5Q1
&filename=0509.pdf)
**12. 2311132 - Til umsagnar 478. mál frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis**
|Framlagt til umsagnar frumvarp til laga um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga, 478. mál.|
Framlagt til kynningar.
[0526.pdf](
displaydocument.aspx?
itemid=_D_Z4ylOUmhodFyfyBPnQ&meetingid=8gxrwOEAPU6ia5zkppAK5Q1
&filename=0526.pdf)
[Þingskjal 526 478 mál.pdf](
displaydocument.aspx?
itemid=tsRtC5YOL0memEpfbQn1IA&meetingid=8gxrwOEAPU6ia5zkppAK5Q1
&filename=Þingskjal 526 478 mál.pdf)
**13. 2311010F - Félagsmálanefnd - 172**
|Fundargerð félagsmálanefndar frá 14. nóvember lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.|
**13.1. 2309168 - Gjaldskrá stuðningsþjónustu 2024**
**13.3. 2311096 - Skýrsla stjórnenda - félagsmálanefnd**
**13.4. 2311011 - Barnvænt sveitarfélag yfirlýsing**
**14. 2311012F - Félagsmálanefnd - 173**
|Fundargerð félagsmálanefndar frá 17. nóvember lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.|
**14.1. 2305070 - Starfs- og fjárhagsáætlun félagsmálanefndar 2024**
**15. 2311008F - Íþrótta- og tómstundanefnd - 127**
|Fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar frá 13. nóvember lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu. |
**15.1. 2311011 - Barnvænt sveitarfélag yfirlýsing**
**15.2. 2305047 - Starfs- og fjárhagsáætlun íþrótta- og tómstunda 2024**
**15.3. 2310033F - Ungmennaráð - 8**
**15. 2310033F - Ungmennaráð - 8**
|Fundargerð ungmennaráðs frá 1. nóvember lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.|