Fjarðabyggð
Umhverfis- og skipulagsnefnd - 39
**1. 2311135 - Opnunartími Móttökustöðva**
|Tillögur að nýjum opnunartíma mótökustöðva. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir tillögu 2 með þeim breytingum sem gerðar voru á fundinum.|
[Hugmynd að opnunartíma.xlsx - Tillaga 2.pdf](
displaydocument.aspx?
itemid=Mngs3mRqMEfemOrluJN3w1&meetingid=lnYKO8FXMEqC1dPAYY4r4Q1
&filename=Hugmynd að opnunartíma.xlsx - Tillaga 2.pdf)
**2. 2302021 - Úrgangsmál 2023 - kynningaefni og fleira**
|Umræða um útfærslu á flokkunarílátum við heimili, t.d. 4 tunnu eða körfu. Umhverfis- og skipulagsnefnd stendur við ákvörðun sína um að leita allra leiða til að bæta ekki við fjórðu tunnunni. Nefndin felur verkefnastjóra umhverfismála að leggja fyrir minnisblað um útfærslu á fjórða flokkunaríláti við heimili í Fjarðabyggð.|
**3. 2311068 - Umsókn um lóð Blómsturvellir 31 (29)**
|Umsókn um lóð Blómsturvellir 31. Umhverfis- og skipulagsnefnd frestar úthlutun á lóð við Blómsturvelli 31. |
[740 Blómsturvellir 31 LB.pdf](
displaydocument.aspx?
itemid=vIph7hLTvUuklMx7XXNcUA1&meetingid=lnYKO8FXMEqC1dPAYY4r4Q1
&filename=740 Blómsturvellir 31 LB.pdf)
**4. 2311067 - Umsókn um lóð Vallargerði 11-13**
|Umsókn um lóð Vallargerði 11-13. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir lóðarúthlutunina og vísar erindinu í bæjarráð.|
[730 Vallargerði 11-13 LB.pdf](
displaydocument.aspx?
itemid=XMNu5k5ybk29LGDKsRvs_A&meetingid=lnYKO8FXMEqC1dPAYY4r4Q1
&filename=730 Vallargerði 11-13 LB.pdf)
**5. 2311066 - Umsókn um lóð Nesgata 34**
|Umsókn um lóð Nesgata 34. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir lóðarúthlutunina og vísar erindinu í bæjarráð.|
[740 Nesgata 34 LB.pdf](
displaydocument.aspx?
itemid=isxKicGx30mVsqPzDXrfA&meetingid=lnYKO8FXMEqC1dPAYY4r4Q1
&filename=740 Nesgata 34 LB.pdf)
**6. 2310191 - Athugasemd v. gangbrautar í Neskaupstað**
|Ungmennaráð vísar til umhverfis- og skipulagsnefndar tillögu að nýrri staðsetningu gangbrautar við Nesgötu 38, Neskaupstað / Heimavist VA. Umhverfis- og skipulagsnefnd tekur vel í að færa gangbraut á öruggari stað. Nefnin leggur til að gangbrautin verði færð ofar, með því er hægt að nýta núverandi göngustíg. Umhverfis- og skipulagsnefnd felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að útfæra gangbraut og leggja nýja tillögu fyrir ungmennaráð.|
[Athugasemd ungmennaráðs v. gangbrautar í Neskaupstað.pdf](
displaydocument.aspx?
itemid=ihoQiotaLUuHWWU8MWfEMQ&meetingid=lnYKO8FXMEqC1dPAYY4r4Q1
&filename=Athugasemd ungmennaráðs v. gangbrautar í Neskaupstað.pdf)
**7. 2311025 - Ósk um kaup á hundahóteli Kollaleiru**
|Ósk um kaup á hundahóteli Kollaleiru. Umhverfis- og skipulagsnefnd vísar erindinu í bæjarráð.|
**8. 2302173 - Hafnargata 36 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi**
|Framlagt bréf íbúa við Búðagötu 24 sem varðar byggingu hljóðmannar Loðnuvinnslunnar að Hafnargötu 36. Umhverfis- og skipulagsnefnd hafði til hliðsjónar aðaluppdrætti þegar hún afgreiddi byggingarleyfi. Nefndin var meðvituð um raunverulega hæð á hljóðmöninni í samræmi við aðaluppdrátt. |
Fyrir liggja mælingar frá Eflu dagsett 30.10.2023 og Mannvit 10.11.2023 sem staðfesta rétta hæð í samræmi við aðaluppdrátt.
**9. 2310174 - Framkvæmdaleyfi fyrir lagningu rafstrengs í jörð**
|Framkvæmdaleyfi fyrir lagningu rafstrengs í jörð. Umhverfis- og skipulagsnefnd felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi að þeim forsemdum gefnum að helgunarsvæði sem nú þegar er til staðar við Stuðlalínu 2 stækki ekki og þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað. Umhverfis- og skipulagsnefnd hvetur Rarik til að gera göngustíg samhliða framkvæmdinni í samráði við skipulagsfulltrúa. |
[Umsókn um framkvæmdarleyfi - vegalagning, gönguslóðar og fleira.pdf](
displaydocument.aspx?
itemid=inj68gEmZEmY4bIi1Xjd_w&meetingid=lnYKO8FXMEqC1dPAYY4r4Q1
&filename=Umsókn um framkvæmdarleyfi - vegalagning, gönguslóðar og fleira.pdf)
[Yfirlitsmynd.pdf](
displaydocument.aspx?
itemid=12Y71yNIN0uN40zLKIxepQ&meetingid=lnYKO8FXMEqC1dPAYY4r4Q1
&filename=Yfirlitsmynd.pdf)
[Leyfi og umsagnir.pdf](
displaydocument.aspx?
itemid=x_UboQanJk6kn4HMe1Hlsg&meetingid=lnYKO8FXMEqC1dPAYY4r4Q1
&filename=Leyfi og umsagnir.pdf)