Akraneskaupstaður
Skipulags- og umhverfisráð 283. fundur
[s. 433 1000](tel:4331000) [Vefir Akraneskaupstaðar](#)
= Skipulags- og umhverfisráð =
Dagskrá
=== 1.Jaðarsbakkar - Íþróttahús uppsteypa og ytri frágangur ===
2309262
Vettvangsskoðun í nýja íþróttahúsið að Jaðarsbökkum.
Skipulags- og umhverfisráð þakkar fyrir góða yfirferð og skemmtilega heimsókn.
=== 2.Æðaroddi - rekstrarhringur og brú (Dreyri) ===
2311169
Fulltrúi frá hestamannafélaginu Dreyra kynnir hugmyndir um rekstrarhring og brú yfir Flæðilæk.
Skipulags- og umhverfisráð felur garðyrkjustjóra áframhaldandi vinnu við málið hvað varðar rekstrarhring og lokun Elínarvegar.
Varðandi beiðni um brú yfir Flæðilæk og áframhaldandi reiðstíg þá samræmist það ekki gildandi aðalskipulagi Akraneskaupstaðar 2021-2033 og getur ráðið því ekki orðið við þessari beiðni að svo stöddu.
Varðandi beiðni um brú yfir Flæðilæk og áframhaldandi reiðstíg þá samræmist það ekki gildandi aðalskipulagi Akraneskaupstaðar 2021-2033 og getur ráðið því ekki orðið við þessari beiðni að svo stöddu.
=== 3.Tjaldsvæði í Kalmansvík ===
2203220
Beiðni um framlengingu samnings um rekstur á tjaldsvæði.
Skipulags- og umhverfisráð leggur til við bæjarráð að framlengja samning um rekstur tjaldsvæðisins við Landamerki ehf. til 30. apríl 2025.
=== 4.SogU - slæm umgengni (kvartanir vegna þess) ===
2301069
Ábendingar um slæma umgengi á Jaðarsbökkum og víðar.
Skipulags- og umhverfisráð þakkar fyrir góðar og þarfar ábendingar. Ráðið felur garðyrkjustjóra að útbúa aðgerðaráætlun og leggja fyrir á næsta fundi ráðsins.
=== 5.Deiliskipulag Jaðarsbakkar og frumhönnun ===
2304154
Áframhaldandi vinna við skipulag á Jaðarsbökkum. Farið yfir næstu skref verkefnis og greinagerð skipualagsfulltrúa lögð fram vegna vals á ráðgjöfum fyrir skipulag á Jaðarsbökkum.
Skipulags- og umhverfisráð leggur til við bæjarstjórn að ganga til samninga við Basalt arkitekta varðandi deiliskipulagsvinnu á Jaðarsbökkum samanber greinargerð skipulagsfulltrúa. Ráðið mun bjóða framkvæmdastjóra og fulltrúa stjórnar ÍA og KFÍA (2 aðilar frá hvoru félagi) að sitja fundi skipulags- og umhverfisráðs sem áheyrnarfulltrúar reglulega undir þessum málslið, þar til skipulagsvinna klárast.
=== 6.Deiliskipulag Akratorg Kirkjubraut 1 - umsókn til skipulagsfulltrúa ===
2309252
Umsókn lóðarhafa að Kirkjubraut 1, um að fremri byggingin á lóðinni við Kirkjubraut 1 verði í heild sinni klædd að utan með báruklæðningu, með þeim formerkjum að allur frágangur á klæðningu verði í samræmi við byggingarstíl frá þeim tíma sem húsið er byggt.
Umsóknin var grenndarkynnt skv. 2 mgr. 43. gr skipulagslaga nf. 123/2010. frá 16. október til 16. nóvember 2023 fyrir lóðarhöfum
að Kirkjubraut 2, 3 og 4-6, Skólabraut 37 og Heiðargerði 6 og 8. Þrjú samþykki bárust.
Umsóknin var grenndarkynnt skv. 2 mgr. 43. gr skipulagslaga nf. 123/2010. frá 16. október til 16. nóvember 2023 fyrir lóðarhöfum
að Kirkjubraut 2, 3 og 4-6, Skólabraut 37 og Heiðargerði 6 og 8. Þrjú samþykki bárust.
Skipulags- og umhverfisráð leggur til við bæjarstjórn að deiliskipulagsbreytingin verði samþykkt, send Skipulagsstofnun og auglýst í B-deild Stjórnartíðinda.
Allur kostnaður sem hlýst af breytingunni er í höndum lóðarhafa.
Allur kostnaður sem hlýst af breytingunni er í höndum lóðarhafa.
=== 7.Kirkjubraut 4-6 n.h. breyting í íbúðir - fyrirspurn til skipulagsfulltrúa ===
2309253
Fyrirspurn lóðarhafa Kirkjubrautar 4-6 um að breyta hluta húnsæðis í íbúðir skv. meðfylgjandi uppdráttum. Breytingin felst í að þremur íbúðum, einni þriggja herbergja, einni tveggja herbergja og einni 9 herbergja verður komið fyrir á neðstu hæð hússins.
Skipulags- og umhverfisráð tekur neikvætt í fyrirspurnina, þar sem fyrir liggur stefnumótun í aðalskipulagi um miðbæjarstarfsemi á svæðinu.
=== 8.Vatnsrannsóknir á Akranesi ===
2306149
Áætlun frá Verkís yfir áframhaldandi rannsóknir lögð fram.
Skipulags- og umhverfisráð felur umhverfisstjóra að semja við Verkís um næsta áfanga í samræmi við áætlun þeirra.
=== 9.Flóahverfi - gatnagerð ===
2104080
Yfirferð á stöðu framkvæmda i gatnagerð í Flóahverfi.
Umhverfisstjóri kynnti stöðu framkvæmda, en vangaveltur eru um legu háspennustrengs í gegnum hverfið.
=== 10.Suðurgata 57 - gamla Landsbankahúsið ===
2301247
Framtíð gamla Landsbankahússins.
Skipulags- og umhverfisráð leggur til við bæjarráð að auglýsa eftir áhugasömum aðilum varðandi framtíðarnotkun á Suðurgötu 57.
Fundi slitið - kl. 20:30.