Fjarðabyggð
Hafnarstjórn - 305
**1. 2009216 - Rex NS 3 endurgerð og ástandsmat**
|Lagt fyrir að nýju. Á 303. fundi hafnarstjórnar var hafnarstjóra og verkefnastjóra hafna falið að ræða við Guðmund Guðlaugsson vegna erindis hans og leggja fyrir hafnarstjórn. Hafnarstjórn samþykkir flutning á Rex til endurbóta á grundvelli tilboðs Guðmundar.|
**2. 2204049 - Beiðni um nýja flotbryggju**
|Lagt fyrir að nýju. Á 277. fundi hafnarstjórnar var tekið fyrir erindi frá Siglingaklúbbi Austurlands vegna flotbryggju við aðstöðu klúbbsins á Eskifirði og var framkvæmdasviði falið að skoða mögulegar lausnir og leggja fyrir hafnarstjórn að nýju. Hafnarstjórn samþykkir tilboð Guðmundar Guðlaugssonar í gerð flotbryggju. |
**3. 2310174 - Framkvæmdaleyfi fyrir lagningu rafstrengs í jörð**
|Lagt fram til kynningar. Umhverfis- og skipulagsnefnd tók á 39. fundi sínum fyrir ósk Rarik um leyfi fyrir lagningu 11 kV rafstrengs í jörð frá aðveitustöð í Eskifirði að Mjóeyrarhöfn og hefur falið umhverfis- og skipulagsfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi.|
**4. 2311220 - Sérstakt strandveiðigjald til hafna 2023**
|Tilkynning frá Fiskistofu um greiðslu strandveiðigjalds til hafna lögð fram til kynningar.|
**5. 2301196 - Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2023**
|Lögð fram til kynningar fundargerð 458. fundar Hafnasambands Íslands|