Hörgársveit
Sveitarstjórn fundur nr. 157
= Sveitarstjórn fundur nr. 157 =
Fimmtudaginn 7. desember 2023 kl. 10:00 kom sveitarstjórn Hörgársveitar saman til fundar á skrifstofu sveitarfélagsins í Þelamerkurskóla.
Fundarmenn: Axel Grettisson oddviti, Jón Þór Benediktsson, Ásrún Árnadóttir, Sunna María Jónasdóttir og Jónas Þór Jónasson.
Fundarritari: Snorri Finnlaugsson sveitarstjóri
Þetta gerðist:
**1. Fundargerð afgreiðslufundar SBE frá 64. fundi**Fundargerðin lögð fram. **2. Fundargerðir stjórnar Samb. ísl. sveitarfélaga frá 938. og 939. fundi**Fundargerðirnar lagðar fram. **3. Fundargerð HNE frá 232. fundi**Fundargerðin lögð fram. **4. Jónasarlundur, erindi, fundargerð og ársreikningur**Lögð fram fundargerð ársfundar stjórnar Jónasarlundar ásamt ársreikningi 2022. Einnig lagt fram erindi frá stjórninni er varðar framtíðar rekstur á Jónasarlundi. **5. Óbyggðanefnd bréf**Bréfið lagt fram, en það varðar kynningu á kröfum Óbyggðarnefndar í þjóðlendumálum. Sveitarfélagið hefur þegar hafnað kröfum nefndarinnar og fer lögmaður sveitarfélagsins með málið fyrir hönd Hörgársveitar. **6. SSNE, samgöngustefna**Lögð fram samgöngu- og innviðastefna Norðurlands eystra sem gefin hefur verið út af SSNE. **7. Markaðsstofa Norðurlands, alþjóðlegt flug til Norðurlands**Lagt fram minnisblað frá Markaðsstofu Norðurlands er varðar beint alþjóðlegt flug til Norðurlands. **8. Sýslumaðurinn Norðurlandi eystra, umsögn v. tækifærileyfis**Lagt fram erindi þar sem óskað er eftir umsögn vegna umsóknar um tækifærisleyfi til skemmtanahalds vegna þorrablóts í íþróttahúsinu á Þelamörk í Hörgársveit þann 03.02.2024. *Sveitarstjórn samþykkti að gera ekki athugasemd fyrir sitt leyti við að leyfið verði veitt.* **9. Líforkugarðar ehf, tilnefning í stjórn**Lagt fram minnisblað frá SSNE varðandi Líforkugarða ehf og ósk um tilnefningu á stjórnarmanni frá Hörgársveit. *Sveitarstjórn samþykkti að tilnefna Jónas Þór Jónasson sem fulltrúa Hörgársveitar og Axel Grettisson til vara.* **10. KPMG, greinargerð v. fjárfestinga**Lögð fram greinargerð frá KPMG vegna mikilla fjárfestinga , sbr. 66. gr. sveitarstjórnarlaga.
Greinargerðin fjallar um fyrirhugaðar endurbætur á heimavistarálmu Þelamerkurskóla og er niðurstaðan sú að þær framkvæmdir hafi ekki þau áhrif á rekstur og fjárhag sveitarfélagsins að þær rúmist ekki innan þess sem gert er ráð fyrir í fjárhagsáætlunum fyrir árin 2024-2027.
**11. Þelamerkurskóli, endurbygging heimavistarálmu**Lögð fram drög að verksamningi við Tréverk ehf. um vinnu við 2. hæð endurbyggingar sem aðalverktaki í því verki. Samningnum fylgir tilboðsskrá dags. 30.11.2023 *Sveitarstjórn samþykkti samninginn.* **12. Akstursþjónusta, reglur og gjaldskrá**Reglur um akstursþjónustu voru samþykktar í sveitarstjórn í september 2023 og taka þær gildi frá 1.1.2024. *Sveitarstjórn samþykkti eftirfarandi gjaldskrá fyrir árið 2024:* *Ein ferð akstursþjónustu fyrir fatlað fólk kr. 1.100* *Ein ferð annarrar akstursþjónustu kr. 1.700* *Gjald á km umfram 20 km kr. 185* **13. Barnaverndarþjónusta samningur, síðari umræða**Lögð fram samningsdrög sem voru til fyrri umræðu á síðasta fundi sveitarstjórnar. *Sveitarstjórn samþykkti fyrirliggjandi samningsdrög um Barnaverndarþjónustu Eyjafjarðar við síðari umræðu.* **14. Fundaáætlun 2024**Lögð fram fundaáætlun sveitarstjórnar 2024, ásamt fundaáætlun fyrir skipulags- og umhverfisnefnd. **15. Fjárhagsáætlun 2024 - 2027, síðari umræða**Fjárhagsáætlun aðalsjóðs, eignasjóðs og veitna fyrir árin 2024-2027 var tekin til síðari umræðu. Lögð fram tillaga að fjárhagsáætlun þessara ára. Þá var lögð fram greinargerð sveitarstjóra varðandi tillögu að fjárhagsáætlun. *Sveitarstjórn samþykkti framlagða tillögu að fjárhagsáætlun sveitarsjóðs og stofnana hans fyrir árin 2024-2027.* *Fjárhagsáætlunin gerir ráð fyrir að á árinu 2024 verði rekstrartekjur 1.234 millj. kr., að heildarrekstrarkostnaður verði 1.175 millj. kr. Heildar rekstrarafgangur verði því 59 millj.kr.* *Veltufé frá rekstri verði 137 millj. kr.* *Áætlað er að til framkvæmda og annarra eignabreytinga á árinu verði varið 290 millj. kr. Þar bera hæst framkvæmdir við endurbyggingu heimavistarálmu Þelamerkurskóla sem og framkvæmdir við gatnagerð og frágang svæða í Lónsbakkahverfi og að Lækjarvöllum.* *Ný lántaka er áætluð 180 millj. kr. á árinu 2024.* *Þá er áætlað að handbært fé í árslok 2024 verði 36 millj. kr.* *Fjárhagsáætlun fyrir árið 2025 gerir ráð fyrir að afgangur af rekstri verði 77 millj. kr., á árinu 2026 verði hann 78 millj. kr. og 74 millj. kr. á árinu 2027.*
Fleira gerðist ekki, fundi slitið kl. 12:05