Vopnafjarðarhreppur
Hreppsráð - 20
== Fundur nr. 20 ==
Kjörtímabilið 2022—2026
Kjörtímabilið 2022—2026
Skrifstofa Vopnafjarðarhrepps kl. 08:00
Sara Elísabet Svansdóttir ritaði fundargerð
BM
Bobana MicanovicNefndarmaður
AÓS
Aðalbjörg Ósk SigmundsdóttirNefndarmaður
BA
Bjartur AðalbjörnssonNefndarmaður
Fundur haldinn í hreppsráði Vopnafjarðarhrepps þann 8.desember 2023 á skrifstofu Vopnafjarðarhrepps kl. 08:00.
Fjármálastjóri og sveitarstjóri fóru yfir og kynntu drög að fjárfestingaráætlun Vopnafjarðarhrepps 2024-2027.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
**Hreppsráð Vopnafjarðarhrepps samþykkir að vísa drögum að fjárfestingaráætlun Vopnafjarðarhrepps fyrir árin 2024-2027 til samþykktar í sveitarstjórn.**
Samþykkt samhljóða.
Fyrir liggur tölvupóstur varðandi stöðu starfsmanns RARIK á Vopnafirði.
Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum:
**Hreppsráð mótmælir því að opinbert starf starfsmanns RARIK á Vopnafirði hafi ekki verið auglýst og stöðugildið fært yfir í Langanesbyggð og þar með lagt niður á Vopnafirði. Mjög mikilvægt er að fækka ekki opinberum störfum á landsbyggðinni sérstaklega þar sem mikilvægir innviðir eru til staðar. Hreppsráð skorar á RARIK að endurskoða ákvörðun sína.**
Samþykkt samhljóða.
Lagt fram til kynningar uppsagnarbréf forstöðumanns áhaldahúss.
Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum:
**Hreppsráð þakkar Gunnþóri K. Guðfinnssyni fyrir vel unnin störf og óskar honum velfarnaðar í störfum hans á nýjum vettvangi.**
Lögð fram beiðni frá Kennarasambandi Íslands um þátttöku sveitarfélagsins í samstarfsverkefni um vinnuumhverfi starfsfólks í leik- og grunnskólum.
Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum:
**Hreppsráð samþykkir að leikskólinn Brekkubær óski eftir þátttöku í verkefninu.**
Samþykkt samhljóða.
Lögð fram til kynningar samantekt á viðburðinum, Vatnaskil, samtal um framtíðartækifæri í sveitum Austurlands.
Stjórnendamælaborð
Vopnafjarðarhrepps lagt fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
Fleira var ekki tekið fyrir og fundi slitið kl. 9:30.