Vopnafjarðarhreppur
Menningar- og atvinnumálanefnd - 16
== Fundur nr. 16 ==
Kjörtímabilið 2022—2026
Kjörtímabilið 2022—2026
Skrifstofa Vopnafjarðarhrepps kl. 08:30
Íris Edda Jónsdóttir ritaði fundargerð
FBF
Fanney Björk FriðriksdóttirNefndarmaður
HG
Hreiðar GeirssonNefndarmaður
RLG
Ragna Lind GuðmundsdóttirNefndarmaður
SB
Sigríður BragadóttirNefndarmaður
HBÓ
Hafdís Bára ÓskarsdóttirNefndarmaður
USÖS
Urður Steinunn Önnudóttir SahrNefndarmaður
ÍEJ
Íris Edda JónsdóttirRitari
ABB
Arna Björg Bjarnadóttirf.h. Matarkjarnaverkefnis Austurbrúar
Fundur haldinn í menningar- og atvinnumálanefnd Vopnafjarðarhrepps 10.01.2024 á skrifstofu Vopnafjarðarhrepps kl 8:30. Einnig sat fundinn Arna Björg Bjarnadóttir, verkefnastjóri Matarkjarnaverkefnis í lið a. og Íris Edda Jónsdóttir, verkefnastjóri stjórnsýslu, sem ritaði fundargerð.
Verkefnið
*Matarkjarni á Vopnafirði,* sem er á vegum Austurbrúar er verkefni sem miðar að því að kanna áhuga fólks til að koma á fót virkum matarkjarna (deilivinnslu eða deilieldhúsi) á Vopnafirði.
Arna Björg Bjarnadóttir, verkefnastjóri Matarkjarnaverkefnis, mætti á fund og kynnti verkefnið.
Arna Björg Bjarnadóttir yfirgefur fund kl. 09:08.
Lögð eru fram drög að úthlutunarreglum menningarsjóðs Vopnafjarðar. Um er að ræða menningarsjóð sem er ætlaður til að efla og styðja við verkefni á sviði menningar-, lista- og ferðamála á Vopnafirði.
Mikil umræða átti sér stað og ýmsar hugmyndir um breytingar. Engin breytingartillaga var lögð fram og erindið ekki lagt fram til samþykktar.
Starfsmanni nefndarinnar falið að vinna úr umræðupunktum fyrir ný drög.
Málinu er vísað til næsta fundar menningar- og atvinnumálanefndar.
Mannamót markaðsstofanna verður haldið í Kópavogi 18. janúar. Formaður og starfsmaður menningar- og atvinnumálanefndar fara fyrir hönd Vopnafjarðarhrepps.
Rætt var um uppsetningu og áhersluatriði í markaðssetningu fyrir Vopnafjarðarhrepp.
Lögð voru fram drög að fundardagskrá menningar- og atvinnumálanefndar fyrir árið 2024. Fundir verða haldnir að jafnaði annan miðvikudag í mánuði kl. 08:30.
Fundardagskrá samþykkt af menningar- og atvinnumálanefnd og lögð fyrir sveitarstjórn til samþykktar.
Fleira var ekki tekið fyrir og fundi slitið kl. 10:01