Ísafjarðarbær
Umhverfis- og framkvæmdanefnd 141. fundur
= Umhverfis- og framkvæmdanefnd =
Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir
[aðrar fundargerðir](https://www.isafjordur.is/is/stjornsysla/stjornsyslan/fundargerdir/eldri-fundargerdir)
Dagskrá
=== 1.Sorpmál - eftirlit og skýrslur 2024 - 2024010050 ===
Sigurður Óskarsson og Unnar Hermannsson frá Kubbi ehf. koma til fundar að ræða framkvæmd verksamnings Ísafjarðarbæjar og Kubbs ehf.
=== 2.Sláttur opinna svæða 2024 - 2023110022 ===
Lagt fram minnisblað umhverfis- og eignasviðs um tilhögun útboðs á slætti á opnum svæðum í sveitarfélaginu.
Nefndin leggur til að útboði verði skipt upp eftir byggðakjörnum.
=== 3.Efnisnámur í Ísafjarðarbæ - 2024010016 ===
Lagt fram minnisblað umhverfis- og eignasviðs, dags. 4. janúar 2024, um efnisnámur í sveitarfélaginu.
Nefndin leggur áherslu á að gengið sé frá námusvæðum sem hætt er að nýta í samræmi við samninga. Nefndin leggur til sameiginlegan fund með skipulags- og mannvirkjanefnd um framtíð náma í Skutulsfirði.
=== 4.Tjaldsvæði í Tungudal - útboð 2024 - 2024010013 ===
Umræður um útboð tjaldsvæða í Tungudal í Skutulsfirði og á Flateyri.
Nefndin leggur til að skoðað verði að bjóða út rekstur tjaldsvæða til lengri tíma. Starfsmanni falið að taka saman gögn um reynslu annarra sveitarfélaga af lengri verksamningum.
=== 5.Mjósund - hreinsun jarðvegs - 2023110072 ===
Lagt fram bréf Olíudreifingar, dags. 4. janúar 2024, varðandi skil á lóðum við Mjósund á Ísafirði.
Lagt fram til kynningar.
Fundi slitið - kl. 12:00.
Er hægt að bæta efnið á síðunni?
Nefndin felur starfsmanni nefndar að kalla eftir frekari upplýsingum og leggja fyrir næsta fund.