Skagafjörður
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd
= Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd =
Dagskrá
=== 1.Styrkbeiðni vegna jólaballs á Hofsósi ===
2312208
Tekin fyrir styrkbeiðni frá Sæunni Hrönn fyrir hönd jólaballsnefndar vegna jólaballs á Hofsósi dagsett 21.12.2023.
Atvinnu-, menningar-, og kynningarnefnd samþykkir að styrkja jólaballsnefndina um fjárhæð 60.000 kr. Tekið af málaflokki 05713.

=== 2.Styrkbeiðni vegna jólaballs í Fljótum ===
2312214
Tekin fyrir styrkbeiðni frá Katrínu Sigmundsdóttur vegna jólaballs Fljótamanna dagsett 21.12.2023.
Atvinnu-, menningar-, og kynningarnefnd samþykkir að styrkja jólaballið um fjárhæð 60.000 kr. Tekið af málaflokki 05713.

=== 3.Stofnskrá Byggðasafns Skagfirðinga ===
2312180
Tekið fyrir erindi frá Berglindi Þorsteinsdóttur, safnstjóra Byggðasafns Skagfirðinga, varðandi uppfærslu á stofnskrá byggðasafnsins. Erindi dagsett 19.12.2023.
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd samþykkir framlagða stofnskrá fyrir sitt leiti og vísar henni til afgreiðslu sveitarstjórnar.

=== 4.Árskýrsla Héraðsskjalasafns Skagfirðinga 2023 ===
2401060
Lögð fram til kynningar ársskýrsla Héraðsskjalasafns Skagfirðinga fyrir árið 2023, dagsett 05.01.2024.
=== 5.Úthlutun byggðakvóta 2023-2024 ===
2312020
Tekið fyrir erindi frá Matvælaráðuneytinu, dagsett 01. desember 2023, vegna úthlutunar byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2023/2024.
Úthlutaður byggðakvóti til sveitarfélagsins Skagafjarðar er 145 tonn sem skiptast þannig: Hofsós 15 tonn, Sauðárkrókur 130 tonn. Ráðuneytið óskar eftir rökstuddum tillögum varðandi sérreglur um úthlutun byggðakvóta sveitarfélagsins eða einstakra byggðarlaga. Tillögum skal skilað fyrir 19. janúar 2024.
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd leggur til eftirfarandi breytingar á reglugerð nr. 849/2023 um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2023/2024 í sveitarfélaginu Skagafirði:
1. Nýtt ákvæði 4. greinar reglugerðarinnar verður (nýr málsl. bætist við 1. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar) svohljóðandi: "Hámarksúthlutun fiskiskipa yfir 50 brúttótonnum af því aflamarki sem fallið hefur innan viðkomandi sveitarfélags verður 10 þorskígildistonn á skip."
2. Ákvæði 2. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: "Afli sem er landað er í byggðarlagi úr fiskiskipum sem ekki eru skráð innan viðkomandi sveitarfélags, telst ekki til landaðs afla samkvæmt 1. mgr. "
3. Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: "Fiskiskipum er skylt að landa þeim afla sem telja á til byggðarkvóta innan sveitarfélagsins. "
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd felur starfsmönnum nefndarinnar að senda inn ofangreindar tillögur ásamt rökstuðningi til samþykktar sveitarstjórnar. Jafnframt leggur atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd áherslu á að byggðakvóti nýtist til atvinnu- og verðmætasköpunar í sveitarfélaginu. Verði brögð að því að úthlutaður byggðakvóti nýtist ekki innan sveitarfélagsins með framsali hans, getur komið til álita að á næsta fiskveiðiári leggi nefndin til að engar sérreglur verði settar um úthlutun byggðakvóta.

Fundi slitið - kl. 15:05.