Hörgársveit
Fjallskilanefnd fundur nr. 36
= Fjallskilanefnd fundur nr. 36 =
08.01.2024 20:00
Mánudaginn 8. janúar 2024 kl. 20:00 kom fjallskilanefnd Hörgársveitar saman til fundar á skrifstofu sveitarfélagsins í Þelamerkurskóla.
Fundarmenn: Arnar Ingi Tryggvason formaður, Jónas Þór Jónasson varaformaður, Agnar Þór Magnússon, Davíð Jónsson og Egill Már Þórsson nefndarmenn og Snorri Finnlaugsson, sveitarstjóri sem ritaði fundargerð.
Þetta gerðist:
**1. Framkvæmd gangna 2023**
Rætt um framkvæmd gangna á ákveðnum svæðum. Ákveðið var að halda fund með fjallskilanefndinni á Árskógsströnd.
**2. Lausaganga sauðfjár (skógræktir)**
Rætt um lausagöngu sauðfjár og meðal annars samskipti sauðfjárbænda og skógræktarbænda í sveitarfélaginu. Ákveðið að afla gagna og stefnt verði að fundi með aðilum þar sem þessi mál verði rædd.
**3. Fjallsgirðingar og varsla í heimalöndum**
Ákveðið að skoða með hvaða hætti er hægt að koma á markvissara skipulagi með viðhaldi fjallsgirðinga og girðingum á heimalandi til að takmarka ágang búfjár.
Fleira gerðist ekki – fundi slitið kl. 22:20