Fjarðabyggð
Bæjarráð - 830
**1. 2311106 - Veikindalaun 2023**
|Framlögð greinargerð ásamt tillögu um fjármögnun veikindalauna á árinu 2023.|
Bæjarráð vísar fjármögnun veikindalauna til gerðar viðauka.
**2. 2401136 - Fjárhagsáætlun 2023 - viðauki 5**
|Lagður fram viðauki nr. 5 við fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar fyrir árið 2023 um veikindalaun, námsstyrki og ráðstöfun á óráðstöfuðu.|
Bæjarráð samþykkir viðaukann fyrir sitt leyti og vísar honum til afgreiðslu bæjarstjórnar.
**3. 2310039 - Húsnæðisáætlun Fjarðabyggðar 2024**
|Lögð fram að nýju tillaga að húsnæðisáætlun Fjarðabyggðar fyrir 2024 - 2033.|
Bæjarráð samþykkir húsnæðisáætlun og vísar henni til staðfestingar bæjarstjórnar.
**4. 2204118 - 730 Öldugata 6 - Kauptilboð**
|Framlagt kauptilboð Sælínar Sigurjónsdóttur vegna húseignar á lóðinni að Öldugötu 6 á Reyðarfirði.|
Bæjarráð felur umhverfis- og skipulagsfulltrúa að ræða við bjóðanda.
[Öldugata 6.pdf](
displaydocument.aspx?
itemid=QwhRgNuv0e4z63FS2xAuw&meetingid=bJV_1AmTwkORWIKn10tWw1
&filename=Öldugata 6.pdf)
**5. 2401114 - Áform um breytingu á lögum nr. 491997 um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum**
|Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 6/2024 -Áform um breytingu á lögum nr. 49/1997 um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum. |
Bæjarráð fagnar boðaðri breytingu og sveitarfélagið mun taka þátt í samráði um málið.
[Boð um þátttöku í samráði: Áform um breytingu á lögum nr. 49/1997 um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum.pdf](
displaydocument.aspx?
itemid=DqfULQ77mkqHNeAxL6yNuQ&meetingid=bJV_1AmTwkORWIKn10tWw1
&filename=Boð um þátttöku í samráði: Áform um breytingu á lögum nr. 49/1997 um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum.pdf)
**6. 2401154 - Erindi frá VA - aðstaða fyrir siglingahermi**
|Framlagt erindi frá Verkmenntastkóla Austurlands varðandi aðgang að herbergi í sameiginlegu rými verknámshúss VA og íþróttahússins á Norðfirði.|
Bæjarráð fagnar því að boðið verði uppá smáskipnám í Verkmenntaskólanum og samþykkir að veita Verkmenntaskóla Austurlands aðgang að umræddu herbergi og gengið verði frá samkomulagi um afnotin.
[Beiðni frá VA.pdf](
displaydocument.aspx?
itemid=Okc2aaCdDUuOTJbkOEWeUg&meetingid=bJV_1AmTwkORWIKn10tWw1
&filename=Beiðni frá VA.pdf)
**7. 2312149 - Erindi til sveitarstjórnar vegna bókasafna í Fjarðabyggð**
|Framlögð til kynningar erindi Austfirskra upplýsinga og Samtaka forstöðumanna almenningsbókasafna.|
Bæjarráð þakkar gagnlegar ábendingar og vísar erindum til stjórnar menningarstofu.
[Yfirlýsing SFA (1).pdf](
displaydocument.aspx?
itemid=FjBIF8CyAUS1xr0PVuKkQ&meetingid=bJV_1AmTwkORWIKn10tWw1
&filename=Yfirlýsing SFA (1).pdf)
[Austfirsk upplýsing.pdf](
displaydocument.aspx?
itemid=rf6y2YQokGikJA5GqX1w&meetingid=bJV_1AmTwkORWIKn10tWw1
&filename=Austfirsk upplýsing.pdf)
**8. 2401143 - Starfsreglur svæðisskipulagsnefndar**
|Framlagðar til afgreiðslu starfsreglur svæðisskipulagsnefndar Austurlands.|
Bæjarráð samþykkir starfsreglurnar fyrir sitt leyti og vísar þeim til staðfestingar bæjarstjórnar.
[Starfsreglur svæðisskipulagsnefndar Austurlands.pdf](
displaydocument.aspx?
itemid=Of_o4jL0WkCXASCZzCoNw&meetingid=bJV_1AmTwkORWIKn10tWw1
&filename=Starfsreglur svæðisskipulagsnefndar Austurlands.pdf)
**9. 2401150 - Erindi Persónuverndar vegna notkunar á google lausnum í skólastarfi**
|Framlagt erindi frá Persónuvernd til allra sveitarfélaga vegna notkunar á Google lausnum í skólastarfi.|
Vísað til upplýsingaöryggisnefndar.
[Bréf frá Persónvernd um notkun á Google lausnum í skólastarfi.pdf](
displaydocument.aspx?
itemid=OoUV09wmt06I3p_Y87GpPA&meetingid=bJV_1AmTwkORWIKn10tWw1
&filename=Bréf frá Persónvernd um notkun á Google lausnum í skólastarfi.pdf)
**10. 2306007 - Forvarnastefna Fjarðabyggðar 2024-2025**
|Vísað frá félagsmálanefnd til afgreiðslu bæjarráðs forvarnarstefnu Fjarðabyggðar 2024-2025.|
Bæjarráð samþykkir stefnuna fyrir sitt leyti og vísar henni til staðfestingu bæjarstjórnar.
[Forvarnastefna Fjarðabyggðar 2024-2025.pdf](
displaydocument.aspx?
itemid=AWCBFUXvW0qx9WvfLRyxQA&meetingid=bJV_1AmTwkORWIKn10tWw1
&filename=Forvarnastefna Fjarðabyggðar 2024-2025.pdf)
**11. 2311229 - Starfshópur um skipulagsmál vegna ofanflóðavarna**
|Framlögð samantekt starfshóps Fjarðabyggðar um ofanflóðavarnir og skipulagsmál, ásamt fundargerð nr. 3.|
Vísað til umfjöllunar skipulags- og framkvæmdanefndar.
[Starfshópur um skipulagsmál vegna ofanflóðavarna í Fjarðabyggð - fundargerð nr.3.pdf](
displaydocument.aspx?
itemid=w9GQJFAXUumooVo6O25yw&meetingid=bJV_1AmTwkORWIKn10tWw1
&filename=Starfshópur um skipulagsmál vegna ofanflóðavarna í Fjarðabyggð - fundargerð nr.3.pdf)
**12. 2401142 - Fundargerðir stjórnar Sambands Íslenskra sveitarfélaga 2024**
|Framlögð til kynningar fundargerð 941. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.|
[stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga - 941.pdf](
displaydocument.aspx?
itemid=9cI_8KzrxE6lMta43a1ieg&meetingid=bJV_1AmTwkORWIKn10tWw1
&filename=stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga - 941.pdf)
**13. 2302093 - Fundargerðir Samtaka orkusveitarfélaga**
|Fundargerð 68. fundar stjórnar samtaka orkusveitarfélaga lögð fram til kynningar|
[Fundargerð Samtaka orkusveitarfélaga - nr 68 undirrituð.pdf](
displaydocument.aspx?
itemid=cXFbuZyECUHnQCE189ouA&meetingid=bJV_1AmTwkORWIKn10tWw1
&filename=Fundargerð Samtaka orkusveitarfélaga - nr 68 undirrituð.pdf)