Hörgársveit
Skipulags- og umhverfisnefnd fundur nr. 98
= Skipulags- og umhverfisnefnd fundur nr. 98 =
Þriðjudaginn 23. janúar 2024 kl. 08:45 kom skipulags- og umhverfisnefnd Hörgársveitar saman til fundar á skrifstofu sveitarfélagsins.
Fundarmenn: Jón Þór Benediktsson formaður, Agnar Þór Magnússon, Ásrún Árnadóttir, Sunna María Jónasdóttir og Bjarki Brynjólfsson í skipulags- og umhverfisnefnd, Vigfús Björnsson skipulags- og byggingarfulltrúi og Snorri Finnlaugsson sveitarstjóri.
Fundargerð ritaði Snorri Finnlaugsson, sveitarstjóri.
**1. Glæsibær, Hagabyggð – deiliskipulag áfangi III (2301004)**Áframhaldandi umræður frá seinasta fundi nefndarinnar um aðal- og deiliskipulagstillögu 3. áfanga Hagabyggðar úr landi Glæisbæjar. Skipulagshöfundur, Ingólfur Guðmundsson kom til fundar við nefndina og kynnti deiliskipulagstillögu. **2. Dalvíkurlína 2 – aðalskipulagsbreyting (2307002)**Tillaga að breytingu á aðalskipulagi Hörgársveitar 2012-2024 vegna Dalvíkurlínu 2 ásamt breytingu á legu göngu-, hjóla og reiðleiðar var auglýst frá 20. nóvember 2023 til 1. janúar 2024. 11 erindi bárust á auglýsingatíma skipulagstillögu og voru þau lögð fram til umfjöllunar ásamt tillögum að svörum sem skipulags- og byggingarfulltrúi hefur tekið saman.
Skipulags- og umhverfisnefnd fjallar um innkomin erindi í þeirri röð sem á eftir fer.
**2-1. erindi, sendandi HNE**Athugasemd: HNE vekur athygli á því að efnistaka vegna Dalvíkurlínu 2 er háð starfsleyfi heilbrigðisnefndar og leggur áherslu á að efni í framkvæmdina verði tekið úr námum með gilt starfsleyfi. *Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti að leggja til við sveitarstjórn að viðeigandi ákvæði um starfsleyfisskylda efnistöku verði bætt við aðalskipulagstillöguna.* **2-2. erindi, sendandi Minjastofnun**Athugasemd: Minjastofnun bendir á að áður en framkvæmdaleyfi er gefið út vegna framkvæmdarinnar þurfi málið að koma til umsagnar stofnunarinnar, og minnir enn fremur á að nýta fyrirliggjandi fornminjaskráningu við hönnun mannvirkisins. *Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti að leggja til við sveitarstjórn að viðeigandi ákvæði um minjaskráningu og umsögn MÍ vegna leyfisveitngar verði bætt við aðalskipulagstillöguna.* **2-3. erindi, Hulda Sigurvinsdóttir**Athugasemd: Misræmi er milli uppdráttar og texta auglýstrar skipulagstillögu að því leyti að hjóla- og gönguleið er í texta sögð liggja samhliða nýrri Dalvíkurlínu, sem samkvæmt samkomulagi liggur stígurinn í vegstæði gamla Ólafsfjarðarvegarins. Uppdráttur auglýstrar skipulagstillögu sýnir hinsvegar göngu- og hjólaleið þvert yfir landeign sendanda. *Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við sveitarstjórn að auglýst skipulagstillaga verði yfirfarin þannig að tryggt verði að samræmi sé milli greinargerðar og uppdráttar.* **2-4. erindi, sendandi Vegagerðin.**Athugasemd a) Breytingar á stígum og undirgöngum eins og þær eru sýndar á skipulagsuppdrætti miða við óbreytta legu Hringvegar á Moldhaugnahálsi. *Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Skipulags- og umhverfisnefnd bendir á að stígar og undirgöng þurfi að fylgja Dalvíkurlínu 2 og séu því staðsett eins og raun ber vitni. Nefndin telur því að athugasemdin gefi ekki tilefni til breytinga á auglýstri skipulagstillögu.*Athugasemd b) Í tillögu að breyttu skipulagi eru sýnd ný undirgöng á Ólafsfjarðarveg en hafa þarf samráð við Vegagerðina um staðsetningu og fjölda þeirra. *Skipulags- og umhverfisnefnd bendir á að áform um undirgöng hafi verið send Vegagerðinni til umsagnar sbr. erindið sem hér er til umræðu. Nefndin telur ekki að athugasemdin gefi tilefni til breytinga á auglýstri skipulagstillögu.*Athugasemd c) Í viðræðum Vegagerðarinnar og sveitarfélagsins hefur komið fram að ekki verði lagður göngu- og hjólastígur meðfram Hlíðarvegi en slíkur stígur er sýndur á uppfærðu skipulagi. *Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Skipulags- og umhverfisnefnd bendir á að göngu- og hjólastígur meðfram Hlíðarvegi sé á núgildandi aðalskipulagi sveitarfélagsins og að þó ekki séu uppi áform um lagningu stígsins í fyrirsjáanlegri framtíð sé ekki ástæða til að fella hann út af skipulagi við svo búið.*
Athugasemd d) Af uppdrætti má ætla að Dalvíkurlína 2 muni liggja í vegi. Geta má í greinargerð að svo sé ekki.
*Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti að leggja til við sveitarstjórn að uppdráttur verði lagfærður þannig að merkingar vega og strengs verði aðgreindar.* **2-5. erindi, sendandi Norðurorka**Athugasemd: Væntanlegur göngu og hjólastígur liggur nærri og þverar nokkrar vatns- og hitaveitulagnir Norðurorku og bent er á að taka þarf tillit til lagnanna við hönnun stígsins. *Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti að leggja til við sveitarstjórn að ákvæði um að lega göngu- og hjólastígs skuli taka mið af lögnum í jörðu skuli bætt við auglýsta skipulagstillögu.* **2-6. erindi, sendandi Fiskistofa**Athugasemd: Fiskistofa bendir á að samkvæmt 33. gr. laga um lax- og silungsveiði eru framkvæmdir í og við veiðivatn, allt að 100 m frá bakka, háðar leyfi Fiskistofu. *Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti að leggja til við sveitarstjórn að ákvæði um að framkvæmdir innan 100 m frá bakka veiðivatns séu háðar leyfi Fiskistofu skv. 33. gr. laga um lax- og silungsveiði nr. 61/2001 verði bætt við auglýsta skipualgstillögu.* **2-7. erindi, sendandi Umhverfisstofnun**Athugasemd: Umhverfisstofnun minnir á ákvæði laga um stjórn vatnamála nr. 36/2011 þar að lútandi að opinberar áætlanir á vegum stjórnvalda skuli vera í samræmi við stefnumörkun um vatnsvernd sem fram kemur í vatnaáætlun. *Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti að leggja til við sveitarstjórn að texta um samræmi skipulagsáætlunar við vatnaáætlun skv. lögum nr. 36/2011 verði bætt við greinargerð aðalskipulags og að í umhverfisskýrslu verði fjallað um áhrif skipulagsbreytingarinnar á ástand vatnshlota sem við sögu koma.* **2-8. erindi, sendandi Jón Jónsson f.h. Jóns Björgvinssonar.**Athugasemd a) Sendandi finnur að því að ekki hafi farið fram áhættugreining vegna nálægðar raflínu við önnur framkvæmdasvæði né heldur hafi verið lagt fullnægjandi mat á strengleið meðfram Dalvíkurlínu 1 uppi í Hlíðarfjalli. *Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Skipulags- og umhverfisnefnd telur ekki að umtalsverð áhætta gagnvart jarðstrengnum fylgi því að leggja hann í námunda við þjóðveg og aðrar lagnir en þvert á móti geti falist hagræði í því að leitast við að leggja vegi og lagnir saman í „mannvirkjabelti“. Nefndin telur ennfremur að mat á ólíkum valkostum sem fram fór á undirbúningsstigi framkvæmdarinnar, og gerð er grein fyrir í framkvæmdartilkynningu framkvæmdaraðila til Skipulagsstofnunar dags. 18. júlí 2022, teljist fullnægjandi og að ekki sé tilefni til að stilla upp nánari valkostagreiningu í skipulagstillögunni. Nefndin telur ekki að athugasemd sendanda gefi tilefni til breytinga á auglýstri skipulagstillögu.*Athugasemd b) Sendandi telur ljóst að lagning Dalvíkurlínu 2 mun þrengja að möguleikum til nýtingar svæðisins sem byggingarlands og jafnframt skapa sérstakt óhagræði og kostnað við nýtingu svæðisins. *Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Skipulags- og umhverfisnefnd bendir á að uppbygging íbúðarsvæðis sé leyfisskyld framkvæmd og skuli sem slík vera í samræmi við gildandi aðalskipulag sveitarfélagsins. Strengleið Dalvíkurlínu 2 liggur um land sendanda á um 260 m kafla á svæði sem í Aðalskipulagi Hörgársveitar 2012-2024 er skilgreint sem landbúnaðarland. Framkvæmdaáformin sem sem sendandi vísar til samræmast því ekki gildandi aðalskipulagi sveitarfélagsins. Ennfremur bendir nefndin á að í framkvæmdalýsingu Landsnets til Skipulagsstofnunar dags. 18. júlí 2022 kemur fram strengleið Dalvíkurlínu 2 sé að mestu innan veghelgunarsvæðis þjóðvegar sem er 30 m frá miðlínu vegar á svæðinu sem hér um ræðir. Í sama gagni kemur fram að helgunarsvæði 66 kV jarðstrengs sé alls 7 m breitt. Í skipulagsreglugerð nr. 90/2013 segir að ný íbúðar- eða frístundahús skuli ekki standa nær stofnvegi en 100 m og önnur hús ekki nær en 50 m, og því má ljóst vera að af slíkri uppbyggingu getur ekki orðið á svæðinu þar sem jarðstrengurinn og helgunarsvæði hans eru fyrirhuguð. Skipulags- og umhverfisnefnd telur ekki að athugasemd sendanda gefi tilefni til breytinga á auglýstri skipulagstillögu.*Athugasemd c) Sendandi mótmælir að skilyrði verði til útgáfu framkvæmdaleyfis á grunni svo ónákvæms aðalskipulags. *Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Skipulags og umhverfisnefnd bendir á að framkvæmdaleyfisumsókn sé ekki til meðferðar í þessu máli heldur einungis aðalskipulag. Þegar framkvæmdaleyfisumsókn vegna framkvæmdarinnar berst sveitarfélaginu muni hún hljóta málsmeðferð skv. 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og reglugerð um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012. Skipulags- og umhverfisnefnd telur ekki að athugasemd sendanda gefi tilefni til breytinga á auglýstri skipulagstillögu.*
Athugasemd d) Kvaðir sem fylgja lagningu Dalvíkurlínu 2 munu fela í sér að önnur landnot en ræktun á efstu 30 cm yfirborðs verður bönnuð. Það felur m.a. í sér að skógrækt verður ekki heimiluð.
*Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Skipulags- og umhverfisnefnd bendir á að skógrækt er leyfisskyld framkvæmd og skuli sem slík vera í samræmi við gildandi aðalskipulag sveitarfélagsins. Það svæði sem erindi sendanda lýtur að er skilgreint sem landbúnaðarland í Aðalskipulagi Hörgársveitar 2012-2024. Skipulags- og umhverfisnefnd telur ekki að athugasemd sendanda gefi tilefni til breytinga á auglýstri skipulagstillögu.*
Ekki eru gerðar athugasemdir við auglýsta skipulagstillögu í erindum sem bárust frá Akureyrarbæ, Dalvíkurbyggð og Náttúrufræðistofnun Íslands.
*Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti að leggja til við sveitarstjórn að auglýstri skipulagstillögu verði breytt eins og fram kemur í afgreiðslunefndarinnar á athugasemdum 1, 2, 3, 4d, 5, 6 og 7 og að svo breytt skipulagstillaga verði samþykkt skv. 1. mgr. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.* *Bjarki Brynjólfsson og sveitarstjóri véku af fundi undir þessum lið.* **3. Aðalskipulag Hörgársveitar endurskoðun (2305001)**Skipulags- og matslýsing vegna endurskoðunar Aðalskipulags Hörgársveitar 2012-2024 var kynnt á milli 15. nóvember og 13. desember 2023 og bárust 20 erindi á kynningartímabilinu. Nefndin fjallaði um innkomin erindi. *Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti að leggja til við sveitarstjórn að skipulagshöfundi verði falið að hafa hliðsjón af innsendum erindum við gerð skipulagstillögu.* **4. Dysnes, landfylling og höfn – mat á umhverfisáhrifum – umsagnarbeiðni (2311012)**Hafnasamlag Norðurlands bs. áformar uppbyggingu á hafnarsvæði við Dysnes samkvæmt samþykktu deiliskipulagi. Matsáætlun vegna mats á umhverfisáhrifum er nú í kynningu og hefur Skipulagsstofnun óskað umsagnar Hörgársveitar um matsáætlunina sem lögð var fram og unnin af Mannvit í nóvember 2023. *Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti að leggja til við sveitarstjórn að ekki verði gerð athugasemd við matsáætlunina á þessu stigi.* **5. Neðri-Rauðilækur land – byggingarreitir fyrir tvö frístundahús (2311013)**Lagt fram erindi og uppdráttur vegna fyrirhugaðra bygginga tveggja frístundahúsa. *Afgreiðslu frestað til næsta fundar.* **6. Lónsbakkahverfi – aðal- og deiliskipulagsbreyting 2023 (2312004)**Lagðar fram aðal- og deiliskipulagstillögur er varða Lónsbakkhverfi. Deiliskipulagshöfundur, Árni Ólafsson kom til fundar við nefndina og kynnti deiliskipulagstillögu. **7. Lónsbakki þéttbýli – Reynihlíð 20-26 – deiliskipulagsbreyting (2311015).**Fyrir fundinum lágu fjórar breytingartillögur er varða deiliskipulag Lónsbakkahverfis. Tillögurnar hafa áður hlotið málsmeðferð samkv. 43.grein skipulagslaga, en hafa ekki verið auglýstar í b-deild stjórnartíðinda.
a) Breyttur í íbúðafjöldi í Reynihlíð 15.
b) Breytt húsagerð í Reynihlíð 21 og 23.
c) Breyttur byggingarreitur Álfasteins
d) Breytt húsagerð Reynihlíð 20-26.
*Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti að leggja til við sveitarstjórn að deiliskipulagsbreytingarnar verði samþykktar samkvæmt 2. málsgr. 43. greinar skipulagslaga nr. 123/2010.* **8. Breyting á aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2020 – efnisnáma við Hálsá – umsagnarbeiðni (2312003)**Dalvíkurbyggð óskar eftir umsögn Hörgársveitar um skipulagslýsingu fyrir breytingu á Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2020 vegna áforma um efnisnám við Hálsá. Skipulagslýsing frá Teikna frá desember 2023 lögð fram. Umsagnarfrestur var til 29. desember 2023 en hefur verið framlengdur. *Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti að leggja til við sveitarstjórn að ekki verði gerð athugasemd við skipulagslýsinguna.* **9. Gáseyri – umsókn um framkvæmdaleyfi til sandtöku (2401001)**Lögð fram umsókn frá Gáseyrin ehf. um framkvæmdaleyfi til sandtöku við ósa Hörgár á Gásum/Gásaeyri. *Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti að leggja til við sveitarstjórn að erindinu verði hafnað enda samræmist það ekki gildandi aðalskipulagi sveitarfélagsins.* **10. Breytingar á Blöndulínu 3 – ákvörðun Skipulagsstofnunar um matsskyldu (2310005)**Um er að ræða breytingar á línuleið Blöndulínu 3 á nokkrum stöðum í Húnabyggð, Skagafirði og Hörgársveit. Framkvæmdin er tilkynningarskyld til ákvörðunar um matsskyldu samkvæmt 19. gr. og lið 10.15 og lið 13.02 í 1. viðauka í lögum um umhverfismat framkvæmda og áætlana og fylgir ákvörðun Skipulagsstofnunar um matsskyldu framkvæmdarinnar. Lagt fram og kynnt. **11. Dalvíkurlína 2 – framkvæmdaleyfi, umsókn frá Landsneti (2401004)**Lögð fram Umsókn frá Landsneti um framkvæmdaleyfi vegna lagningar Dalvíkurlínu 2, ásamt fylgigögnum. *Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti að fresta afgreiðslu umsóknarinnar þar til breytt aðalskipulag vegna Dalvíkurlínu 2 öðlast gildi.* **12. Lónsbakkahverfi – deiliskipulagsbreyting (2312004)**Lögð fram deiliskipulagstillaga er varðar breytingu á Lónsbakkahverfi, framlenging Skógarhlíðar felld út. *Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti að leggja til við sveitarstjórn að deiliskipulagsbreytingunni verði vísað í kynningarferli sbr. 4. málsgr. 40. greinar skipulaga nr. 123/2010.*
Fleira gerðist ekki, fundi slitið kl. 11:45