Skagafjörður
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa
= Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa =
Dagskrá
=== 1.Suðurbraut 9 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi. ===
2312044
Þórður Karl Gunnarsson tæknifræðingur sækir f.h. Kaupfélag Skagfirðinga um leyfi til að innrétta gistiheimili á efri hæð Suðurbrautar 9 á Hofsósi. Framlagðir aðaluppdrættir gerðir á Stoð ehf. verkfræðistofu af umsækjanda. Uppdrættir í verki 30311501, númer A-100, A-101, A-102, A-103 og A-104, dagsettir 30. nóv. 2023. Byggingin fellur undir umfangsflokk 2. skv. gr. 1.3.2. í byggingarreglugerð. Byggingarleyfi veitt með þeim takmörkunum sem fram koma í fundarbókun skipulagsnefndar þann 11. janúar sl.
=== 2.Borgarsíða 4 - Umsókn um stöðuleyfi. ===
2401288
Steingrímur Óskarsson sækir um stöðuleyfi fyrir húsi á lóðinni númer 4 við Borgarsíðu á Sauðárkróki. Húsið sem um ræðir er, mhl. 15 á jörðinni Brennigerði, L145923. Á 18. afgreiðslufundi byggingarfulltrúa þann 16. júní sl. var veitt heimild til að fjarlægja húsið af jörðinni. Meðfylgjandi gögn dagsett 25. janúar gera grein fyrir umbeðnu stöðuleyfi. Fyrir liggur samþykki ÓK smáverk ehf., lóðarhafa Borgarsíðu 4. Erindið samþykkt, stöðuleyfi veitt.
=== 3.Birkihlíð 16 - Tilkynning um framkvæmdir undanþegnar byggingarleyfi. ===
2401325
Jón Jökull Jónsson, leggur fram gögn yfir tilkynnta framkvæmd er varðar breytt útlit á gluggum einbýlishúss sem stendur á lóðinni númer 16 við Birkihlíð á Sauðárkróki. Framlagðir uppdrættir ásamt greinargerð, gerð af Ingvari Gýgjar Sigurðarsyni tæknifræðingi. Uppdrættir í verki 3287, númer A-101 og A-102, dagsettir 25. desember 2023. Tilkynning og gögn eru í samræmi við gr. 2.3.5 og 2.3.6. í byggingarreglugerð 112/2012 um tilkynntar framkvæmdir.
Fundi slitið - kl. 09:15.