Suðurnesjabær
Framkvæmda- og skipulagsráð
= Framkvæmda- og skipulagsráð =
Dagskrá
Guðlaug Helga Sigurðardóttir og Elín Frímannsdóttir boðuðu forföll og sátu Jóhann Ingi Kjærnested og Sigursveinn Bjarni Jónsson varamenn fundinn í þeirra stað.
=== 1.Keflavíkurborgir - Breyting á aðalskipulagi og nýtt deiliskipulag ===
2401070
Skipulagslýsing vegna breytingar á aðalskipulagi Reykjanesbæjar og nýs deiliskipulags fyrir íbúðasvæðið Keflavíkurborgir lögð fram til umsagnar.
Ráðið leggur áherslu á að fyrirhuguð uppbygging hafi ekki áhrif á umferðarflæði og hraða um Garðskagaveg frá því sem nú er.
=== 2.Bræðraborgarland - þétting íbúðabyggðar - Fyrirspurn ===
2202070
Eigendur Bræðraborgarlands leggja fram nýja fyrirspurn um þéttingu íbúðabyggðar með breyttri tillögu. Fyrri fyrirspurn síðast tekin fyrir á fundi ráðsins þann 29.3.2023.
Tillaga að uppbyggingu sem fylgir erindinu er ekki í samræmi við fyrri afgreiðslu ráðsins. Ráðið felur skipulagsfulltrúa að ræða við umsækjanda um fækkun húsa og útfærslu í samræmi við umræður ráðsins og fyrri afgreiðslu.
=== 3.Tjaldsvæði á Garðskaga - Umsókn um lóð fyrir þjónustuhús og gerð samstarfssamnings um rekstur tjaldsvæðis ===
2401042
I-stay ehf. sækja um lóð sem er auðkennd sem byggingarreitur F í nýju/breyttu deiluskipulaginu á Garðskaga undir þjónustuhús fyrir tjaldsvæði skv. meðfylgjandi erindi. Samhliða óskar umsóknaraðili eftir viðræðum við sveitarfélagið um gerð sambærilegs samstarfssamings um rekstur tjaldsvæðis á svæðinu og er um tjaldsvæðið í Sandgerði.
Ráðið tekur jákvætt í erindið og leggur til að umsækjanda verði úthlutuð lóðin til uppbyggingar á tjaldsvæði við Garðskaga með fyrirvara um gerður verði samstarfssamningur um rekstur svæðisins samhliða milli I-Stay og Suðurnesjabæjar. Sigursveinn Bjarni vék af fundi undir afgreiðslu málsins vegna vanhæfis.
=== 4.Hafnargata 4 - umsókn um lóð ===
2402004
Artic Ocean Seafood sækir um lóðina Hafnargata 4 undir byggingu fiskvinnsluhúss skv. meðfylgjandi umsókn.
Samþykkt að úthluta Artic Ocean lóðinni til uppbyggingu á fiskvinnsluhúsi.
=== 5.Skálareykjavegur 12 - fyrirspurn - viðbygging ===
2401022
Eigandi Skálareykjavegar 12 leggur fram fyrirspurn um hvort heimiluð yrði stækkun núverandi húsnæðis skv. meðfylgjandi erindi.
Samþykkt að heimila stækkun í ljósi þess að þegar hafa verið steyptar undirstöður undir samskonar stækkun í tengslum við eldri byggingaráform sem aldrei náðu fram að ganga.
=== 6.Brekkustígur 5 - fyrirspurn - breyting á þaki og stækkun húss ===
2401076
Eigandi Brekkustígs 5 leggur inn fyrirspurn hvort heimilað yrði að fjarlægja núverandi þak og byggja nýtt með annarskonar þakformi skv. meðfylgjandi gögnum.
Í Byggða- og húsakönnun af tilgreindu svæði í Sandgerði, dags september 2018, er lagt til að Brekkustígur 5 njóti verndar með hverfisvernd þar sem húsið ásamt fleirum í sömu götulínu hafi varðveislugildi sem hluti götumyndar og sé fulltrúi síns tíma í byggingarsögunni. Gagngerum breytingum á þakformi hússins er því hafnað.
=== 7.Áramót ===
2312026
Bókun Ferða- safna- og menningarráðs frá fundi ráðsins 23.01.2024, þar sem óskað er eftir að Framkvæmda- og skipulagsráð sikil tillögum að svæði fyrir áramótabrennu til framtíðar, tekin til umfjöllunar.
Mögulegar framtíðarstaðsetningar ræddar. Afgreiðslu máls frestað og umhverfisfulltrúa falið að vinna málið frekar á milli funda.
=== 8.Grindavík - húsnæðismál ===
2401055
Minnisblað varðandi húsnæðismál Grindvíkinga lagt fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
=== 9.Húsnæðisáætlun ===
2109054
Húsnæðisáætlun Suðurnesjabæjar 2024 lögð fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
=== 10.Framkvæmdir í Suðurnesjabæ 2024 ===
2311063
Framkvæmdaráætlun nýframkvæmda og stærstu viðhaldsverkefni 2024 lögð fram til kynningar. Einnig eru fjárfestingar Umhverfismiðstöðvar kynntar.
Lagt fram til kynningar.
Fundi slitið - kl. 18:15.