Vopnafjarðarhreppur
Umhverfis- og framkvæmdaráð - 15
== Fundur nr. 15 ==
Kjörtímabilið 2022—2026
Kjörtímabilið 2022—2026
Skrifstofa Vopnafjarðarhrepps kl. 10:00
Sara Elísabet Svansdóttir ritaði fundargerð
AÓS
Aðalbjörg Ósk SigmundsdóttirNefndarmaður
BS
Borghildur SverrisdóttirNefndarmaður
KÓP
Kristrún Ósk PálsdóttirNefndarmaður
SGS
Sigurður Grétar SigurðssonNefndarmaður
LÁ
Lárus ÁrmannssonNefndarmaður
IDJ
Ingólfur Daði JónssonNefndarmaður
AKÁ
Agnar Karl ÁrnasonNefndarmaður
SES
Sara Elísabet SvansdóttirSveitarstjóri, Ritari
Fundur haldinn í umhverfis- og framkvæmdaráði Vopnafjarðarhrepps 7.2 2024 á skrifstofu Vopnafjarðarhrepps kl 10:00.
Deiliskipulag fyrir miðbæ Vopnafjarðarhrepps lagt fram ásamt drögum að umsögnum um athugasemdir sem bárust.
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir fyrirliggjandi drög að umsögnum um athugasemdir og vísar uppfærðri tillögu að deiliskipulagi miðbæjar Vopnafjarðarhrepps til samþykktar í sveitarstjórn.
Samþykkt samhljóða.
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir tillögu að verndarsvæði í byggð með þeim lagfæringum sem ræddar voru á fundinum og vísar henni til afgreiðslu í sveitarstjórn.
Samþykkt samhljóða.
Lögð fram umsókn um leyfi til uppsetningar hraðhleðslustöðva í Vopnafjarðarhreppi frá InstaVolt.
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir erindið og heimilar skipulags- og byggingarfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi þegar öll gögn hafa borist.
Samþykkt samhljóða.
Lagt fram til kynningar.
Skýrsla hafnarvarðar lögð fram til kynningar.
Lagt fram boð á Hafnasambandsþing sem haldið verður 24.—25. október á Akureyri.
Borghildur Sverrisdóttir, formaður umhverfis- og framkvæmdaráðs og Sara Elísabet Svansdóttir, hafnarstjóri verða fulltrúar
Vopnafjarðarhrepps á þinginu.
Samþykkt samhljóða.
Fleira var ekki tekið fyrir og fundi slitið kl. 10:45.