Vopnafjarðarhreppur
Menningar- og atvinnumálanefnd - 17
== Fundur nr. 17 ==
Kjörtímabilið 2022—2026
Kjörtímabilið 2022—2026
Skrifstofa Vopnafjarðarhrepps kl. 08:30
Íris Edda Jónsdóttir ritaði fundargerð
FBF
Fanney Björk FriðriksdóttirNefndarmaður
BM
Bobana MicanovicNefndarmaður
RLG
Ragna Lind GuðmundsdóttirNefndarmaður
SB
Sigríður BragadóttirNefndarmaður
HBÓ
Hafdís Bára ÓskarsdóttirNefndarmaður
USÖS
Urður Steinunn Önnudóttir SahrNefndarmaður
ÍEJ
Íris Edda JónsdóttirRitari
Fundur haldinn í menningar- og atvinnumálanefnd Vopnafjarðarhrepps 12.02.2024 á skrifstofu Vopnafjarðarhrepps kl 8:30.
Lögð eru fram uppfærð drög af úthlutunarreglum menningarsjóðs Vopnafjarðarhrepps.
Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum:
** Menningar- og atvinnumálanefnd samþykkir drög að úthlutunarreglum menningarsjóðsins og vísar þeim til samþykktar í sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps.**
Samþykkt samhljóða.
Hafdís Bára mætir á fund
Umræða var um dagskrá og fyrirkomulag Vopnaskaks.
Farið var yfir stöðu á umsóknum framkvæmdastjóra hátíðarinnar.
Menningar- og atvinnumálanefnd óskaði eftir hugmyndum af
viðburðum ætluðum börnum á bæjarhátíðinni frá Ungmennaráði sem voru yfirfarnar á fundinum.
Einnig tekur nefndin við ábendingum frá almenningi varðandi viðburði á hátíðinni.
Markmiðið með Skapandi sumarstörfum er að bjóða upp á störf fyrir ungmenni á sviði menningar og lista. Að lífga upp á mannlíf Vopnafjarðar og gleðja íbúa og ferðamenn með fjölbreyttum, listrænum og skapandi viðburðum. Starfið er hugsað sem sjálfstætt verkefni eða nýsköpun undir leiðsögn verkefnastjóra.
Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum:
**Menningar- og**
Samþykkt samhljóða.
Fleira var ekki tekið fyrir og fundi slitið kl. 09:40.