Ísafjarðarbær
Umhverfis- og framkvæmdanefnd 142. fundur
= Umhverfis- og framkvæmdanefnd =
Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir
[aðrar fundargerðir](https://www.isafjordur.is/is/stjornsysla/stjornsyslan/fundargerdir/eldri-fundargerdir)
Dagskrá
=== 1.Niðurstöður sýnatöku vatnsveitu 2023 - 2023120008 ===
Lagðar eru fram niðurstöður Heilbrigðiseftirlits Vestfjarða, vegna sýnatöku neysluvatns á Þingeyri og Flateyri.
Sýnataka fór fram þann 5. des. sl., og stenst vatn gæðakröfur skv. reglugerð 536/2001.
Sýnataka fór fram þann 5. des. sl., og stenst vatn gæðakröfur skv. reglugerð 536/2001.
Lagt fram til kynningar.
=== 2.Tjaldsvæði í Tungudal - útboð 2024 - 2024010013 ===
Lagt fram minnisblað Smára Karlssonar, verkefnisstjóra umhverfis- og eignasviðs, dags. 6. febrúar 2024, um útboð á rekstri tjaldsvæða.
Umhverfis- og framkvæmdanefnd, óskar eftir tillögum frá starfsmanni nefndar um útfærslu á tímalengd samnings, ásamt minnisblaði um tillögur að útfærslu á mögulegri uppbyggingu og ákvæðum sem snúa að samningslokum.
=== 3.Efnisnámur í Ísafjarðarbæ - 2024010016 ===
Lagt fram minnisblað Axels. R. Överby sviðsstjóra og Smára Karlssonar verkefnisstjóra, dags. 12.febrúar 2024 um Dagverðardalsnámu.
Umhverfis- og framkvæmdaáætlun óskar eftir frágangsáætlun vegna lokunar eldri hluta Dagverðardalsnámu. Jafnframt að öryggismál umhverfis námu verði rædd við verktaka.
=== 4.Innfylliefni á sparkvöllum - 2024020045 ===
Lögð fram gögn varðandi innfylliefni á sparkvöllum í Ísafjarðarbæ ásamt úrbótaáætlun útgefinni af umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu.
Starfsmanni nefndar falið að vinna áætlun um að skipta út dekkjakurli á sparkvöllum í Ísafjarðarbæ.
=== 5.Oddavegur 5, Flateyri. Lóðarleigusamningur vegna sölu - 2023100004 ===
Lagt fram minnisblað Smára Karlssonar, verkefnisstjóra á umhverfis- og eignasviði, dags. 7. febrúar 2024, varðandi Oddaveg 5 á Flateyri.
Umhverfis- og mannvirkjanefnd leggur til við skipulags- og mannvirkjanefnd að lóðarleigusamningur verði ekki endurnýjaður fyrr en niðurstöður úr jarðvegssýnatöku liggja fyrir.
Fundi slitið - kl. 10:25.
Er hægt að bæta efnið á síðunni?