Dalabyggð
Félagsmálanefnd Dalabyggðar - 68
**1. 2402005 - Samráð gegn heimilisofbeldi á Vesturlandi**
|Félagsmálanefnd Dalabyggðar fagnar samstarfi sem þessu.|
**2. 2402006 - Fjárhagsaðstoð 2024**
|Reglur um fjárhagsaðstoð ræddar en þær eru síðan 2010. Samþykkt að fela Jónu Björgu að koma tillögu að uppfærðum reglum um fjárhagsaðstoð Dalabyggðar á næsta fund félagsmálanefndar Dalabyggðar.|
|Sigríður Jónsdóttir verkstjóri heimaþjónustu sat fundinn undir þessum lið.|
**3. 2402007 - Félagsmál 2024**
|Verkstjóri heimaþjónustu fór yfir þjónustuna á árinu 2023 og lagði fram yfirlit.|
Rætt um reglur um félagslega heimaþjónustu í Dalabyggð sem eru síðan 2017. Samþykkt að hefja endurskoðun þeirra og þeim Jónu Björgu og Sigríði falið að yfirfara þær fyrir næsta fund félagsmálanefndar. Einnig var rætt um þörf á að endurskoða eyðublöð tengd málaflokknum og var þeim Jónu Björgu og Sigríði falið að endurskoða framsetningu þeirra einnig.
[Félagsleg heimaþjónusta, Ársyfirlit 2023.pdf](
displaydocument.aspx?
itemid=gIXaPpPgGUmpkj_AZLG1Sg&meetingid=2qjWGGQ4v0S_N2Rz2NvNKg1)