Hörgársveit
Sveitarstjórn fundur nr. 161
= Sveitarstjórn fundur nr. 161 =
Fimmtudaginn 8. febrúar 2024 kl. 08:45 kom sveitarstjórn Hörgársveitar saman til fundar á skrifstofu sveitarfélagsins í Þelamerkurskóla.
Fundarmenn: Axel Grettisson oddviti, Jón Þór Benediktsson, Ásrún Árnadóttir, Sunna María Jónasdóttir og Jónas Þór Jónasson
Fundarritari: Snorri Finnlaugsson sveitarstjóri
Þetta gerðist:
** **
Fundargerð skipulags- og umhverfisnefndar frá 6.2.2024
Fundargerðin er í 8 liðum og þarfnast 6 liðir afgreiðslu sveitarstjórnar.
a) Í lið 1, Glæsibær, Hagabyggð – deiliskipulag áfangi III (2301004)
Lögð fram deiliskipulagstillaga á vinnslustigi, dags. 1.2.2024, vegna 3. áfanga Hagabyggðar úr landi Glæsibæjar. Stefnt er að opnum kynningarfundi síðar í febrúar.
*Sveitarstjórn samþykkt að aðal- og deiliskipulagstillögu verði vísað í kynningarferli skv. 2. mgr. 30. gr. og 4. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.*
b) Í lið 2, Lónsbakkahverfi – stígahönnun (2401007)
Lögð fram tillaga á vinnslustigi að hönnun göngu- og hjólastígs við Þjóðveg 1 í Lónsbakka-hverfi.
*Sveitarstjórn samþykkt að legu göngu- og hjólastígs við undirgöng undir þjóðveg 1 við Lónsbakka verði breytt í samræmi við hugmyndir sem kynntar voru á fundinum.*
c) Í lið 3, Neðri-Rauðilækur land – byggingarreitir fyrir tvö frístundahús (2311013)
Framhald umræðna um fyrirhugaða byggingu tveggja frístundahúsa í landi Neðri-Rauðalækjar.
*Sveitarstjórn samþykkti að vísa erindinu í grenndarkynningu skv. 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Heimilt er að stytta grenndarkynningartímabilið ef allir hagsmunaaðilar lýsa því yfir skriflega að ekki sé gerð athugasemd við framkvæmdina. Ef ekki berast andmæli á grennarkynningartímabilinu teljast áformin samþykkt.*
d) Í lið 4, Skriða – umsókn um framkvæmdaleyfi til efnistöku og landmótunar (2401005)
Lögð fram umsókn frá Skriðuhestum ehf. um framkvæmdaleyfi til efnistöku og landmótunar í landi Skriðu (L152409).
*Sveitarstjórn samþykkti að vísa erindinu til frekari vinnslu við útgáfu framkvæmdaleyfa vegna efnistöku við Hörgá.*
e) Í lið 5, Aðalskipulag Akureyrar 2018-2030 - Naust – umsagnarbeiðni (2401006)
Lagt fram erindi frá Akureyrarbæ þar sem kynnt er lýsing fyrir breytingu á Aðalskipulagi Akureyrar 2018-2030 vegna breytinga á svæði við Naust. Óskað er umsagnar Hörgársveitar um lýsinguna og er umsagnarfrestur til 13. febrúar 2024.
*Sveitarstjórn gerir ekki athugasemd við skipulagstillöguna, enda kemur hún væntanlega til umræðu í Svæðisskipulagsnefnd Eyjafjarðar.*
f) Í lið 6, Lónsbakkahverfi – aðal- og deiliskipulagsbreyting (2312004)
Umræður um framhald skipulagsmála í Lónsbakkahverfi.
*Sveitarstjórn samþykkti að skipulagshönnuði verði falið að vinna breytingarblað deiliskipulags vegna ofangreindra framkvæmda og að á blaðinu skuli einnig gerð grein fyrir legu göngu- og hjólastígs sbr. 2. dagskrárlið.* *Sveitarstjórn samþykkti að svo breyttri aðal- og deiliskipulagstilögu verði vísað í kynningarferli skv. 2. mgr. 30. gr. og 4. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.* ** ** **** **** **** ****
Fundargerð atvinnu- og menningarnefndar frá 29.1.2024
Fundargerðin er í 5 liðum og þarfnast 2 liðir afgreiðslu sveitarstjórnar.
a) Í lið 2, erindi frá foreldrafélagi Þelamerkurskóla
Foreldrafélag Þelamerkurskóla óskar eftir styrk kr. 300.000 til að fara með nemendur á menningarviðburði.
*Sveitarstjórn samþykkti að veittur verði styrkur kr. 300.000 til að fara með nemendur skólans á menningarviðburði.*
b) Í lið 4, vinnuskólinn
Umræða um breyttan vinnutíma í framhaldi af erindi ungmennaráðs.
*Sveitarstjórn samþykkti að auka vinnutíma nemenda í 10. bekk um 40 klst. Vinnutími helst óbreyttur í 4 klst. á dag en lengd starfstímabils verði 8 vikur í stað 6.*
Fundargerð stjórnar Norðurorku frá 294. fundi
Fundargerðin lögð fram.
****
Húsnæðisáætlun Hörgársveitar 2024
Lögð fram tillaga að húsnæðisáætlun til umræðu og afgreiðslu, en tillagan hefur verið yfirfarin af Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.
*Sveitarstjórn samþykkti húsnæðisáætlunina eins og hún liggur fyrir.*
Fleira gerðist ekki, fundi slitið kl. 10:40