Hörgársveit
Sveitarstjórn fundur nr. 162
= Sveitarstjórn fundur nr. 162 =
Fimmtudaginn 22. febrúar 2024 kl. 08:45 kom sveitarstjórn Hörgársveitar saman til fundar á skrifstofu sveitarfélagsins í Þelamerkurskóla.
Fundarmenn: Axel Grettisson oddviti, Jón Þór Benediktsson, Ásrún Árnadóttir, Sunna María Jónasdóttir og Jónas Þór Jónasson
Fundarritari: Snorri Finnlaugsson sveitarstjóri
Þetta gerðist:
**1. Fundargerð kjörstjórnar frá 8.2.2024**Fundargerðin lögð fram. **2. Fundargerð afgreiðslufundar SBE frá 66. fundi**Fundargerðin lögð fram. **3. Fundargerð stjórnar Hafnarsamlags Norðurlands frá 285. fundi**Fundargerðin lögð fram. **4. Fundargerð stjórnar SSNE frá 60. fundi**Fundargerðin lögð fram. **5. Fundargerð stjórnar Samb. ísl. sveitarfélaga frá 942. fundi**Fundargerðin lögð fram. **6. Fundargerð Heilbrigðiseftirsnefndar Norðurlands eystra frá 234. fundi**Fundargerðin lögð fram. **7. Fundargerð hluthafafundar Norðurorku frá 7.2.2024**Fundargerðin lögð fram ásamt erindi frá stjórn Norðurorku. *Sveitarstjórn samþykkti að fela sveitarstjóra að svara erindinu í samræmi við umræður á fundinum.* **8. Samþykkt um gatnagerðargjald í þéttbýli í Hörgársveit**Lögð fram drög að samþykkt fyrir gatnagerðargjald í þéttbýli í Hörgársveit. *Sveitarstjórn staðfesti samþykktina og felur sveitarstjóra að annast gildistöku hennar.* **9. Reglugerð um sjálfbæra landnýtingu**Drög að reglugerð um sjálfbæra landnýtingu er í samráðsgátt stjórnvalda og er heimilt að senda inn umsagnir til 22.2.2024. Lögð var fram tillaga að umsögn Hörgársveitar. *Sveitarstjórn samþykkti umsögnina og felur sveitarstjóra að senda hana í samráðsgátt stjórnvalda.*
Fleira gerðist ekki, fundi slitið kl. 10:25