Ísafjarðarbær
Umhverfis- og framkvæmdanefnd 143. fundur
= Umhverfis- og framkvæmdanefnd =
Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir
[aðrar fundargerðir](https://www.isafjordur.is/is/stjornsysla/stjornsyslan/fundargerdir/eldri-fundargerdir)
Dagskrá
=== 1.Tjaldsvæði í Tungudal - útboð 2024 - 2024010013 ===
Lagt fram minnisblað Smára Karlssonar, verkefnastjóra á umhverfis- og eignasviði, dagsett 14. febrúar 2024, um útboð á rekstri tjaldsvæðisins í Tungudal.
Umhverfis- og framkvæmdanefnd felur starfsmanni nefndar að hefja vinnu við útboðsgögn vegna Tjaldsvæðisins í Tungudal og leggja fyrir nefnd, ásamt gæðahandbók tjaldsvæða.
=== 2.Sorpmál - eftirlit og skýrslur 2024 - 2024010050 ===
Lögð fram gögn frá Kubbi ehf. um jarðgerð fyrirtækisins.
Umhverfis- og framkvæmdanefnd óskar eftir að heimsækja verktaka og kynna sér jarðgerðarferlið. Starfsmanni falið að vera í sambandi við Samband íslenskra sveitarfélaga varðandi valmöguleika í jarðgerð.
=== 3.Snjósöfnun Ísafjarðarbæjar á íþróttasvæðinu Torfnesi - 2024020118 ===
Lagt fram minnisblað Dagnýjar Finnbjörnsdóttur, íþrótta- og æskulýðsfulltrúa, varðandi snjósöfnun við íþróttasvæðið á Torfnesi.
Umhverfis- og framkvæmdanefnd felur starfsmanni nefndar að ræða við forstöðumann áhaldahúss um mögulegar lausnir og losunarstaði.
=== 4.Ársfundur náttúruverndarnefnda - 2024020133 ===
Lagður fram tölvupóstur frá Davíði Örvari Hanssyni hjá Umhverfisstofnun um ársfund náttúruverndarnefnda sem haldinn verður á Ísafirði 21. mars.
Lagt fram til kynningar.
Fundi slitið - kl. 09:35.
Er hægt að bæta efnið á síðunni?