Grindavíkurbær

Bæjarstjórn - Fundur 561

26.03.2024 - Slóð - Skjáskot

    **561. fundur bæjarstjórnar Grindavíkur haldinn í Tollhúsinu við Tryggvagötu, þriðjudaginn 26. mars 2024 og hófst hann kl. 10:00.**

Fundinn sátu: Ásrún Helga Kristinsdóttir forseti, Birgitta H. Ramsay Káradóttir aðalmaður, Hjálmar Hallgrímsson aðalmaður, Helga Dís Jakobsdóttir aðalmaður, Hallfríður G Hólmgrímsdóttir aðalmaður, Birgitta Rán Friðfinnsdóttir aðalmaður og Gunnar Már Gunnarsson, aðalmaður. Einnig sat fundinn: Fannar Jónasson bæjarstjóri. Fundargerð ritaði: Fannar Jónasson bæjarstjóri. Í upphafi fundar óskaði forseti eftir heimild til að taka inn tvö mál á dagskrá með afbrigðum sem 4. og 5. mál: Niðurrif húsa undir hrauni - 2402032 Jarðkönnun í Grindavík vegna náttúruhamfara - 2402008 Samþykkt samhljóða. Dagskrá: 1. Fræðslumál Grindavíkurbæjar - safnskólar - 2402054 Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs, sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs, sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs og Jóhanna Lilja Birgisdóttir yfirsálfræðingur sátu fundinn undir þessum dagskrárlið. Enn fremur sátu Auður Magndísar Auðardóttir lektor og Karen Rut Gísladóttir prófessor fundinn undir þessum dagskrárlið. Þær lögðu fram greinargerð um börn, félagslegar þarfir og skólagöngu í kjölfar náttúruhamfara og fylgdu greinargerðinni eftir og svöruðu fyrirspurnum. Til máls tóku: Ásrún, Jóhanna Lilja, Hallfríður, Helga Dís, sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs, sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs, bæjarstjóri, Birgitta Hrund, sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs og Birgitta Rán. Forseti gerði fundarhlé kl. 10:55. Fundur hófst að nýju kl. 11:42. Bókun: Bæjarstjórn leggur áherslu á mikilvægi þess að þær ákvarðanir sem verða teknar á næstu misserum verði í samræmi við það sem grindvískum börnum er fyrir bestu. Á fundi bæjarstjórnar Grindavíkur sátu auk kjörinna fulltrúa, sviðsstjórar, starfsmenn skólaþjónustu ásamt þeim fagaðilum sem skiluðu greinagerð um safnskóla. Eftir umræður og innihald greinagerðar er ljóst að starf safnskóla er ekki ákjósanlegur kostur. Fyrir liggur að bæjarstjórn þurfi að taka ákvörðun um skólastarf næsta árs og verður ákvörðunin tekin með farsæld barna að leiðarljósi. Greinagerðin segir að niðurstöður rannsókna tilgreina að nám í hverfisskóla nálægt heimili fjölskyldunnar getur flýtt fyrir að barnið og fjölskyldan myndi jákvæð tengsl við þann stað sem þau búa á. Slík tengsl fyrir börn sem hafa þurft að flýja heimili sín getur gert aðskilnaðinn frá heimahögum bærilegri en ella. Bæjarstjórn þakkar starfsmönnum skólaþjónustu og safnskóla Grindavíkurbæjar sem sjálfir hafa lent í náttúruhamförum og áföllum þeim tengdum fyrir þrekvirki sem þau hafa unnið í þágu grindvískra barna á þessum fordæmalausu tímum. Bæjarstjórn mun óska eftir fundi með barna- og menntamálaráðuneytinu, stjórnendum grunnskólans og skólaþjónustu auk annarra lykilstarfsmanna til að vinna málið áfram. 2.Náttúruvá - Hagtölur Grindavíkurbæjar - 2403176 Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs, sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs og sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sátu fundinn undir þessum dagskrárlið. Karl Björnsson ráðgjafi kynnti framsetningu gagnagrunns vegna hagtalna og fleiri upplýsinga sem nýtast mun Grindavíkurbæ. Til máls tóku: Ásrún, Birgitta Rán, Hjálmar, bæjarstjóri, Birgitta Hrund, Helga Dís og Hallfríður. 3.Jarðskjálftar, landris og eldgos í Grindavík 2024 - 2401118 Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs og sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sátu fundinn undir þessum dagskrárlið. Til máls tóku: Ásrún, sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs, Helga Dís, Hjálmar, Birgitta Rán, Birgitta Hrund, bæjarstjóri og Hallfríður. Kynnt var framvinda við gerð varnargarða og möguleg lega á Suðurstrandarvegi norðar þéttbýlisins. 4. Niðurrif húsa undir hrauni - 2402032 Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið. Til máls tóku: Ásrún, sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs, bæjarstjóri, Hjálmar, Hallfríður, Birgitta Rán og Birgitta Hrund. Sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs falið að vinna málið áfram. 5. Jarðkönnun í Grindavík vegna náttúruhamfara - 2402008 Sviðsstjóri sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið. Til máls tóku: Ásrún, sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs, Hjálmar, Birgitta Rán, Birgitta Hrund, Gunnar Már og bæjarstjóri. Bæjarstjórn samþykkir að setja jarðskönnun á golfvellinum í Fasa 2. Bæjarstjórn leggur áherslu á að sem fyrst verði hafist handa við gatnaviðgerðir á gatnamótum Víkurbrautar og Dalbrautar. Sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs falið að vinna málið áfram í samstarfi við almannavarnir. 6. Fundargerðir - Stjórn Samband íslenskra sveitarfélaga 2023 - 2302009 Fundargerð 943. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga dags. 9. febrúar 2024 lögð fram til kynningar. Til máls tók: Ásrún. 7. Fundargerðir - Stjórn Samband íslenskra sveitarfélaga 2023 - 2302009 Fundargerð 944. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga dags. 23. febrúar 2024 lögð fram til kynningar. Til máls tók: Ásrún. 8. Fundargerðir - Stjórn Samband íslenskra sveitarfélaga 2023 - 2302009 Fundargerð 945. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga dags. 28. febrúar 2024 lögð fram til kynningar. Til máls tók: Ásrún. 9. Fundargerðir - Stjórn Samband íslenskra sveitarfélaga 2023 - 2302009 Fundargerð 946. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga dags. 15. mars 2024 lögð fram til kynningar. Til máls tók: Ásrún. 10. Fundargerðir - Kalka sorpeyðingarstöð 2024 - 2403177 Fundargerð 556. fundar Kölku dags. 19. mars 2024 lögð fram til kynningar. Til máls tóku: Ásrún, Hallfríður, Hjálmar, Helga Dís, Birgitta Hrund, 11.Fundargerðir - Heilbrigðisnefnd Suðurnesja 2024 - 2403181 Fundargerð 309. fundar Heilbrigðisnefndar Suðurnesja dags. 7. febrúar 2024 lögð fram til kynningar. Til máls tóku: Ásrún og Birgitta Hrund. Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 13:25. Bæjarstjórn / 17. apríl 2024 Fundur 564 Skipulagsnefnd / 10. apríl 2024 Fundur 131 Bæjarstjórn / 4. apríl 2024 Fundur 562 Bæjarstjórn / 10. apríl 2024 Fundur 563 Bæjarstjórn / 26. mars 2024 Fundur 561 Skipulagsnefnd / 21. febrúar 2024 Fundur 129 Bæjarstjórn / 19. mars 2024 Fundur 560 Bæjarstjórn / 12. mars 2024 Fundur 559 Bæjarstjórn / 20. febrúar 2024 Fundur 556 Bæjarstjórn / 13. febrúar 2024 Fundur 555 Bæjarstjórn / 8. febrúar 2024 Fundur 554 Bæjarstjórn / 30. janúar 2024 Fundur 553 Bæjarstjórn / 23. janúar 2024 Fundur 552 Bæjarstjórn / 16. janúar 2024 Fundur 551 Bæjarstjórn / 9. janúar 2024 Fundur bæjarstjórnar nr. 550 Bæjarstjórn / 29. desember 2023 Fundur bæjarstjórnar nr. 549 Bæjarstjórn / 27. desember 2023 Fundur bæjarstjórnar nr. 548 Bæjarráð / 5. desember 2023 Fundur 1659 Bæjarstjórn / 28. nóvember 2023 Fundur 547 Bæjarráð / 7. nóvember 2023 Fundur 1658 Bæjarstjórn / 31. október 2023 Fundur 544 Skipulagsnefnd / 16. október 2023 Fundur 127 Fræðslunefnd / 12. október 2023 Fundur 136 Fræðslunefnd / 21. september 2023 Fundur 135

Framleitt af pallih fyrir gogn.in