Vopnafjarðarhreppur
Umhverfis- og framkvæmdaráð - 16
== Fundur nr. 16 ==
Kjörtímabilið 2022—2026
Kjörtímabilið 2022—2026
Skrifstofa Vopnafjarðarhrepps kl. 10:00
Íris Edda Jónsdóttir ritaði fundargerð
BS
Borghildur SverrisdóttirNefndarmaður
AÓS
Aðalbjörg Ósk SigmundsdóttirNefndarmaður
IDJ
Ingólfur Daði JónssonNefndarmaður
LÁ
Lárus ÁrmannssonNefndarmaður
AKÁ
Agnar Karl ÁrnasonNefndarmaður
KÓP
Kristrún Ósk PálsdóttirNefndarmaður
SGS
Sigurður Grétar SigurðssonNefndarmaður
ÍEJ
Íris Edda JónsdóttirNefndarmaður
Fundur haldinn í umhverfis- og framkvæmdaráði Vopnafjarðarhrepps 10. apríl 2024 á skrifstofu Vopnafjarðarhrepps kl 10:00. Verkefnastjóri, Valdimar O. Hermannsson óskar eftir setu sem áheyrnarfulltrúi á fundinum, borið upp til samþykkar. Samþykkt samhljóða. Í upphafi fundar var leitað afbrigða með því að bæta inn erindinu: „Umsókn um framkvæmdaleyfi vegna endurheimt votlendis á jörðinni Vatnsdalsgerði”. Samþykkt samhljóða.
Erindi vísað frá sveitarstjórn til umræðu og afgreiðslu.
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir að vísa þessu erindi til vinnu við endurskoðun aðalskipulags.
Samþykkt samhljóða.
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir tillögu skipulagsráðgjafa um viðbrögð við athugasemdum enda kemur fram að hann telur að hægt sé að koma til móts við allar athugasemdir sem bárust.
Umhverfis- og framkvæmdaráð leggur til við sveitarstjórn að tillagan verði auglýst.
Samþykkt samhljóða.
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir að grenndarkynna erindið fyrir eigendum Torfastaða, Torfastaðaskóla, Skóga og Ljótsstaða og kynna jafnframt á vef sveitarfélagsins.
Ráðið samþykkir að leita umsagna hjá HAUST, RARIK, Minjastofnun, Skógræktinni, Fiskistofu, Veiðifélaginu Vesturdalsá, Umhverfisstofnun, Vegagerðinni, Náttúrufræðistofnun Íslands og Ráðgjafarmiðstöð Landbúnaðarins.
Samþykkt samhljóða.
Fyrir liggur vinnslutillaga að breytingu á aðalskipulagi fyrir nýtt veiðihús í landi Hofs við Hofsá ásamt vinnslutillögu fyrir nýtt deiliskipulag.
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir að leggja til við sveitarstjórn að tillögurnar verði auglýstar og kynntar umsagnaraðilum.
Samþykkt samhljóða.
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir að falla frá grenndarkynningu með vísan til 5 mgr. 13. gr skipulagslaga og heimilar skipulags- og byggingafulltrúa að gefa út framkvæmdleyfi þegar fullnægjandi gögn hafa borist.
Samþykkt samhljóða.
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir að falla frá grenndarkynningu með vísan til 5. mgr. 13. gr skipulagslaga og heimilar skipulags- og byggingafulltrúa að gefa út framkvæmdarleyfi þegar fullnægjandi gögn hafa borist.
Samþykkt samhljóða.
Fleira var ekki tekið fyrir og fundi slitið kl. 10:44