Vopnafjarðarhreppur
Menningar- og atvinnumálanefnd - 18
== Fundur nr. 18 ==
Kjörtímabilið 2022—2026
Kjörtímabilið 2022—2026
Skrifstofa Vopnafjarðarhrepps kl. 08:30
Íris Edda Jónsdóttir ritaði fundargerð
FBF
Fanney Björk FriðriksdóttirNefndarmaður
BM
Bobana MicanovicNefndarmaður
HBÓ
Hafdís Bára ÓskarsdóttirNefndarmaður
SB
Sigríður BragadóttirNefndarmaður
HG
Hreiðar GeirssonNefndarmaður
RLG
Ragna Lind GuðmundsdóttirNefndarmaður
USÖS
Urður Steinunn Önnudóttir SahrNefndarmaður
ÍEJ
Íris Edda JónsdóttirNefndarmaður
Fundur nr. 18 kjörtímabilið 2022-2026 í menningar- og atvinnumálanefnd Vopnafjarðarhrepps verður haldinn á skrifstofu Vopnafjarðarhrepps miðvikudaginn 13. mars klukkan 8:30.
Arna Björg Bjarnadóttir, verkefnastjóri Nýtingarmiðstöðvar á Vopnafirði, mætir á fund gegnum fjarfundarbúnað og kynnir stöðu verkefnisins.
Menningar- og atvinnumálanefnd þakkar Örnu fyrir kynninguna.
Farið yfir breytingar á aðalskipulagi Vopnafjarðarhrepps með tilliti til ferðaþjónustu og afþreyingar á svæðinu.
Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum:
**Menningar- og atvinnumálanefnd ákveður að senda fyrirspurn varðandi aukningu á svæði í aðalskipulagi Vopnafjarðarhrepps fyrir ferðaþjónustu/afþreyingu á svæðinu. Formanni og starfsmanni nefndarinnar falið að skrifa fyrirspurn og senda til byggingar- og skipulagsfulltrúa Vopnafjarðarhrepps og umhverfis- og skipulagsráðs.**
Tillagan er borin upp til samþykktar. Samþykkt samhljóða.
Umræða um fyrirkomulag Vopnaskaks.
Starfsmanni nefndarinnar falið að auglýsa eftir hugmyndum í tengslum við hátíðina.
Fleira var ekki tekið fyrir og fundi slitið 09:59.