Dalabyggð
Atvinnumálanefnd Dalabyggðar - 46
|Carolin Baare Schmidt og Skjöldur Orri Skjaldarson voru gestir á fundinum undir dagskrárlið 1.|
**1. 2301016 - Tjaldsvæðið í Búðardal 2023**
|Carolin og Skjöldur fara yfir rekstur síðasta ár og áætlanir 2024.|
Sorpflokkun gesta ekki sú besta þó merkt ílát séu til staðar, fólk virðist gleyma sér þegar það er í fríi. Skilar sér í kostnaði og vinnu.
Stefnt að því að endurnýja tenglahús á tjaldsvæðinu fyrir sumarið og unnið að áætlun fyrir drenun.
Rekstraraðilar vinna að betra skipulagi á tjaldsvæðinu með tilliti til gróðurs, vegar, gönguleiða á svæðinu, brunavarna o.s.frv.
Ábending til sveitarfélagsins varðandi fjölda aðila sem gista í tjöldum, húsbílum, hjólhýsum, tjaldvögnum og öðrum ferðabílum utan tjaldsvæða í Dalabyggð, m.a. á almennum bílastæðum, við veiðistaði meðfram ám o.s.frv.
Í lögreglusamþykkt fyrir Dalabyggð segir: "Eigi má gista í tjöldum, húsbílum, hjólhýsum eða tjaldvögnum á almannafæri í þéttbýli utan sérmerktra svæða."
Nefndin þakkar Carolin og Skildi fyrir komuna.
**2. 2402009 - Þróunarverkefni í Dalabyggð 2024**
|Nefndin skoði umræðuefni og kynningar fyrir komandi kaffispjall í Nýsköpunarsetrinu með tilliti til þróunarverkefna í sveitarfélaginu.|
Rætt um hugmyndir fyrir afþreyingarmöguleika, framleiðslu matvæla í héraðinu, möguleika ferðaþjónustunnar og fleira. Tækifærin til staðar og fjöldi hugmynda. Ýmsir möguleikar hafa opnast til uppbyggingar á þessu sviði m.a. með DalaAuði, eflingu nýsköpunar á öllum skólastigum og styrkingu ímyndar Dalanna.
**3. 2404009 - Forgangsröðun fjarskiptamála í Dalabyggð**
|Farið yfir það sem komið er inn í skýrsluna og nefndin vinnur áfram að forgangsröðun fjarskiptamála.|
**4. 2404014 - Forgangsröðun vegaframkvæmda í Dalabyggð**
|Í forgangsröðun vegaframkvæmda í Dalabyggð kemur fram: "Forgangsröðun þessi verði uppfærð árlega þar sem hún er borin undir íbúa á opnum fundi, ásamt því að fá umfjöllun atvinnumálanefndar. Að uppfærslu lokinni verði hún tekin fyrir hjá sveitarstjórn Dalabyggðar og send fyrrnefndum aðilum að nýju."|
Lagt til að opinn fundur verði haldinn þriðjudaginn 4. júní 2024, öll velkomin.
[Forgangsröðun_samþykkt_2023.pdf](
displaydocument.aspx?
itemid=6mqadIf3S06uyMgmSvUa_w&meetingid=Dh2kVG6jEixCeFIUxnSw1)
**5. 2401029 - Upplýsingar um atvinnuleysi 2024**
|Lagt fram til kynningar.|
[februar-2024-skyrsla.pdf](
displaydocument.aspx?
itemid=A4kGXrIUJ0CRK3uTb8dXew&meetingid=Dh2kVG6jEixCeFIUxnSw1)
[mars-2024-skyrsla.pdf](
displaydocument.aspx?
itemid=kVCIwfz7D0qXMDHC5bSJXA&meetingid=Dh2kVG6jEixCeFIUxnSw1)