Fjarðabyggð
Stjórn menningarstofu - 4
**1. 2305067 - Starfs- og fjárhagsáætlun stjórnar menningarstofu- og safnastofnunar 2024**
|Farið yfir rekstur fyrstu þrjá mánuði ársins 2024.|
Rekstur málaflokksins er innan marka utan kostnaðar sem tengist stjórnkerfisbreytingum og á eftir að leiðrétta.
**2. 2402237 - Starfsemi og þjónusta safna Fjarðabyggðar sumarið 2024**
|Vísað frá síðasta fundi stjórnar. Farið yfir stöðu í skipulagningu á rekstri minjasafna 2024. Unnið er að undirbúningi opnunar sumarsýninga safnanna hjá sveitarfélaginu. Stjórn Menningarstofu mun ræða safnamál sveitarfélagsins áfram á næstu fundum sínum.|
**3. 2404154 - Framlag til reksturs 2024**
|Framlagt erindi frá Sköpunarmiðstöðinni um framkvæmdir 2023 og áætlanir fyrir árið 2024. Óskað er eftir framlagi til framkvæmda og verkefna líkt og síðasta ár.|
Stjórnin samþykkir að veita styrk til samræmis við fjárhagsáætlun ársins 2024 til endurgerðar á húsnæði miðstöðvarinnar.
**4. 2404171 - Sómastaðir, samningur um umsjón húss.**
|Framlagður tölvupóstur Þjóðminjasafns um umsjón með húsinu að Sómastöðum í Reyðarfirði.|
Stjórnin þakkar gott boð en getur því miður ekki tekið að sér umsjón með húsnæðinu.