Vopnafjarðarhreppur
Hreppsráð - 26
== Fundur nr. 26 ==
Kjörtímabilið 2022—2026
Kjörtímabilið 2022—2026
Skrifstofa Vopnafjarðarhrepps kl. 08:00
Íris Edda Jónsdóttir ritaði fundargerð
AÓS
Aðalbjörg Ósk SigmundsdóttirNefndarmaður
SGS
Sigurður Grétar SigurðssonNefndarmaður
BHS
Björn Heiðar SigurbjörnssonNefndarmaður
ÍEJ
Íris Edda JónsdóttirRitari
Aukafundur haldinn í hreppsráði Vopnafjarðarhrepps þann 19. apríl 2024 á skrifstofu Vopnafjarðarhrepps kl. 08:00.
Umsóknarfrestur um starf sveitarstjóra rann út 11.
apríl síðastliðinn og bárust alls 17 umsóknir, 2 hafa dregið umsókn sína til
baka. Ráðningarferlið hefur verið í vinnslu hjá Attentus - mannauður og
ráðgjöf og hefur sveitarstjórn fengið frá þeim mat á umsækjendum út frá
umsóknargögnum og eru þrír aðilar sem Attentus telur að vert sé að skoða
betur.
Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum:
**Hreppsráð samþykkir að leita til Attentus með
áframhaldandi vinnu við ráðninguna og hefur ákveðið fjóra einstaklinga sem
boðaðir verða í viðtöl með hreppsráði. **
Tillagan er borin upp til samþykktar. Samþykkt samhljóða.
Lagt fram minnisblað um stöðu gatnaframkvæmda, til
kynningar.
Beiðni um endurskoðaða afstöðu Matvælaráðuneytisins varðandi sérstök skilyrði (sérreglur) vegna byggðakvóta á fiskveiðiárinu 2023/2024.
Ákvæði reglugerðar nr. 852/2023 gilda um úthlutun byggðakvóta Vopnfjarðarhrepps með eftirfarandi breytingu: Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Fiskiskipum er skylt að landa í sveitarfélaginu þeim afla sem telja á til byggðakvóta, og til vinnslu í nærliggjandi sveitarfélögum, á tímabilinu 1. september 2023 til 31. ágúst 2024.
Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum:
** Hreppsráð felur ** **verkefnastjóra að senda ráðuneytinu eftirfarandi ósk um breytingu á ** **reglugerð nr. 852/2023 um byggðakvóta.**
Tillagan er borin upp til samþykktar. Samþykkt samhljóða.
Fleira var ekki tekið fyrir og fundi slitið kl. 09:10.