Vesturbyggð
Bæjarráð - 982
= Bæjarráð #982 =
Fundur haldinn í fjarfundi, 22. apríl 2024 og hófst hann kl. 12:00
====== Nefndarmenn ======
- Anna Vilborg Rúnarsdóttir (AVR) aðalmaður
- Jón Árnason (JÁ) aðalmaður
- Þórkatla Soffía Ólafsdóttir (ÞSÓ) formaður
====== Starfsmenn ======
- Gerður Björk Sveinsdóttir (GBS) sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
====== Fundargerð ritaði ======
- Gerður Björk Sveinsdóttir sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
== Almenn erindi ==
=== 1. Ársreikningur 2023 ===
Lagður fram í fyrri umræðu Ársreikningur Vesturbyggðar stofnana hans fyrir árið 2023.
Bæjarráð vísar ársreikningi 2023 til fyrri umræðu í bæjarstjórn.
=== 2. Hafnarbraut, Bíldudal. Umsókn um lóð undir hótelbyggingu. ===
Lögð er fram umsókn BA 64 ehf., móttekin 2. apríl 2024, þar sem sótt er um lóð vegna hótelbyggingar við höfnina á Bíldudal eða viljayfirlýsingu þar um.
Vísað er sérstaklega til nýlegrar breytingar á reglum Vesturbyggðar um úthlutun lóða þar sem segir að bæjarstjórn sé heimild í sérstökum tilvikum vegna ríkra hagsmuna sveitarfélagsins að úthluta lóðum án auglýsingar til lögaðila vegna stærri uppbyggingarvrekefna, enda liggi fyrir samningur milli sveitarfélagsins og viðkomandi aðila.
Bæjarráð tekur vel í beiðnina og fagnar verkefninu. Bæjarstjóra falið að stilla upp samningi í samráði við umsækjendur lóðarinnar og leggja að nýju fyrir ráðið.
=== 3. Úttekt á starfssemi og framtíðarfyrirkomulagi náttúrustofa ===
Lagður er fram til samþykktar viðauki við samning milli Bolungarvíkurkaupstaðar, Ísafjarðarbæjar, Strandabyggðar, Súðavíkurhrepps, Tálknafjarðarhrepps og Vesturbyggðar annars vegar og umhverfis- og auðlindaráðuneytisins hins vegar um rekstur Náttúrustofu Vestfjarða, um framlengingu samningsins til ársloka 2024.
Bæjarráð Vesturbyggðar samþykkir að taka áfram þátt í verkefninu sem einn rekstraraðila og felur bæjarstjóra að undirrita samninginn fyrir hönd sveitarfélagsins.
== Til kynningar ==
=== 4. Til samráðs - drög að reglugerð um breytinu á reglugerð nr.162-2006 um gjaldtöku fyrirtækjaskrár, hlutafélagaskrár, samvinnufélagaskrár, almannaheillafélagaskrár o.fl., með síðari breytingum. ===
Lagður fram tölvupóstur frá menningar- og viðskiptaráðuneytinu dags. 11. april sl. þar sem óskað er umsagnar um drög að reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 162/2006 um gjaldtöku fyrirtækjaskrár, hlutafélagaskrár, samvinnufélagaskrár, almannaheillafélagaskrár o.fl., með síðari breytingum.
**Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 12:25**