Fjarðabyggð
Skipulags- og framkvæmdanefnd - 8
**1. 2402161 - Æðavarp á Reyðarfirði**
|Umræða um stöðu mála varðandi æðarvarp á Reyðarfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur verkefnastjóra umhverfismála að friðlýsa æðarvarp í landi Kollaleiru í Reyðarfirði og hefja undirbúning að útboði varpsins í kjölfarið fyrir varptíma 2024.|
**2. 2209189 - Ný staðsetning gámasvæða**
|Framlögð tillaga að nýrri staðsetningu gámasvæðis á Reyðarfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur sviðsstjóra framkvæmda- og umhverfissviðs að ræða verkefnastjóra hafna varðandi mögulega staðsetningu á nýs gámasvæðis á Mjóeyrarhöfn.|
**3. 2207125 - Breiðablik þjónustuíbúðir aldraðra - ástand húsnæðis**
|Framlögð tillaga að svari til HAUST vegna Breiðabliks. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir drög að svari og felur sviðsstjóra framkvæmda- og umhverfissviðs að svara erindinu.|
**4. 2404158 - Tilkynning um úrskurð v/ Hafnargötu 36**
|Framlagður úrskurður umhverfis- og auðlindanefndar vegna Hafnargötu 36 á Fáskrúðsfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd þakkar fyrir kynninguna.|
[111 2023 Hafnargata .pdf](
displaydocument.aspx?
itemid=wz950B_bz0Kt_yFRK7K5EQ&meetingid=ViDOdmRb0Ue7LmwB4gt9Q1
&filename=111 2023 Hafnargata .pdf)
**5. 2402235 - Leirubakki 9 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi**
|Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi Fjarðabyggðarhafna að Leirubakka 9 á Eskifirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur skipulags- og byggingarfulltrúa að grenndarkynna byggingaráformin.|
**6. 2404178 - Deiliskipulag breyting Leira 1**
|Framlögð tillaga að breytingu á deilskipulaginu Leira 1 á Eskifirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd frestar málinu vegna fyrirhugaðra breytinga á aðalskipulagi.|
[2738-021-DSK-001-V01_DSK_breyting á Leirubakka og Bleiksá.pdf](
displaydocument.aspx?
itemid=rfBfhV5nkKJT9Q9XsV4Q&meetingid=ViDOdmRb0Ue7LmwB4gt9Q1
&filename=2738-021-DSK-001-V01_DSK_breyting á Leirubakka og Bleiksá.pdf)
**7. 2404174 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Skólavegur 56**
|Framlögð umsókna Gunnars Geirs Kristjánssonar um endurnýjun á lóðaleigusamningi fyrir lóðina að SKólavegi 56 á Fáskrúðsfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir stækkun lóðar og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að gefa út nýjan lóðarleigusamning.|
**8. 2404156 - Egilsbraut 22 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi**
|Framlögð umsókn um byggingaráfrom og byggingarleyfi Steindórs H. Stefánsson f.h. Hildibrand ehf. vegna nýbyggingar á lóðini að Egilsbraut 22. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur skipulags- og byggingarfulltrúa að grenndarkynna byggingaráformin og leggja fyrir nefnd að nýju.|
[Egilsbraut 22 - eldhús-A3-Afstöðumynd.pdf](
displaydocument.aspx?
itemid=T1z6fUk0NEapRymS_1vYg&meetingid=ViDOdmRb0Ue7LmwB4gt9Q1
&filename=Egilsbraut 22 - eldhús-A3-Afstöðumynd.pdf)
**9. 1808042 - Fjárréttir í Fjarðabyggð**
|Ný fjárrétt í Norðfirði fyrir haustið 2024. Skipulags- og framkvæmdarnefnd felur skipulags- og byggingarfulltrúa að koma með tillögu að staðsetningu á fjárrétt í Norðfirði.|
**10. 2404135 - Mógerði 1 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi**
|Mógerði 1 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi. Niðurstaða grenndarkynningar, lagðar fram undirskriftir allra hlutaðeigandi aðila. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur skipulags- og byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi er öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað. |