Reykjavíkurborg
Fjölmenningarráð - Fundur nr. 71
==
==
[Fjölmenningarráð - Fundur nr. 71
](/fundargerdir/fjolmenningarrad-fundur-nr-71)
**Fjölmenningarráð**
Ár 2024, þriðjudaginn 30. apríl var haldinn 71. fundur fjölmenningarráðs Reykjavíkurborgar. Fundurinn var í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl.15.05. Fundinn sátu Helgi Áss Grétarsson,
[Fanný Gunnarsdóttir], Monika Gabriela Bereza og Maria Sastre. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum með rafrænum hætti með vísan til heimildar í 2. málsl. 4. mgr. 44. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar sbr. 3. mgr. 17. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011: Mouna Nasr. Einnig sat eftirfarandi starfsmaður fundinn: Elísabet Pétursdóttir. [Joanna Marcinkowska ]ritaði fundargerð. **Þetta gerðist:**
Framlagningu á verklagsreglum fjölmenningarráðs Reykjavíkurborgar, er frestað. MSS24040209
Fram fer kynning á samráð um skipulagsmál í Reykjavíkurborg við fjölmenningarsamfélag.
Ævar Harðarson tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. MSS24040211
Fylgigögn
Fram fer umræða um þátttöku íbúa af erlendum uppruna í kosningum í ljósi forsetakosningar sem verða 1. júní nk.
Fulltrúi Samtaka kvenna af erlendum uppruna á Íslandi W.O.M.E..N leggur svohljóðandi bókun:
Lýðræði er öflugt kerfi sem gerir borgarbúum kleift að taka þátt í hvernig Reykjavíkurborg er stjórnað, stuðla að gagnsæi, ábyrgð og inngildingu. Besta leiðin til að ná þessum markmiðum er í gegnum traust og fjölbreytt samfélag.
Sigurlaug Anna Jóhannsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið. MSS24040210
Fylgigögn
Fram fer umræða um Fjölmenningarþing 2024 sem verður haldið þann 4. maí n.k.
Guðný Bára Jónsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið. MSS23010211
**Fundi slitið kl. 16.35**
Helgi Áss Grétarsson Fanný Gunnarsdóttir
Maria Sastre Monika Gabriela Bereza
Mouna Nasr
**PDF útgáfa fundargerðar Fundargerð fjölmenningarráðs frá 30. apríl 2024**