Reykjavíkurborg
Íbúaráð Grafarholts og Úlfarsárdals - Fundur nr. 43
==
==
[Íbúaráð Grafarholts og Úlfarsárdals - Fundur nr. 43
](/fundargerdir/ibuarad-grafarholts-og-ulfarsardals-fundur-nr-43)
**Íbúaráð Grafarholts og Úlfarsárdals**
Ár 2024, miðvikudagurinn, 15. maí, var haldinn 43. fundur íbúaráðs Grafarholts og Úlfarsárdals. Fundurinn var haldinn í Menningarmiðstöðinni í Úlfarsárdal og hófst kl. 16.03. Eftirtaldir fulltrúar voru viðstaddir: Guðný Maja Riba, Ellen Ellertsdóttir, Herdís Björnsdóttir, og Stefán Pálsson. Fundinn sátu einnig Trausti Jónsson og Sigurlaug Anna Jóhannsdóttir sem ritaði fundargerð.
**Þetta gerðist:**
Lagt fram bréf mannréttinda- og lýðræðisskrifstofu dags. 23. apríl 2024, ásamt fylgiskjölum um aðkomu íbúaráða að fjárfestinga- og viðhaldáætlun 2024 – 2028. MSS24040187.
Samþykkt að fela formanni íbúaráðs í samráði við fulltrúa ráðsins að vinna tillögur íbúaráðs Grafarholts og Úlfarsárdals að fjárfestingar- og viðhaldsverkefnum fyrir 31. maí nk.
- Kl. 16.13 taka Heiða Björk Júlíusdóttir og Björn Ingi Björnsson sæti á fundinum.
Fylgigögn
Fram fer umræða um málefni hverfisins. MSS22090034
Lagðar fram umsóknir styrkja úr Hverfissjóð Reykjavíkurborgar. MSS24030095.
Samþykkt að veita verkefninu Hólmsheiðarhlaup, styrk að upphæð kr. 80.000,-
Samþykkt að veita verkefninu Kveðjukvöld fyrir 10. bekk, styrk að upphæð kr. 50.000,-
Samþykkt að veita verkefninu Vor/sumarhátíð, styrk að upphæð kr. 200.000,-
Samþykkt að veita verkefninu Vorhátíð Fram, styrk að upphæð kr. 220.000,-
Öðrum styrkumsóknum er hafnað.
Þessi liður fundarins er lokaður með vísan til 7. gr. samþykktar fyrir íbúaráð Reykjavíkurborgar.
**Fundi slitið kl. 17:03**
Guðný Maja Riba Stefán Pálsson
Herdís Björnsdóttir Björn Ingi Björnsson
Ellen Ellertsdóttir Heiða Björk Júlíusdóttir
**PDF útgáfa fundargerðar Fundargerð íbúaráðs Grafarholts og Úlfarsárdals frá 15. maí 2024**