Hvalfjarðarsveit

Sveitarstjórn 399. fundur

22.05.2024 - Slóð - Skjáskot

    = Sveitarstjórn =

Dagskrá === 1.Sveitarstjórn - 398 === 2404011F Fundargerðin framlögð. === 2.Mannvirkja- og framkvæmdanefnd - 71 === 2404009F Fundargerðin framlögð. ÓÖK fór yfir helstu atriði fundarins. ÓÖK fór yfir helstu atriði fundarins.

  • 2.2 2001040 Göngu og reiðhjólastígar í sveitarfélaginuMannvirkja- og framkvæmdanefnd - 71 Mannvirkja- og framkvæmdanefnd leggur til við sveitastjórn að lagður verði göngustígur frá bílaplani við Saurbæ og niður í fjöru við Hvalfjörð. Verkefnastjóra framkvæmda og eigna verði einnig falið að útbúa verðkönnunargögn fyrir verkið og leita eftir tilboðum. Bókun fundar Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu: "Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar staðfestir bókun nefndarinnar og samþykkir að lagður verði göngustígur frá bílaplani við Saurbæ og niður í fjöru við Hvalfjörð. Verkefnastjóra framkvæmda og eigna er falið að útbúa verðkönnunargögn fyrir verkið og leita eftir tilboðum." Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum. === 3.Menningar- og markaðsnefnd - 52 === 2405000F Fundargerðin framlögð. BSG fór yfir helstu atriði fundarins. BSG fór yfir helstu atriði fundarins.
  • 3.1 2402041 Menningarsjóður Hvalfjarðarsveitar 2024.Menningar- og markaðsnefnd - 52 Fimm umsóknir bárust um styrk í Menningarsjóð Hvalfjarðarsveitar 2024. Heildarupphæð til úthlutunar er kr. 850.000.- Eigendur jarðarinnar Leirá í Leirársveit, Anna Leif Auðar Elídóttir og Ásgeir Kristinsson óska eftir kr. 750.000.- styrk vegna menningarviðburða á Leirá á Hvalfjarðardögum 16-18 ágúst 2024. Tónleikanefnd Sumartónleika í Hallgrímskirkju í Saurbæ, sækir um stuðning til tónleika starfseminnar sumarið 2024. Óskað er eftir upphæð kr.400.000. Kór Saurbæjarprestakalls sækir um styrk að fjárhæð kr. 500.000.- fyrir árið 2024. Stefnan fyrir þetta ár er að halda tónleika með lögum Gunnars Þórðarsonar. Kórinn er eins og áður tilbúinn til að syngja við alls kyns uppákomur í sveitinni ef beðið er um. Hollvinafélag Hallgrímskirkju í Saurbæ sækir um styrk til menningardagskrá á Hallgrímsdögum að hausti 2024 og til að hefja vinnu við kynningarbækling um kirkjuna og listaverk kirkjunnar; listglugga Gerðar Helgadóttur og altaristöflu Lennart Segerståle. Óskað er eftir kr. 500.000.- Foreldrafélag leik- og grunnskóla Hvalfjarðarsveitar óskar eftir kr. 400.000.- styrk sem ætlaður sem auka fjármagn til þess að geta gert vorhátíðirnar að veruleika. Vorhátíð Skýjaborgar fer fram 23. Maí og vorhátíð Heiðarskóla verður 31. Maí. Menningar- og markaðsnefnd samþykkir að veita eftirfarandi styrki: Eigendum jarðarinnar Leirá í Leirársveit 200.000 kr. Styrk Tónleikanefnd Sumartónleika í Hallgrímskirkju í Saurbæ 150.000 kr. Styrk Kór Saurbæjarprestakalls 150.000 kr. Styrk Hollvinafélag Hallgrímskirkju í Saurbæ 100.000 kr. styrk Foreldrafélagi Leik- og grunnskóla Hvalfjarðarsveitar 250.000 kr. styrk. Nefndin lýsir ánægju sinni yfir fjölda umsókna. Nefndin vísar afgreiðslu málsins til sveitarstjórnar. Bókun fundar Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu: "Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar staðfestir afgreiðslu nefndarinnar á umsóknum úr Menningarsjóði Hvalfjarðarsveitar 2024." Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum. === 4.Kjör oddvita og varaoddvita í samræmi við ákvæði 7. gr. samþykkta um stjórn Hvalfjarðarsveitar. === 2305024 Tillaga kom fram um að Andrea Ýr Arnarsdóttir yrði oddviti og var tillagan samþykkt með 7 atkvæðum. Tillaga kom fram um að Helga Harðardóttir yrði varaoddviti og var tillagan samþykkt með 7 atkvæðum. Tillaga kom fram um að Helga Harðardóttir yrði varaoddviti og var tillagan samþykkt með 7 atkvæðum. === 5.Kjör í fastanefndir, aðrar nefndir, stjórnir og ráð sem sveitarfélagið á aðild að skv. 39. gr samþykkta um stjórn Hvalfjarðarsveitar nr. 692-2022. === 2206020 Kosning varamanns í USNL nefnd. Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu: "Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir að Elín Ósk Gunnarsdóttir verði 5. varamaður í USNL nefnd." Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum. "Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir að Elín Ósk Gunnarsdóttir verði 5. varamaður í USNL nefnd." Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum. === 6.Aðalfundur Höfða hjúkrunar- og dvalarheimilis 2024. === 2405011 Erindi frá Höfða, hjúkrunar- og dvalarheimili. Aðalfundur Höfða hjúkrunar- og dvalarheimilis verður haldinn í Höfðasal mánudaginn 27. maí nk. kl. 16:30. Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu: "Sveitarstjórn samþykkir að Linda Björk Pálsdóttir, sveitarstóri, fari með atkvæðisrétt sveitarfélagsins á aðalfundinum." Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum. Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu: "Sveitarstjórn samþykkir að Linda Björk Pálsdóttir, sveitarstóri, fari með atkvæðisrétt sveitarfélagsins á aðalfundinum." Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum. === 7.Galtarlækur - breyting á landnotkun í aðalskipulagi. === 2405015 Erindi frá At Iceland ehf. Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu: "Sveitarstjórn samþykkir að vísa erindinu inn til umfjöllunar í USNL nefnd." Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum. "Sveitarstjórn samþykkir að vísa erindinu inn til umfjöllunar í USNL nefnd." Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum. === 8.Samstarfsnefnd Hvalfjarðarsveitar og Akraneskaupstaðar. === 2309018 Fundargerðir 3. og 4. fundar nefndarinnar. Fundargerðirnar lagðar fram. === 9.Umsögn um frumvarp til laga um lögræðislög (nauðungarvistanir, yfirlögráðendur o.fl.), 925. mál. === 2405014 Erindi frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis. Erindið lagt fram og vísað inn til fjölskyldu- og frístundanefndar. === 10.189. fundur Heilbrigðisnefndar Vesturlands. === 2405007 Fundargerð. Fundargerðin lögð fram. === 11.180. og 181. fundur stjórnar SSV. === 2405018 Fundargerðir. Fundargerðirnar lagðar fram. Fundi slitið - kl. 15:27. Helgi Pétur Ottesen boðaði forföll.
Framleitt af pallih fyrir gogn.in