Reykjavíkurborg
Íbúaráð Miðborgar og Hlíða - Fundur nr. 50
==
==
[Íbúaráð Miðborgar og Hlíða - Fundur nr. 50
](/fundargerdir/ibuarad-midborgar-og-hlida-fundur-nr-50)
**Íbúaráð Miðborgar og Hlíða**
Ár 2024, fimmtudaginn, 23. maí, var haldinn 50. fundur íbúaráðs Miðborgar og Hlíða. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur, Tjarnarbúð og hófst kl. 16.59. Eftirtaldir fulltrúar voru viðstaddir: Geir Finnsson, Kolbrún Jarlsdóttir, Þórey Björk Sigurðardóttir, Hanna Björk Valsdóttir og Sigrún Tryggvadóttir. Einnig sat fundinn Hörður Heiðar Guðbjörnsson með rafrænum hætti og Sigurlaug Anna Jóhannsdóttir sem ritaði fundargerð.
**Þetta gerðist:**
Umræðu um bætta lýsingu í Hljómskálagarðinum, er frestað. MSS24040145
Umræðu um verkefni unglingavinnu og fegrun miðborgarinnar, er frestað. MSS24040146
Lögð fram auglýsing umhverfis- og skipulagssviðs dags. 4. apríl 2024, um tillögu að breytingu á deiliskipulagi Skólavörðustígs 9. USK23110160
Fylgigögn
Lögð fram auglýsing umhverfis- og skipulagssviðs dags. 4. apríl 2024 um tillögu að breytingu á deiliskipulagi Brautarholts 30. USK24020228
Fylgigögn
Lagt fram bréf mannréttinda- og lýðræðisskrifstofu dags. 23. apríl 2024, ásamt fylgiskjölum um aðkomu íbúaráða að fjárfestinga- og viðhaldáætlun 2024 – 2028. MSS24040187
Samþykkt að fela formanni íbúaráðs í samráði við fulltrúa ráðsins að vinna tillögur íbúaráðs Miðborgar og Hlíða að fjárfestingar- og viðhaldsverkefnum fyrir 31. maí nk.
Fylgigögn
Fram fer umræða um málefni hverfisins. MSS22090034
Lagðar fram umsóknir styrkja úr Hverfissjóð Reykjavíkurborgar. MSS24030095
Samþykkt að veita verkefninu Rekstrarstyrkur Íbúasamtök miðborgar, styrk að upphæð kr. 100.000,-
Samþykkt að veita verkefninu Rekstrarstyrkur Íbúasamtaka 3.hverfis, styrk að upphæð kr. 100.000.-
Samþykkt að veita verkefninu Vorhátíð Austurbæjarskóla, styrk að upphæð kr. 200.000,-
Samþykkt að veita verkefninu Vorhátíð Háteigsskóla, styrk að upphæð kr. 200.000,-
Samþykkt að veita verkefninu Vorhátíð Hlíðaskóla og nágrennis styrk að upphæð kr. 200.000,-
Samþykkt að veita verkefninu Yoga og Tónheilun á Klambratúni styrk að upphæð kr. 100.000,-
Öðrum styrkumsóknum er hafnað.
Sigrún Tryggvadóttir víkur af fundinum undir afgreiðslu á styrkumsókn fyrir verkefnið rekstrarstyrkur fyrir Íbúasamtök miðborgar Reykjavíkur.
Þessi liður fundarins er lokaður með vísan til 7. gr. samþykktar fyrir íbúaráð Reykjavíkurborgar.
**Fundi slitið kl. 18.28**
Geir Finnsson Kolbrún Jarlsdóttir
Þórey Björk Sigurðardóttir Sigrún Tryggvadóttir
Hanna Björk Valsdóttir
**PDF útgáfa fundargerðar Fundargerð íbúaráðs Miðborgar og Hlíða frá 23. maí 2024**