Grindavíkurbær
Skipulagsnefnd - Fundur 132
132. fundur skipulagsnefndar haldinn í Tollhúsi við Tryggvagötu og í fjarskiptabúnaðinum Teams, miðvikudaginn 8. maí 2024 og hófst hann kl. 15:00.
Fundinn sátu: Lilja Ósk Sigmarsdóttir, formaður, Ásrún Helga Kristinsdóttir, varaformaður, Hrannar Jón Emilsson, aðalmaður, Steinberg Reynisson, aðalmaður,
Fjarverandi: Unnar Á. Magnússon, aðalmaður. Mætti ekki til fundar og tilkynnti ekki forföll.
Einnig sátu fundinn: Atli Geir Júlíusson, sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs, Hjörtur Már Gestsson byggingarfulltrúi Elísabet Bjarnadóttir, Sérfræðingur á skipulags- og umhverfissviðs og Guðjón Bragason lögfræðingur.
Fundargerð ritaði: Elísabet Bjarnadóttir, sérfræðingur á skipulags- og umhverfissviði.
Dagskrá:
**1. Þórkötlustaðir 3 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 2, - 2404111**
Óskað var eftir skráningu á vinnustofu/skúr sem hefur staðið á lóðinni í yfir 70 ár. Skúrinn er 21,8 fm. Skipulagsnefnd samþykkir skráningu skúrsins í ljósi aldurs og samræmi hans við helstu einkenni hverfisins enda til staðar þegar verndaráætlun hverfisins var gerð. Í samræmi við 42. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 og viðauka 1.1 við bæjarmálasamþykkt Grindavíkurbæjar er um fullnaðarafgreiðslu að ræða. Byggingarfulltrúi tekur við málinu í samræmi við byggingarreglugerð nr. 112/2012. Atli Geir Júlíusson vék af fundi 15:30.
**2. Heiðarhraun 23 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 2, - 2404130**
Sótt var um byggingarleyfi fyrir óskráðum kjallara 21,8 fm, grafinn út undir bílskúr Heiðarhrauns 23 á byggingartíma hússins '74. Hverfið er ódeiliskipulagt. Vegna tómlætis nágranna og byggingaryfirvalda metur skipulagsnefnd það sem svo að grenndaráhrif kjallarans séu engin og ekki þurfi að grenndarkynna kjallarann sem hefur staðið frá upphafi. Vegna framangreinds þá gerir skipulagsnefnd ekki athugasemd við stækkun fasteignarinnar sbr. 3. mgr. 44.gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Í samræmi við 42. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 og viðauka 1.1 við bæjarmálasamþykkt Grindavíkurbæjar er um fullnaðarafgreiðslu að ræða. Byggingarfulltrúa falið að vinna málið áfram í samræmi við byggingarreglugerð nr. 112/2012.
**3. Umsókn um niðurrif mannvirkis - Stamphólsvegur 2 - 2404142**
Lukku Láki ehf. sækir um byggingarheimild fyrir niðurrifi Salthússins að Stamphólsvegi 2. Málið tekið fyrir. Byggingarfulltrúa og sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs falið að vinna málið áfram.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 16:00.
Skipulagsnefnd / 30. maí 2024
[Fundur 132](/v/27249)
Skipulagsnefnd / 30. maí 2024
[Fundur 128](/v/27248)
Bæjarstjórn / 30. apríl 2024
[Fundur 566](/v/27205)
Bæjarstjórn / 23. apríl 2024
[Fundur 565](/v/27194)
Bæjarstjórn / 17. apríl 2024
[Fundur 564](/v/27184)
Skipulagsnefnd / 10. apríl 2024
[Fundur 131](/v/27169)
Bæjarstjórn / 4. apríl 2024
[Fundur 562](/v/27168)
Bæjarstjórn / 10. apríl 2024
[Fundur 563](/v/27163)
Bæjarstjórn / 26. mars 2024
[Fundur 561](/v/27138)
Skipulagsnefnd / 25. mars 2024
[Fundur 130](/v/27133)
Skipulagsnefnd / 25. mars 2024
[Fundur 130](/v/27131)
Bæjarstjórn / 19. mars 2024
[Fundur 560 ](/v/27114)
Bæjarstjórn / 12. mars 2024
[Fundur 559](/v/27096)
Bæjarstjórn / 20. febrúar 2024
[Fundur 556](/v/27040)
Bæjarstjórn / 13. febrúar 2024
[Fundur 555](/v/27026)
Bæjarstjórn / 8. febrúar 2024
[Fundur 554](/v/26997)
Bæjarstjórn / 30. janúar 2024
[Fundur 553](/v/26971)
Bæjarstjórn / 23. janúar 2024
[Fundur 552](/v/26943)
Bæjarstjórn / 16. janúar 2024
[Fundur 551](/v/26926)
Bæjarstjórn / 9. janúar 2024
[Fundur bæjarstjórnar nr. 550](/v/26907)
Bæjarstjórn / 29. desember 2023
[Fundur bæjarstjórnar nr. 549](/v/26890)
Bæjarstjórn / 27. desember 2023
[Fundur bæjarstjórnar nr. 548](/v/26885)
Bæjarráð / 5. desember 2023
[Fundur 1659](/v/26833)
Bæjarstjórn / 28. nóvember 2023
[Fundur 547](/v/26831)
Bæjarráð / 7. nóvember 2023
[Fundur 1658](/v/26747)
Bæjarstjórn / 31. október 2023
[Fundur 544](/v/26721)
Skipulagsnefnd / 16. október 2023
[Fundur 127](/v/26714)
Fræðslunefnd / 12. október 2023
[Fundur 136](/v/26713)