Garðabær

Bæjarráð Garðabæjar - 22. (2123)

11.06.2024 - Slóð - Skjáskot

    |11.06.2024 kl. 08:00 kom bæjarráð Garðabæjar saman til fundar í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi.

| | || |**Fundinn sátu: *Björg Fenger formaður, Margrét Bjarnadóttir varamaður, Gunnar Valur Gíslason varamaður, Guðlaugur Kristmundsson aðalmaður, Harpa Þorsteinsdóttir varamaður, Brynja Dan Gunnarsdóttir áheyrnarfulltrúi, Almar Guðmundsson bæjarstjóri, Lúðvík Örn Steinarsson sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs, Svanhildur Þengilsdóttir sviðsstjóri velferðarsviðs, Linda Udengård sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs, Guðbjörg Brá Gísladóttir sviðsstjóri umhverfissviðs, Ágúst Þór Guðmundsson sviðsstjóri þróunar- og þjónustusviðs, Ásta Sigrún Magnúsdóttir samskiptastjóri. | || | Fundargerð ritaði: Lúðvík Örn Steinarsson sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs. | ||Gengið var til dagskrár og fyrir tekið: | | || | | | | |1. 2202181 - Grímsgata 2-4 - Umsókn um byggingarleyfi. |Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita ÞG Íbúðum ehf., kt. 600115-0220, leyfi til að taka í notkun rými sem áður var skráð lokað, á Grímsgötu 2-4. | | | | | | | | |2. 2109212 - Kinnargata 92 - Umsókn um byggingarleyfi. |Bæjarráð samþykkir afgreiðslu bygginarfulltrúa að veita HHV ehf., kt. 450916-1880, leyfi fyrir breytingum á áður samþykktum uppdráttum, innveggjum breytt úr steypu í létta veggi, útveggir þykkna vegna breytinga á klæðningu, á Kinnargötu 92. | | | | | | | | |*3. 2404377 - Tilboð í byggingarrétt lóða í Prýðahverfi. ** |Á fundi bæjarráðs sem haldinn var 4. júní 2024 voru opnuð tilboð í 7 einbýlishúsalóðir í Prýðahverfi (sunnan gamla Álftanesvegar). Alls bárust 163 tilboð sem skiptust þannig: | Tilboð í Steinprýði 11 27 Tilboð í Steinprýði 2 18 Tilboð í Kjarrprýði 1 20 Tilboð í Kjarrprýði 2 16 Tilboð í Kjarrprýði 3 23 Tilboð í Garðprýði 2 17 Tilboð í Garðprýði 4 22 Tilboð í Garðprýði 6 20 Sami einstaklingur átti hæsta tilboð í 4 einbýlishúsalóðir en hefur fallið frá tilboði sínu í 3 lóðir. Bæjarráð samþykkir að taka tilboðum í lóðir í Prýðahverfi (sunnan gamla Álftanesvegar), þar sem lagt er til grundvallar hæsta verð í samræmi við söluskilmála. Tilboðin eru samþykkt með fyrirvara um að tilboðsgjafar uppfylli öll skilyrði um hæfi skv. söluskilmálum. Tilboðsgjöfum er veittur frestur til kl. 16:00 fimmtudaginn 20. júní til að skila tilskildum gögnum. Bæjarráð samþykkir að veita bæjarstjóra umboð til að samþykkja tilboð í lóðir í þeim tilvikum sem tilboðsgjafar falla frá tilboðum sínum eða uppfylla ekki hæfisskilyrði. Skal þá lagt til grundvallar að taka tilboðum frá þeim aðilum sem eru næsti í röðinni hvað varðar tilboðsverð, enda séu uppfyllt skilyrði í söluskilmálum. Hæstu tilboð í einstakar lóðir voru: Tilboðsgjafi Lóð Tilboðsfjárhæð Ásberg Pétursson Steinprýði 11 45.000.000 Helgi Fróði Ingason Steinprýði 2 40.000.000 Helgi Fróði Ingason Kjarrprýði 1 39.000.000 Ásberg Pétursson Kjarrprýði 2 40.000.000 Víðir Starri Vilbergsson og Sæbjörg Guðjónsdóttir Kjarrprýði 3 51.050.000 Helgi Fróði Ingason Garðprýði 2 38.000.000 Helgi Fróði Ingason Garðprýði 4 38.000.100 Finnbogi Bjarnason Garðprýði 6 35.256.556 | | | | | | | |4. 2111122 - Tilboð í byggingarrétt lóða í Kumlamýri. |Á fundi bæjarráðs sem haldinn var 4. júní 2024 voru opnuð tilboð í 4 parhúsalóðir við Kumlamýri. Alls bárust 36 tilboð sem skiptust þannig: | Tilboð í Kumlamýri 5-7 7 Tilboð í Kumlamýri 6-8 12 Tilboð í Kumlamýri 17-19 8 Tilboð í Kumlamýri 21-23 9 Sömu einstaklingar áttu hæsta tilboð í 3 parhúsalóðir, en hafa fallið frá tilboð sínu í 2 lóðir. Bæjarráð samþykkir að taka tilboðum í lóðir í Kumlamýri, þar sem lagt er til grundvallar hæsta verð í samræmi við söluskilmála. Tilboðin eru samþykkt með fyrirvara um að tilboðsgjafar uppfylli öll skilyrði um hæfi skv. söluskilmálum. Tilboðsgjöfum er veittur frestur til kl. 16:00 fimmtudaginn 20. júní 2024 til að skila tilskildum gögnum. Bæjarráð samþykkir að veita bæjarstjóra umboð til að samþykkja tilboð í lóðir í þeim tilvikum sem tilboðsgjafar falla frá tilboðum sínum eða uppfylla ekki hæfisskilyrði. Skal þá lagt til grundvallar að taka tilboðum frá þeim aðilum sem eru næsti í röðinni hvað varðar tilboðsverð, enda séu uppfyllt skilyrði í söluskilmálum. Hæstu tilboð í einstaka lóðir voru: Tilboðsgjafi Lóð Tilboðsfjárhæð Ásland 4 ehf. Kumlamýri 5-7 39.100.000 Karl Jónsson og Sigurður Halldór Bjarnason Kumlamýri 6-8 44.000.000 Karl Jónsson og Sigurður Halldór Bjarnason Kumlamýri 17-19 44.000.000 Karl Jónsson og Sigurður Halldór Bjarnason Kumlamýri 21-23 47.000.000 | | | | | | | |**5. 2401526 - Holtsbúð 87 - Klaustrið. Samstarfsverkefni um endurbætur, viðhald og rekstur. ** |Bæjarráð samþykkir útboðslýsingu fyrir Klaustrið í Garðabæ, samstarfsverkefni um endurbætur, viðhald og rekstur. Lýtur útboðið að áhugasamir leggi fram tillögu að starfsemi og endurbótum á húsnæðinu ásamt upplýsingum um hvernig sú starfsemi fellur að því umhverfi þar sem húsnæðið stendur og þeim kvöðum sem á húsnæðinu hvíla. Í útboðinu er um að ræða samkeppnisviðræður eins og þeim er lýst í 37.gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup. | Útboðið er auglýst á EES svæðinu. Um ferlið gilda ákvæði laga um opinber innkaup nr. 120/2016. Bæjarráð felur VSO Ráðgjöf umsjón með útboðinu. | | | | | | | |6. 2402425 - Reglur um styrki til náms, verkfæra- og tækjakaupa fatlaðs fólks með langvarandi stuðningsþarfir. |Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn reglur um styrki til náms, verkfæra- og tækjakaupa fatlaðs fólks með langvarandi stuðningsþarfir. | | | | | | | | |7. 2406188 - Fyrirspurn Garðabæjarlistans um lækkun umferðarhraða. |Fyrirspurn Garðabæjarlistans um lækkun umferðarhraða: Til hvaða aðgerða hefur verið gripið á grundvelli tillögu Garðabæjarlistans um lækkun umferðarhraða sem samþykkt var í bæjarstjórn 16. febrúar 2023? | Sviðsstjóri umhverfissviðs fór yfir þær hraðatakmarkandi aðgerðir sem gripið hefur verið til. Mikið af hraðahindrunum og þrengingum hafa verið settar upp, þá sérstaklega í kringum skólabyggingar og á gönguleiðum skólabarna. Í öllum húsagötum og flestum safngötum bæjarins er hámarkshraði 30 km/klst. Verið er að skoða, í samstarfi við umferðarráðgjafa, hvar ráðlegt er að lækka umferðarhraða á tengibrautum. Stofnvegir eru í veghaldi hjá Vegagerðinni og því ekki til skoðunar hjá Garðabæ. Minnisblað umhverfissviðs og yfirlitskort lagt fram. | | | | | | | | | | | |8. 2406226 - Árangur af aðgerðum SORPU árið 2023, minnisblað dags. 7. maí 2024. |Lagt fram. | | | | | | | | | | | | |9. 2406034 - Ársskýrsla 2023 (Landskjörstjórn), útgefin 3. júní 2024. |Lögð fram. | | | | | | | | | | ||Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. . |

Framleitt af pallih fyrir gogn.in