Húnaþing vestra
Byggðarráð - 1140. fundur
**Afgreiðslur:**
-
** ** **2206031 Lagt fram bréf frá Dagrúnu Sól Barkardóttur frá ** júní sl. þar sem hún óskar eftir námsstyrk vegna B.Ed. náms í kennarafræðum. ** **Jafnframt er lögð fram umsögn yfirmanns sbr. 2. gr. reglna um námsstyrki til starfsmanna Húnaþings vestra. Með vísan í áðurnefndar reglur um námsstyrki getur byggðarráð ekki orðið við erindinu að þessu sinni. Magnús Vignir Eðvaldsson sat hjá við afgreiðslu erindisins.
-
** ** **2206032 Lagt fram bréf frá Viktor Inga Jónssyni frá ** júní sl. þar sem hann óskar eftir námsstyrk vegna B.Ed. náms í kennarafræðum. ** **Jafnframt er lögð fram umsögn yfirmanns sbr. 2. gr. reglna um námsstyrki til starfsmanna Húnaþings vestra. Með vísan í áðurnefndar reglur um námsstyrki getur byggðarráð ekki orðið við erindinu að þessu sinni. Magnús Vignir Eðvaldsson sat hjá við afgreiðslu erindisins.
-
** ** **2206061 Lagt fram til kynningar bréf frá Birgi Jónassyni lögreglustjóra á Norðurlandi vestra vegna aðgerðastjórnar almannavarna í héraði á Norðurlandi vestra. **Í bréfinu gerir lögreglustjóri grein fyrir að koma þurfi upp viðunandi aðstöðu og búnaði fyrir aðgerðastjórn innan umdæmisins. Lausleg kostnaðargreining liggur fyrir sem er um kr. 1400 á íbúa.
-
** ** **2206048 Lagt fram til kynningar bréf frá Eftirlitsnefnd sveitarfélaga ** 22. júní sl.
-
** ** **2206051 Lagt fram bréf frá Félagi kraftamanna þar sem óskað er eftir stuðningi við Norðurlandsjakann 2022. **Byggðarráð getur ekki orðið við erindinu að þessu sinni.
-
** ** **2206040 Lagt fram bréf frá samningshöfum um grenjavinnslu **þar sem óskað er eftir hækkun á greiðslum fyrir hvert vegið dýr vegna aukins kostnað við veiðarnar. ** **Byggðarráð getur ekki orðið við erindinu að þessu sinni en vísar því til fjárhagsáætlunargerðar fyrir árið 2023.
-
** ** **2207002 Fundargerð 910. fundar Sambands íslenskra sveitarfélaga **lögð fram til kynningar.
-
** ** **2207002 Fundargerð 911. fundar Sambands íslenskra sveitarfélaga **lögð fram til kynningar.
-
**Lagðar fram til kynningar reglur um stuðning við hafnarsjóði til að mæta kostnaði við rekstur fordæmisgefandi dómsmála.**
-
**Ráðning sveitarstjóra, sbr. 46. gr. samþykkta um stjórn Húnaþings vestra. **Formaður byggðarráðs leggur fram eftirfarandi tillögu.
„Byggðarráð samþykkir að ráða Unni Valborgu Hilmarsdóttur sem sveitarstjóra Húnaþings vesta kjörtímabilið 2022-2026 jafnframt er lagður fram samningur við sveitarstjóra.“
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 3 atkvæðum.
** **
Fundargerð upplesin og samþykkt. Fundi slitið kl. 10:23.